Morgunblaðið - 16.10.2020, Page 21
hennar og elsta dóttir okkar
felldu hugi saman. Okkar kynni
og samfylgd með henni hafa ver-
ið afar farsæl frá fyrsta degi.
Helga kom okkur alltaf fyrir
sjónir sem lífleg kona með léttar
kvikar hreyfingar enda útivist-
arkona mikil, sem stundaði sund
daglega fram í háan aldur. Hún
var dugnaðarforkur sem lét
aldrei deigan síga þótt á móti
blési.
Helga eignaðist tvo syni sem
eru lifandi dæmi þess hversu
gott og vandað atlæti þeir fengu
í uppeldinu, sem veganesti út í
lífið, svo góðar fyrirmyndir eru
þeir báðir tveir.
Að leiðarlokum þökkum við af
alhug samfylgdina og þær góðu
stundir sem við áttum sameig-
inlega með börnum okkar og
barnabörnum og vottum nán-
ustu ættingjum okkar dýpstu
samúð.
Matthildur Þorláksdóttir
og Hilmar Viktorsson
Eftir því sem við verðum eldri
þurfum við oftar að kveðja vini
sem við höfum deilt með gleði og
sorg í áratugi. Nú er komið að
því að kveðja Helgu Helgadóttur
sem við unnum með í SÍS-inu
fyrir langalöngu. Tengdumst
vináttuböndum sem gátu ekki
slitnað nema þegar endakallið
kom og Helga skipti um tilveru-
stig. Nú skjóta upp kollinum
minningar um ótal föstudags-
kvöldferðir þar sem við sátum
saman við kertaljós og drukkum
Dubonnet eða appelsín eins og
hæglátar stúlkur gerðu á þess-
um tímum. Helgarferðirnar í
Skammadal (bústað Starfs-
mannafél. SÍS), ferðir út fyrir
bæinn, gönguferðir í náttúrunni
sem var vinkonu okkar svo kær.
Helga gat gert ferð í Hafnar-
fjarðarhraun ekki síðri skemmti-
ferð en að liggja úti í Hallorms-
staðaskógi heilan dag í 25 stiga
hita.
Hún Helga okkar var gegn-
heil manneskja, svo gróin V-
Skaftfellingur að hún var fáorð
en gagnorð, ekkert þvaður þar.
Stundum fannst okkur að það
væri ekkert sem Helga gæti ekki
gert betur en allir aðrir. Út-
saumur hennar var nánast eins á
báðum hliðum, af þvottinum
geislaði í skápunum. Hún sveifl-
aði trésmíðaverkfærum af sömu
snilld og straujárninu. Garður-
inn í Erluhrauninu bar merki
náttúruvinarins. Og í bílskúrn-
um á Álfaskeiðinu gætti margra
grasa í orðins fyllstu merkingu,
alls staðar tókst henni að finna
ber á haustin og varð snillingur í
að brugga berjalíkjör. 67 ára
gömul tilkynnti hún okkur að
hún væri hætt í vinnunni. Nei,
það gat ekki verið að þessi
hrausta kona ætlaði að setjast í
helgan stein. Jú, eða þannig var
svarið. Og svo kom spurningin til
okkar; finnst ykkur ekki nóg að
raða og flokka fylgiskjöl í hálfa
öld? Auðvitað vissum við að vin-
kona okkar gæti gert ýmislegt
annað svo okkur þótti vænt um
að vita að hún gekk snyrtilega
frá á skrifborðinu og yfirgaf
þann kafla í lífinu. Við tók frjáls-
ari tími með fjölskyldunni, son-
um, tengdadætrum og barna-
börnum sem hún nýtti í botn.
Fleiri nutu hlýju hennar og
hjálpsemi næstu árin. Hvar sem
Helga okkar kom eignaðist hún
vini, skólafélagar, samstarfsfólk
líkt og við, fólkið í Sundlaug
Hafnarfjarðar sem hún hitti á
hverjum morgni varð sumt ævi-
vinir.
Nú þætti Helgu nóg komið af
skvaldrinu og því rétt að ljúka
þessum minningarorðum með
innilegum samúðarkveðjum til
strákanna hennar og fjölskyldna
þeirra.
Við vinkonurnar vitum að ein
besta gjöfin sem við eignumst í
lífinu er vináttan. Minningin um
Helgu lifir hjá öllum sem henni
kynntust.
