Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.10.2020, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020 Hagræðing Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is á haustdögum án þess að það bitni á gæðum Hafðu samband og við gerum fyrir þig þarfagreiningu og tilboð í þjónustu án allra skuldbindinga. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 3. október 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 138.01 Sterlingspund 178.79 Kanadadalur 103.85 Dönsk króna 21.795 Norsk króna 14.87 Sænsk króna 15.468 Svissn. franki 150.37 Japanskt jen 1.3083 SDR 194.73 Evra 162.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 193.8692 Hrávöruverð Gull 1895.55 ($/únsa) Ál 1737.0 ($/tonn) LME Hráolía 40.66 ($/fatið) Brent ● Fjöldi starfandi fólks dróst saman í ágústmánuði miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt skrám. Þetta kem- ur fram í tölum Hagstofu Íslands. Þar segir að samdrátturinn hafi num- ið 5,5% milli ára. Þannig hafi 197.875 verið skráðir starfandi nú í ágúst, samanborið við 209.296 í sama mánuði í fyrra. Starfandi Íslendingum fækkaði milli tímabila um 4.364 og voru þeir 164.270 í ágúst í ár. Jafngildir það 2,6% fækkun milli ára. Hlutfallsleg fækkun meðal innflytjenda var mun meiri. Þannig voru þeir 40.662 í ágúst í fyrra en 33.605 í sama mán- uði nú í ár. Nemur fækkunin ríflega 17%. Starfandi fólki á vinnu- markaði fækkar milli ára STUTT Kristrún segir að íslenska ríkið ráði vel við að skulda 60% af lands- framleiðslu árið 2025, eins og spáð er. „Skuldahlutfallið er líka lágt í al- þjóðlegum samanburði. Þetta er til dæmis svipað og Þjóðverjar skuld- uðu við upphaf COVID-krísunnar. Við erum í raun að tvöfalda skulda- hlutfall okkar úr 30% í 60%: Löndin í kringum okkur eru almennt að auka skuldahlutfallið um 20%. Það er ekki skrýtið að lítið opið hagkerfi sem er háð ferðaþjónustu, sé að verða fyrir aðeins meira falli í þessu samhengi.“ Kristrún vonast til að eftir nokkur ár verði íslenska ríkið komið í þá stöðu að auknar tekjur vegna lands- framleiðslu muni smám saman ganga á skuldahlutfallið, og koma þannig í veg fyrir að fara þurfi í mik- inn niðurskurð eða skattahækkanir. Þurfa fyrirtæki og heimili því ekki að óttast auknar skattaálögur á næstu árum? „Ég held að það sé mjög mikil- vægt að ríkið sendi skýr skilaboð um að verkefnið nú sé að stækka tekju- stofna ríkisins á náttúrulegan hátt með auknum umsvifum í hagkerfinu, en ekki út frá auknum álögum á hvern og einn einstakling og fyrir- tæki, sem gæti sett fjárfestingu, neyslu og umsvif þessara aðila í bak- lás. Þetta 60% skuldahlutfall er langt undir því sem telst til hættulegrar skuldsetningar. Við höfum svigrúm til að bíða þetta af okkur, án þess að fara í skattahækkanir eða niður- skurð á grunnþjónustu.“ Vonar að vextir hækki Spurð um vaxtastigið og þau orð Ragnars Árnasonar prófessors í Morgunblaðinu í gær að ekki sé ástæða til að sjá ofsjónum yfir lágum vöxtum í dag, enda muni þeir verða kannski þrisvar eða fjórum sinnum hærri innan þriggja til fimm ára, segist Kristrún vonast til að vextir hækki. „Þetta lága vaxtastig sem við erum í núna endurspeglar mjög al- varlegt kreppuástand. Það eru nei- kvæðir raunvextir og heilbrigt hag- kerfi ætti að vera með raunvexti í takti við hagvöxt. Heilbrigð hagkerfi í þróuðum löndum eru með 2-2,5% hagvöxt, og raunvextir ættu að liggja á því bili. Miðað við eðlilega verðbólgu upp á 2,5% þýðir það nafn- vexti á bilinu 4-5%. Hærra vaxtastig eru ekki slæmar fréttir. Það endur- speglar ákveðna jákvæðni um vaxt- argetu þjóðarbúsins, arðbærni verk- efna og svigrúm til aukins kaupmáttar sem vegur mun þyngra hjá flestum en vaxtaliðurinn einn og sér.