Morgunblaðið - 16.10.2020, Síða 1

Morgunblaðið - 16.10.2020, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 6. O K T Ó B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  244. tölublað  108. árgangur  NÝTT ORGEL Í KEFLAVÍKUR- KIRKJU LOKAVERK Í MERKILEGU SAFNI FULLKOMIN ÓVISSA Á AFMÆLINU SMÁSÖGUR 37 TJARNARBÍÓ 10 ÁRA 36TEKUR RÚMAN MÁNUÐ 10 Omeprazol Actavis 20mg14 og 28 stk. Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast- andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi- seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf. T ev a 0 2 8 0 6 2 Berjast við að halda velli  Reyna að tryggja að innviðir verði til staðar ,,svo við getum spyrnt okkur hressi- lega frá botninum“  27 fyrirtæki sóttu um kvóta vegna jökla- og íshellaferða ,,Út á það gengur baráttan þessa mánuðina, að tryggja að innviðirnir verði til staðar svo við getum spyrnt okkur hressilega frá botninum sem við erum nú á,“ segir Kristófer Oli- versson, formaður Félags fyrirtækja í hótelrekstri og gistiþjónustu. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, hefur áhyggjur af því að fyrirtækin sligist undan skuldum og bankarnir þurfi að innkalla veð sín. „Það er ómöguleg staða ef stór hluti af mikilvægum rekstrareignum ferðaþjónustunnar verður ekki til staðar þegar við þurfum á þeim að halda til viðspyrnu,“ segir Jóhannes. Mörg fyrirtæki sem bjóða upp á jöklagöngur og íshellaskoðun virðast ekki ætla að leggja upp laupana þrátt fyrir lokun landsins. Alls sóttu 27 fyrirtæki um gerð samninga við Vatnajökulsþjóðgarð til eins árs um íshellaferðir og jöklagöngur á suð- ursvæði þjóðgarðsins. Sett hefur verið hámark á fjölda gesta í þessum ferðum á fimm svæðum til að draga úr álagi ferðamanna á viðkvæmum svæðum. Hefur fyrirtækjunum nú verið úthlutað kvótum fyrir þann fjölda ferðamanna sem mega fara á hvert svæði um sig. Er það í fyrsta skipti hér á landi sem aðgangi að jöklum er stýrt með þessum hætti. Helgi Bjarnason Ómar Friðriksson Barátta fyrirtækja í ferðaþjónustu stendur nú um að halda þeim starf- hæfum í vetur þannig að þau geti tekið við bókunum og þjónað ferða- fólki sem vonast er til að byrji að skila sér aftur til landsins í vor. Mörg ferðaþjónustufyrirtæki eru lokuð og sjá ekki fram á að fá neinar tekjur sem skipta máli í vetur. MVerði starfhæf þegar … »4 Haustveðrið hefur verið einstaklega fallegt á höfuðborgarsvæðinu undanfarið og margir nýtt tækifærið í útiveru. Lokun líkamsræktarstöðva hefur einnig eflaust orðið til þess að fleiri hafa sótt í hreyfingu úti í náttúrunni eins og þessi kona gerði þegar hún skellti sér út að skokka á Laugarnesi í Reykjavík. Landlæknir mælir með því að fólk hreyfi sig rösklega í minnst 30 mín- útur daglega á tímum kórónuveiru. Morgunblaðið/Eggert Náttúrunnar notið í fallegu haustveðri Samantekt um stöðu áhættuþátta heilbrigðis, í úttekt á velsæld og vel- ferð íbúa Garðabæjar, gefur til kynna að neikvæðir áhættuþættir heil- brigðis eru mest áberandi hjá tveim- ur yngstu aldurshópunum, það er að segja hjá 17 ára og yngri og 18 til 44 ára. Aftur á móti er elsti hópurinn, 67 ára og eldri, í góðum málum. Skýrsluhöfundar segja athygl- isvert hversu bágborin andleg líðan og mikil streita er hjá aldurs- hópnum18 til 44 ára. Þriðjungur fólks á þessum aldri segist oft eða mjög oft upplifa mikla streitu í daglegu lífi og fjórðungur glímir við andlega vanlíð- an. Þá segir að mikill einmanaleiki hjá karlmönnum á aldrinum 18 til 26 ára sé mikið áhyggjuefni sem verði að taka alvarlega. Sofa vel og lengi Það vakti athygli skýrsluhöfunda að elsti aldurshópurinn, 67 ára og eldri, er best á sig kominn, bæði lík- amlega og andlega. Þar er lægst tíðni ofþyngdar, fólk hreyfir sig oftar, kyrrseta er lítil, fólki líður betur and- lega og streita ekki teljandi. Fólk sef- ur vel og lengi. »6 Fólk á besta aldri er strekkt  Eldri Garðbæing- um líður manna best Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Úttekt Fólki líður oft illa í miðju lífsgæðakapphlaupinu. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Niðurstöður rannsóknar Ensku lýð- heilsustofnunarinnar benda til þess að fólk sem smitaðist bæði af nýju kórónuveirunni og inflúensu á tímabilinu frá janúar til apríl á þessu ári hafi verið í meiri hættu á að verða alvarlega veikt eða að deyja en fólk sem einungis var með COVID-19. Dánarhlutfall þeirra sem smituðust af báðum sjúkdóm- unum samtímis var meira en tvöfalt hærra en þeirra sem voru bara með COVID-19. Þekktir læknar á Eng- landi hvetja til þess að sem flestir verði nú bólusettir gegn hinni ár- legu inflúensu vegna kórónuveiru- faraldursins. Danskur smit- sjúkdómalæknir hvetur fólk til að hugleiða að láta bólusetja sig. Það að bólusetja ungt og hresst fólk gegn árlegri inflúensu ætti ef til vill að mæta afgangi, að mati Magnúsar Gottfreðssonar, prófess- ors og smitsjúkdómalæknis. Það fer þó eftir birgðum af bóluefni. Hann telur að halda eigi þeirri forgangsröðun sem stuðst hefur verið við. Það er að bólusetja fyrst viðkvæma hópa eins og aldraða, fólk með undirliggjandi sjúkdóma og heilbrigðisstarfsfólk. »14 Morgunblaðið/Hari Flensusprauta Bólusetja ætti viðkvæma hópa fyrst gegn árlegri inflúensu, að mati Magnúsar Gottfreðssonar, prófessors og smitsjúkdómalæknis. Inflúensubólusetning er mikilvæg nú  Það getur verið mjög slæmt að fá inflúensu ofan í kórónuveirusmit

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.