Ágústa Þorkelsdóttir,
Guðrún Árnadóttir,
Inga Teitsdóttir.
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
✝ BrynleifurHallsson fædd-
ist á Berglandi,
Akureyri, 5. júní
1948. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á
Akureyri 3. októ-
ber 2020. For-
eldrar hans voru
hjónin Anna
Brynjólfsdóttir, f.
1916, d. 2007, og
Hallur Benedikts-
son, f. 1888, d. 1973. Systkini
Brynleifs eru Ragnar, f. 1936,
d. 1997, Erla, f. 1938, gift Guð-
jóni Helgasyni, f. 1956, og
Theodór, f. 1950, kvæntur
Höllu Snorradóttur, f. 1952.
Eiginkona Brynleifs er
Emma Magnúsdóttir, f. 16. júní
1951. Foreldrar Emmu: Hjör-
dís Magnúsdóttir, f. 1928. og
Magnús Aðalsteinsson, f. 1918,
d. 1997.
Emma og Brynleifur eignuð-
ust þrjú börn: 1) Bryndís Ásta,
f. 18. ágúst 1969. Var gift Guð-
mundi Jónssyni. Þau skildu.
Synir þeirra: Andri Þór, f. 15.
janúar 1997, í sambúð með
Guðrúnu Ásgeirsdóttur, f. 12.
júlí 1996. Atli Þór, f. 25. apríl
2005. Sonur Bryndísar er
unglingsár. Emma og Billi
hófu sambúð 1968 og gengu í
hjónaband 5. apríl 1969. Árið
1978 kaupa þau Þing. 44 og
hafa búið þar æ síðan. Í mjólk-
urfræðinám fór hann 1987 og
lauk því með láði fertugur að
aldri. En tónlistin skipaði stór-
an sess í lífi hans frá unga
aldri. Í áraraðir lék hann og
söng með ýmsum hljómsveitum
hér á landi svo og erlendis. Á
sínum unglingsárum stofnaði
hann ásamt Tedda bróður sín-
um og nokkrum vinum hljóm-
sveitina Comet. Einnig var
hann meðlimur hljómsveitar
Ingimars Eydal um árabil. En
mesta ánægja hans var að geta
glatt íbúa á Öldrunarheimilum
Akureyrar með leik og söng á
kráarkvöldum og þorrablótum
þeirra. Í Tónræktinni kenndi
hann á hljóðfæri árum saman.
Golf var líka eitt af hans
áhugamálum. Þar naut hann
félagsskapar sem kallar sig
Mosana.
Útför Brynleifs verður gerð
frá Akureyrarkirkju í dag, 16.
október 2020, kl. 13.30. Í ljósi
aðstæðna í þjóðfélaginu verða
aðeins nánustu aðstandendur
viðstaddir. Streymt verður frá
athöfninni: FB-síða: Jarð-
arfarir í Akureyrarkirkju -
Streymi
https://tinyurl.com/yybfk6f4
Virka slóð á hlekk má nálg-
ast á:
https://www.mbl.is/andlat
Brynleifur Hlyns-
son, f. 19. janúar
1988. Hans kona
er Íris Theódóra
Unnsteinsdóttir, f.
24. mars 1993.
Þau eiga tvær
dætur, Sigrúnu
Ástu, f. 11. nóv-
ember 2014, og
Hugrúnu Myrru, f.
19. nóvember
2019.
2) Birgir, f. 21. mars 1972,
hans kona er Jóhanna Sif
Hannesdóttir, f. 13. nóvember
1984. Þeirra sonur er Haukur
Hannes, f. 12. ágúst 2018.
Dóttir Birgis er Emma Líf, f.
27. júní 2006, og dóttir Jó-
hönnu er Sunna Mist, f. 20.
apríl 2012. 3) Benedikt, f. 31.
janúar 1979. Var kvæntur Írisi
Guðnadóttur, f. 21. september
1981. Þau skildu. Börn þeirra:
Nökkvi, f. 12. júní 2006, Björg,
f. 8. nóvember 2010, og Einar,
f. 11. september 2014.
Brynleifur ólst upp á Berg-
landi til þriggja ára aldurs, en
þá fluttu foreldrar hans í hús
sem þau byggðu í Þingvall-
astræti 44. Í foreldrahúsum
bjó Billi öll sín bernsku- og
Ég þakka Guði löngu liðinn dag
sem lét mig eignast þig að ævivin.
Og öll þau blóm sem uxu á þinni leið
með ilm og fegurð hresstu og
glöddu mig.