“ Réttar áherslur stjórnvalda Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir að sú forgangsröð- un ríkisins að greiða niður skuldir í uppsveiflu síðustu ára sé nú að skila sér. Svigrúm sé til skuldsetningar í þessari kreppu. „Ég tel að áherslur stjórnvalda í fjármálaáætluninni séu réttar, þ.e. við vitum að hallarekstur er óumflýjanlegur á næstu árum. Í stað þess að ráðast í miklar skatt- kerfisbreytingar til að brúa halla- rekstur eru útgjöld aukin til fjárfest- inga og nýsköpunar. Aðgerðir sem skapa bæði störf og hagvöxt til fram- tíðar. Tekjuskattslækkunin mun auka ráðstöfunartekjur tekjulægsta hópsins og lækkun tryggingagjalds eykur svigrúm hjá fyrirtækjum til að taka á sig komandi launahækkanir, a.m.k. að einhverju leyti.“ Ásdís telur að það blasi við að leið- in út úr ástandinu sé að forgangs- raða í ríkisrekstrinum og skapa svig- rúm á útgjaldahliðinni til að draga úr álögum. Það sé besta leiðin til að hvetja til aukinnar neyslu og verð- mætasköpunar. Skynsamlegar aðgerðir Morgunblaðið/Hari Efnahagur Óveðursský eru nú yfir hagkerfinu, en vonast er til að viðspyrnan verði öflug þegar þar að kemur.  Hagfræðingur Kviku segir 60% skuldahlutfall viðráðanlegt  Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir niðurgreiðslu skulda í uppsveiflu nú skila sér  Forgangsraða þarf í ríkisrekstrinum Kristrún Frostadóttir Ásdís Kristjánsdóttir BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Eins og fjallað var um í Morgun- blaðinu í gær er í nýrri fjármálaáætl- un gert ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs hækki í 1.250 milljarða króna í lok þessa árs, og verði 430 milljörðum hærri en gert var ráð fyrir í fjár- lögum. Þá er áætlað að skuldir haldi áfram að hækka fram til ársins 2025, en þá muni þær nema 59,2% af vergri landsframleiðslu. Kristrún Mjöll Frostadóttir, aðal- hagfræðingur Kviku banka, segir í samtali við Morgunblaðið að staðan nú sé ekki ákjósanleg, en við hana verði ekki ráðið, enda sé stór hluti af hallarekstri ríkisins tilkominn vegna tekjufalls og hruns í atvinnustigi. Hún segir að stjórnvöld hafi gripið til skynsamlegra aðgerða. „Það sem verið er að gera núna er að gefa í, svo að ríkið missi ekki tekjustofna í framtíðinni. Hættan er sú að ef fólk og fyrirtæki eru ekki gripin núna, og grunnþjónustu verði ekki viðhaldið, þá dragist kraftur úr hagkerfinu síð- ar meir. Það gæti orðið til þess að skuldir yrðu enn hærra hlutfall af landsframleiðslu síðar meir.“ Þriðjungur kom frá vexti Hún segir að mikilvægt sé fyrir stjórnvöld að reyna að hafa stjórn á aðstæðum, bregðast hratt og örugg- lega við og stýra fjármagni í rétta átt, í stað þess að bregðast við eftir á. „Ríkissjóður Íslands hefur verið heppinn að því leyti að það hefur ver- ið mikill hagvöxtur hér undanfarin ár, þannig að það gekk hratt á skuldahlutfallið. Þriðjungur af minnkun skuldahlutfallsins eftir hrun kom til af því að hagkerfið óx.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.