Morgunblaðið - 03.10.2020, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2020
Fullkomið fatbrauð f
yrir öll tækifæri
Stefán Gunnar Sveinsson
Andrés Magnússon
Donald Trump Bandaríkjaforseti
var í gærkvöld fluttur með þyrlu frá
Hvíta húsinu á Walter Reed-her-
sjúkrahúsið, skammt norður af höf-
uðborginni Washington. Forsetinn
gekk óstuddur en mjög þreytulegur
um borð í þyrluna og út úr henni við
spítalann.
Að sögn talsmanns Hvíta hússins
mun forsetinn dveljast á sjúkrahús-
inu í nokkra daga, en þar mun hann
hljóta lyfjameðferð við kórónuveir-
unni, sem enn er á tilraunastigi.
Ekki var greint frá því um hvaða lyf
var að ræða. Forsetinn var sagður
þreyttur og með væg sjúkdómsein-
kenni kórónuveirunnar, hita, stíflu
og hósta.
Mike Pence varaforseti hefur ver-
ið skimaður og reyndist ósmitaður.
Hann mun halda áfram í fyrirhuguðu
kosningaferðalagi, en að svo stöddu
mun hann ekki taka við embættis-
störfum forsetans.
Kosningabarátta í uppnámi
Kosningabaráttan í Bandaríkjun-
um komst í uppnám í fyrrinótt þegar
greint var frá því að Donald Trump
Bandaríkjaforseti og forsetafrú hans
Melania hefðu greinst með kórónu-
veiruna. Nokkrar vangaveltur höfðu
verið um heilsufar hans í fyrradag
eftir að greint var frá því að Hope
Hicks, einn nánasti aðstoðarmaður
forsetans, hefði greinst jákvæð fyrir
veirunni, en hún hafði ferðast með
forsetavélinni Air Force One og tek-
ið þátt í ýmsum viðburðum með hon-
um.
Trump staðfesti svo tíðindin á
Twitter-síðu sinni um kl. 1 eftir mið-
nætti í fyrrinótt að bandarískum
austurstrandartíma. Talsmenn
Hvíta hússins sögðu í gær að Trump
væri með mild einkenni og að hann
geti áfram sinnt embættisskyldum
sínum úr sóttkví í Hvíta húsinu.
Trump er 74 ára gamall og því í hópi
þeirra sem eru taldir líklegri til þess
að láta lífið af völdum veirunnar.
Mike Pence varaforseti og Karen,
eiginkona hans, fóru í skimun í gær
sem reyndist neikvæð.
Batakveðjur streyma að
Tíðindin hafa þegar valdið nokkru
uppnámi, og brugðust verðbréfa-
markaðir vestanhafs illa við fregn-
unum. Þá hafa þjóðarleiðtogar víðs
vegar að sent Trump-hjónunum
samúðar- og batakveðjur sínar, þar á
meðal Angela Merkel Þýskalands-
kanslari og Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti, sem sagði í yfirlýsingu
sinni vera sannfærður um að „lífs-
þróttur, góður andi og bjartsýni“
Trumps myndu hjálpa honum í
gegnum veikindin.
Þá sendi Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Bretlands, Trump-hjónun-
um sérstakar kveðjur, en Johnson
veiktist sjálfur illa í vor og þurfti að
dvelja í þrjá daga á gjörgæslu.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, sendi einnig batakveðjur
sínar til forsetahjónanna banda-
rísku, og lýsti hann þar þeirri von
sinni að bóluefni, lyf og lækningar
fyndust senn við vágesti kórónuveir-
unnar.
Joe Biden, forsetaframbjóðandi
demókrata, og Jill, eiginkona hans,
hafa einnig sent Trump-hjónunum
kveðjur, en Biden-hjónin fóru í sér-
staka skimun í gær, þar sem talið er
að Trump hafi mögulega verið smit-
andi þegar forsetaefnin mættust í
kappræðum á þriðjudagskvöldið í
Cleveland í Ohio. Þau reyndust nei-
kvæð. Óvíst er hvort seinni tvær
kappræður þeirra muni nú fara
fram, en næstu kappræður þeirra
eiga að fara fram 15. október nk.
Talið áfall fyrir forsetann
Kappræðurnar eru hins vegar
ekki hið eina sem raskast í kosninga-
baráttunni, en mánuður er í dag þar
til kosið verður, þriðjudaginn 3. nóv-
ember. Framboð Trumps neyddist
til þess að aflýsa stórum kosninga-
fundi sem hann ætlaði að halda í
Flórída-ríki, en skoðanakannanir
benda til þess að forsetinn eigi ekki
möguleika á endurkjöri nái hann
ekki sigri þar.
Víst er að Trump muni ekki geta
haldið kosningafundi sína næstu
tvær vikurnar hið minnsta, einmitt
þegar kosningabaráttan er að nálg-
ast hámark sitt, en Trump hefur lagt
mikið upp úr stórum og fjölmennum
fundum með stuðningsmönnum sín-
um í kosningabaráttunni, og um leið
gagnrýnt Biden fyrir að hafa haldið
sér meira til hlés.