Og birtan sem þú breiddir yfir allt
sló bjarma á lífið í kringum þig.
(Oddný Kristjánsdóttir)
Ástkær bróðir minn Billi er
fallinn frá alltof fljótt og
skyndilega. Margs er að minn-
ast frá uppvaxtarárum okkar á
Akureyri á 6. áratugnum. Við
ólumst upp hjá kærleiksríkum
foreldrum og ásamt systkinum
okkar nutum við þess að búa
við mikinn skilning og frelsi.
Umhverfi Þingvallastrætis 44
var öðruvísi á þeim tíma. Svín,
nautgripir og tún voru and-
spænis heimilinu. Síðan tóku
við unglingsárin og bítlatíma-
bilið. Sú minning er einstaklega
ljúf þegar við Billi röltum niður
í bæ og keyptum hvor sinn gít-
arinn og gítarkennsluhefti. Eft-
ir það varð ekki aftur snúið og
við stofnuðum ásamt tveimur
félögum hljómsveitina Comet
sem varð afar vinsæl á 7. ára-
tugnum. Billi átti eftir að halda
áfram á tónlistarbrautinni allt
til loka. Að lokum viljum við
Halla votta Emmu og fjöl-
skyldu okkar innilegustu sam-
úð. Blessuð sé minning góðs
drengs.
Theodór Hallsson.
Þú áttir söngva og sól í hjarta
er signdi og fágaði viljans stál.
Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta,
er kynni höfðu af þinni sál.
(Grétar Fells)
Elsku litli bróðir minn. Nú
er stórt stórt stórt tómarúm í
kringum mig. Tómarúm sem
aldrei verður fyllt. Ég sakna
strax daglegu heimsóknanna
þinna, þar sem kallað var í
gættinni: góðan daginn, hvað er
verið að brasa? Síðan var sest
yfir kaffibolla og Gammel, mál
líðandi stundar rædd, og að
sjálfsögðu fékkst alltaf lausn á
öllu. Það er svo ótalmargs að
minnast en fyrsta minningin er
frá sumardegi í júní, þegar ég
var tæpra tíu ára. Þennan júní-
morgun varst þú það fyrsta
sem ég fékk að sjá, og þar með
gerðist ég sjálfskipuð barnapía
nokkur næstu árin. Þú varst
ekki mjög hár í loftinu þegar
borð og bekkir voru notaðir til
loftfimleika, enda varstu æði
oft með kúlur og skurði eftir
bylturnar. Tónlistin höfðaði
snemma til þín og mikið reyndi
ég ellefu, tólf ára stelpan að
þagga niður í þér þegar þú
söngst hástöfum í kerrunni.
Það hafði öfug áhrif, því þú
söngst bara hærra. En Billa
var margt til lista lagt og sama
hvaða verk hann fékkst við.
Hann var þúsundþjalasmiður af
Guðs náð. Fyrir nokkrum árum
tók hann sig til og málaði allt
húsið mitt utan sem innan.
Baðherbergið mitt endurnýjaði
hann fyrir tveimur árum og allt
sem laga þurfti það gerði Billi.
Hann vissi sem var, að mágur
hans var ekki sérlega handlag-
inn. Aðeins einu sinni man ég
eftir að honum mistækist. En
pabbi okkar átti gamlan
handsnúinn grammófón og
Billa lék forvitni á að vita
hvernig þessi græja virkaði.
Skrúfaði allt í sundur til að
kanna hvernig hljóð gæti borist
úr þessu töfratæki, en fónninn
varð aldrei nothæfur eftir
þessa tilraun. Billi átti eftir að
launa mér pössunina, því æði
oft gætti hann minna barna.
Það væri efni í heila bók ef ég
ætti að telja allt upp sem við
höfum átt saman. En elsku
Billi, takk fyrir allar samveru-
stundir, innanlands og utan og
síðustu ferðina okkar síðsumars
upp á fjöll. Nú ertu lagður í
aðra og lengri ferð, og þín bíða
ný verkefni. Hvíl í friði kæri
litli bróðir minn. Elsku Emma,
Bryndís, Biggi, Benni og fjöl-
skyldur,
Innilegar samúðarkveðjur
frá okkur Guðjóni. Guð vaki yf-
ir ykkur öllum.
Erla Halls.
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kallaður á ör-
skammri stundu
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göf-
uga og góða,
svo fallegur, einlægur og hlýr.
En örlög þín ráðin – mig setur
hljóða,
við hittumst samt aftur á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Án sorgar væri engin gleði.
Þegar sorgin knýr dyra við lát
ástvinar þá leka tár og ekkert
virðist geta bægt henni burt.
Persónan er farin og hefur skil-
ið eftir í hjartanu djúpt skarð,
enginn nýr getur komið í stað-
inn, minning hans er það eina
sem er eftir.
Elsku Billi frændi er fallinn
frá aðeins 72 ára að aldri. Billi
var hjartahlýr og góður maður
og var ég svo heppin að um-
gangast hann mikið í æsku.
Þegar Bryndís dóttir hans var
um árs gömul fékk ég að passa
hana en þá var ég aðeins 10
ára. Ég fór í veiðiferðir með
þeim og berjamó að ógleymd-
um öllum skemmtilegu jólaboð-
unum heima hjá mömmu þar
sem dansað var í kringum jóla-
tréð og sungið af hjartans lyst.
Þegar ég varð eldri var ég svo
heppin að fá að syngja með
honum í níræðisafmæli ömmu
Önnu og seinna spilaði hann
undir hjá mér þegar ég söng í
brúðkaupi dóttur minnar. Þeg-
ar ég missti pabba minn aðeins
11 ára þá komu þeir bræður
Billi og Teddi og studdu mig í
gegnum áfallið og hvöttu mig
áfram og ég man að Billi gerði
fyrir mig verkefni um Ísland,
en því átti ég að skila daginn
eftir í skólann. Billi var mikill
listamaður, yndislegur pabbi,
afi og langafi og er nú stórt
skarð höggvið í fjölskyldu hans.
Ég á eftir að sakna þín elsku
Billi og takk fyrir allt og allt.
Góða ferð í sumarlandið.
Elsku Emma, Bryndís,
Biggi, Benni og fjölskyldur,
mamma og Teddi. Söknuður
ykkar er mikill en minning um
elsku kærleiksríka Billa okkar
mun ylja okkur um ókomin ár.
Þín frænka,
Anna Halla.
Jæja, elsku vinur.
Komið er að kveðjustund,
kveðjustund sem var svo víðs-
fjarri þegar við hittumst fyrir
örfáum dögum.
Við Brynleifur eða Billi, eins
og hann var alltaf kallaður, höf-
um verið vinir í yfir 50 ár.
Tónlistaráhuginn tengdi okk-
ur saman. Við lékum saman í
hljómsveitum, m.a. Ljósbrá,
Hljómsveit Ingimars Eydal og
Hvítum mávum. Fyrir 11 árum
gekk hann til liðs við okkur
Bravó-strákana. Við tókum upp
plötur og sjónvarpsþætti, tók-
um þátt í Júróvision, lékum á
dansleikjum og tónleikum,
ferðalög erlendis o.fl. gerðum
við saman.
Alltaf hefur verið gott að
vera í kringum Billa, traustur,
glaðvær og áreiðanlegur vinur
sem var fullur af orku, alltaf til
í spilaverkefni, golf eða bara
hvað sem var, vinur sem verður
sárt saknað.
Ekki var það bara spila-
mennskan sem tengdi okkur
saman heldur er mikil vinátta
milli okkar fjölskyldna.
Við Bravó-menn, ég, Gúi
Ring, Leibbi og Kiddi Guð-
munds höfum hist nokkuð
reglulega á undanförnum árum,
tekið saman lagið, tekið upp lög
og þar var Billi verkstjórinn,
kunni sannarlega vel til verka,
og við félagarnir bara notið
samveru hver annars, miklar
gleðistundir.
En nú hefur stórt skarð
myndast í okkar röðum, skarð
sem verður ekki fyllt.
Elsku Billi, minn góði vinur,
góða ferð í Sumarlandið, við
munum hittast þar seinna og þá
verður aftur talið í einhver
Bítla-, Stóns- og Kinks-lög.
Elsku Emma, Bryndís, Birg-
ir, Benedikt og fjölskyldur. Ég
bið Guð um að veita ykkur
styrk í sorginni við fráfall eig-
inmanns, föður, afa og langafa.
Megi minningin um góðan
dreng gefa okkur öllum styrk á
sorgarstundu.
Takk fyrir, allt elsku vinur.
Sævar Benediktsson.