Stjórnmálaskýrendur vestanhafs
eru ekki á einu máli um það hvaða
áhrif veikindi Trumps hafi á kosn-
ingabaráttuna og fylgi hans.
AFP
Bandaríkin Donald Trump Bandaríkjaforseti gengur um borð í þyrlu sína á leið á sjúkrahús í gærkvöldi. Trump og
Melania eiginkona hans greindust með kórónuveiruna í fyrrinótt og er óvíst hvaða áhrif það muni hafa á fylgi hans.
Trump fluttur á spítala
Donald og Melania Trump hafa greinst með kórónuveiruna Forsetinn var
fluttur á spítala í gærkvöldi Mikil óvissa um framhald kosningabaráttunnar
Armenskir aðskilnaðarsinnar í Na-
gorno-Karabak-héraði sökuðu í gær
stjórnvöld í Aserbaídsjan um að hafa
skotið á Stepanakert, höfuðborg hér-
aðsins, með fallbyssum, og um leið
sært fjölda fólks. Þar á meðal voru
að sögn aðskilnaðarsinna tíu starfs-
menn í neyðarþjónustu. Stjórnvöld í
Aserbaídsjan sökuðu hins vegar að-
skilnaðarsinna um að hafa gert árás-
ir á nokkra bæi og þorp.
Stjórnvöld í Armeníu sögðu í gær
að þau væru loks reiðubúin til þess
að hefja viðræður um vopnahlé í deil-
unni á grundvelli boðs Frakka,
Bandaríkjamanna og Rússa frá í
fyrradag. Aserar sögðu hins vegar
að fyrst yrðu allar hersveitir á veg-
um Armeníu að yfirgefa héraðið.
Áhyggjur vegna vígamanna
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
sagði í gær að hann hefði þungar
áhyggjur af því að vígamenn frá Sýr-
landi hefðu blandað sér í átökin, en
Emmanuel Macron Frakklandsfor-
seti sagðist í fyrradag hafa sannanir
fyrir því að 300 slíkir hefðu ferðast í
gegnum Tyrkland til átakasvæð-
anna. Macron krafðist í gær skýr-
inga frá Tyrkjum, en tyrknesk
stjórnvöld hafa neitað því að þau hafi
veitt Aserum slíkan stuðning.
Bresku mannréttindasamtökin
Syrian Observatory for Human
Rights, sem fylgst hafa náið með
borgarastríðinu í Sýrlandi, lýstu því
hins vegar yfir í gær að rúmlega 850
vígamenn úr hópum íslamista sem
Tyrkland hefur stutt væru nú komn-
ir til þess að berjast fyrir hönd
Asera. Þá höfðu samtökin heimildir
fyrir því að 28 vígamenn hið minnsta
hefðu verið felldir í átökunum til
þessa.
Sprengingar í
höfuðborginni
Armenar segjast tilbúnir í viðræður
AFP
Mótmæli Armenskir Bandaríkja-
menn í Los Angeles mótmæltu
framferði Tyrkja í fyrradag.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að það væri á
ábyrgð Evrópusambandsins að finna
lausnir á þeirri pattstöðu sem komin
væri upp í fríverslunarviðræðum
Breta og Evrópusambandsins, en ní-
undu viðræðulotu þeirra lauk í gær
án árangurs.
„Ég vona að við náum samningi,
það veltur á vinum okkar,“ sagði
Johnson við breska ríkisútvarpið
BBC. Spurði hann hvers vegna ekki
væri hægt að gera áþekkan samning
við Bretland og Evrópusambandið
gerði áður við Kanada.
Enn í sömu hjólförunum
Aðalsamningamenn Breta og Evr-
ópusambandsins sögðu í gær að
margt hefði áunnist í vikunni, en að
enn væri ágreiningur um fiskveiðimál
og samkeppnisreglur, sem hafa verið
helstu ásteytingarsteinarnir til þessa.
Michel Barnier, samningamaður
ESB, sagðist í gær hafa áhyggjur af
því að tíminn væri orðinn mjög naum-
ur, en stefnt hefur verið að því að
klára viðræðurnar fyrir leiðtogafund
sambandsins 15. október nk.
Boris Johnson og Ursula von der
Leyen, forseti framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, munu halda
fjarfund í dag, en von der Leyen til-
kynnti í vikunni að sambandið hygð-
ist höfða mál á hendur Bretum vegna
löggjafar sem breska þingið sam-
þykkti á þriðjudaginn, sem sögð er
ganga gegn samkomulagi Bretlands
og ESB um útgönguna.
AFP
Brexit Ursula von der Leyen hyggst
höfða mál á hendur Bretum.
Boltinn hjá
Evrópu-
sambandinu
Brexit-viðræður
enn í strandi