Stundum á lífsleiðinni mætir
maður einhverjum sem strax
við fyrstu kynni er í huga
manns sem náinn vinur sem
maður getur treyst og tengir
við. Þannig var Billi. Ég kynnt-
ist honum fyrir nokkrum árum
á golfvellinum þegar ég kom
nýr inn í rótgróinn hóp sem
kallar sig Mosana. Billi var allt-
af jákvæður og á vellinum var
hann stöðugt hughreystandi
fyrir okkur félagana þegar
boltinn rataði ekki rétta leið og
stutt í hláturinn og grínið. Billi
hafði líka einstaklega gott lag á
því að sýna öðrum einlægan
áhuga og ég fann að hann lét
sig það varða hvernig aðrir
höfðu það. Mosarnir hafa um
árabil lagt upp í golfferð á Suð-
urlandið síðsumars og tvisvar
fékk ég tækifæri til að vera
með Billa í slíkri ferð og á úr
þeim ferðum dýrmætar minn-
ingar um frábæran félaga sem
gerði gott betra. Alltaf skyldi
hann koma okkur til að hlæja
eða benda á spaugilegu hlið-
arnar og fáir voru betri liðs-
félagar í holukeppni. En svo, án
nokkurs sýnilegs fyrirvara, er
Billi farinn og eftir situr svo
mikið tómarúm og sorg.
Ég veit að við Mosafélagar
eigum eftir að sakna Billa mik-
ið en við munum líka halda á
lofti minningu hans í okkar
hópi og tala oft um þann góða
félaga sem við áttum í honum.
Ég vil votta eiginkonu hans,
börnum og barnabörnum mína
innilegustu samúð. Guð gefi
ykkur huggun í sorginni og
megi minningin um góðan
dreng lifa.
Jóhann Hjaltdal
Þorsteinsson Mosafélagi.
Einstakur öðlingsdrengur
hefur gengið á vit feðra sinna.
Brosandi, hjálpsamur með
spaugsyrði á vörum, alltaf
tilbúinn að leysa hvers manns
vanda og rétta hjálparhönd ef
eftir var leitað.
Hans aðalstarfsvettvangur
var alla tíð í mjólkuriðnaði, en
jafnframt átti hann lengstum
hliðarsamleið með tónlistar-
gyðjunni og lék meðal annars
lengi með Hljómsveit Ingimars
Eydal í Sjallanum en einnig
með ýmsum tónlistarmönnum
þar sem þörf var góðs liðs-
manns.
Á síðari árum sneri hann sér
sífellt meira að ýmsu sem
tengdist tónlist, meðal annars
upptökum og fleiru sem sneri
að frágangi og varðveislu og
síðustu árin eftir að hefðbundn-
um starfsdegi lauk helgaði
hann sig tónlistarkennslu og
þar sem annars staðar var hann
vinsæll og eftirsóttur.
Lífshlaup Brynleifs Halls-
sonar er falleg hljómkviða alls
þess sem er jákvætt og gefandi
og hans mun lengi minnst
vegna einstakra mannkosta og
ljúflyndis.
En nú hefur hurð verið hall-
að að stöfum.
Emmu og afkomendum
þeirra Billa ásamt öllum ætt-
ingjum og vinum eru sendar
hugheilar samúðarkveðjur.
Birna og Björn.
Brynleifur
Hallsson
Okkar yndislega móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSDÍS MAGNEA GUNNLAUGSDÓTTIR,
Laugarvegi 15, Siglufirði,
lést á sjúkrahúsinu á Siglufirði föstudaginn
25. september. Útför fer fram laugardaginn
17. október klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana geta einungis
nánustu aðstandendur og vinir verið viðstaddir. Af þeim sökum
verður athöfninni streymt á slóðinni
https://youtu.be/aLMMWZZPGRg
Kristín Sigurjónsdóttir Gunnar Smári Helgason
Jóhann Sigurjónsson Shirley Sigurjónsson
Herdís Sigurjónsdóttir Erlendur Örn Fjeldsted
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir,
amma og systir,
AUÐUR GÚSTAFSDÓTTIR,
Næfurási 15, Reykjavík,
lést laugardaginn 10. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 19. október klukkan 11.
Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur
og vinir viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni:
https://youtu.be/EGaIjItmutM
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Ljósið.
Natacha Durham Georg Eysteinsson
Dustin Durham Karen Durham
Þórhildur Magnúsdóttir
Gunnlaugur, Hilmar, Eysteinn, Levi og Caroline Audrey