Morgunblaðið - 16.10.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 16.10.2020, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020 ✝ Magnús Jó-hannsson fæddist á Akureyri 10. janúar 1959. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 7. októ- ber 2020, eftir snögg veikindi nóttina áður. Hann var sonur hjónanna Guð- rúnar H. Aspar, f. 2.1. 1922 á Akureyri, húsmóður þar, d. 25.7. 2014, og Jóhanns Júlíusar Kristinssonar, f. 30.7. 1921 í Syðra-Dalsgerði í Djúpa- dal, framkvæmdastjóra á Akur- eyri, d. 21.11. 2004. Þau áttu níu börn, fyrst dóttur sem dó á 1. ári, en síðan átta sem upp kom- ust. Systkin hans eru Kristinn Halldór (látinn), var búsettur á Akureyri, kvæntur Margréti Al- freðsdóttur, Elín Björg býr í Kópavogi, gift Sævari Sæ- mundssyni, Ingunn Þóra býr í Reykjavík, gift Skúla Eggerti Sigurz, Björn býr á Akureyri, kvæntur Sigrúnu Harðardóttur, Jóhann Gunnar býr á Akureyri, kvæntur Rögnu Ósk Ragnars- dóttur, Ásta Hrönn býr á Egils- stöðum, gift Gísla Agnari Bjarnasyni, og Sólveig býr á Byggingarlag húsa var þó þann- ig að ekki hæfði vel hjólastóla- umferð hans um stalla og stiga og lyftuleysi flest árin. Alla tíð fór hann mikið í helgarheim- sóknir heim í Ránargötu og síð- an til systkina einnig, eftir að þau tóku flugið úr hreiðrinu. Systkinafjöldi gerði þessar heimsóknir og ýmsan þvæling mögulegan og var góð tilbreyt- ing og öllum mikil gleði. Maggi undi sér vel á Sólborg innan um marga, bæði vistmenn og gott starfsfólk, og voru áhyggjur af honum er kom að lokun vistheimilisins. Hann flutti í sambýli í Ægisgötu 26 í ársbyrjun 1992. Áhyggjurnar voru þarflausar, þar sem glað- værð hans og nægjusemi, ásamt mjög góðri umönnun allra, pass- aði honum vel. Maggi færði sig síðan inn í Hafnarstræti 16 og var þar síðustu rúma tvo ára- tugi í góðu yfirlæti þess góða starfsfólks sem þar starfar. Hann sótti Hæfingarstöðina í Skógarlundi hvern dag eftir að hún var byggð, en áður Iðju- lund. Útför Magnúsar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 16. október 2020, klukkan 10.30, að viðstaddri nánustu fjölskyldu, en athöfninni streymt á face- booksíðunni: Jarðarfarir í Akur- eyrarkirkju – Beinar útsend- ingar. https://tinyurl.com/y37qr6ay Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á https://www.mbl.is/andlat Akureyri, gift Þresti Axelssyni Vatnsdal. Maggi var næst- yngstur systk- inanna, sem öll ólust upp í húsi foreldra lengst af og þau þrjú yngstu alltaf í Ránargötu 9, húsi tveggja kynslóða, með föðurforeldra á neðri hæð og yngri hjónin á efri hæð með börnin. Hús sem þó ekki endilega var með bestu aðstöðu hvað varðar umgengni og enn síður gott að- gengi fyrir fatlaðan dreng, sem hann var frá fæðingu. Glaðværð, þrautseigja og æðruleysi var hans, hann alltaf kátur innan um aðra á ferð og flugi, en heimilislífið stundum líkara umferðarmiðstöð, vegna fjöldans í húsinu, þar sem margt var í heimili, en að auki gesta- fjöldi og margir vinir sem litu inn, bæði menn og dýr. Þeim mun fleiri, því betra fyrir Magga til að kankast á við og fylgjast með í erli dagsins. Með tilkomu vistheimilisins á Sólborg fékk hann þar vist og naut sín vel í þeim erli sem þar var og staðurinn sístækkandi griðastaður, þá „úti í sveit“. Bróðir og mágur Magnús Jó- hannsson – Maggi/Knúsi – er lát- inn. Þú varst alltaf svo glöggur á raddir og þekktir alla gesti sem komu heim í Rán, jafnvel þótt að- eins kæmi „hæ“ neðan úr forstofu. Þú fylgdist alltaf vel með öllu sem var að gerast í kringum okkur og ljómaðir af gleði þegar að þér var vikið kveðjum. Oft gast þú tekið þátt í leikjum, s.s. að róla og hafðir yndi af því þegar farið var með þig í stólnum þínum í göngutúra, að ekki sé minnst á unaðinn af góðum bíltúr. Það var t.d. mikil ánægja með það þegar ég fór með þig í stólnum þín- um á móti pabba í hádeginu og hann tók þig yfir í bílinn til sín, en ég rölti með stólinn til baka. Þú varst svo mikill gleðigjafi og vonandi getur þú núna hlaupið óheftur í Sumarlandinu, þar sem þú hefur nú sameinast pabba, mömmu og öðrum úr fjölskyld- unni, sem farnir eru á undan þér. Nokkur orð frá Agga mág: Ég kynntist þér á fyrstu jólunum sem ég átti hjá Ástu minni í Rán og allt frá fyrsta augnsambandi vorum við góðir vinir. Alla tíð dáðist ég að dugnaði þínum og þínum jákvæða huga. Bros þín og hlátur voru svo sönn og fölskvalaus. Ég mun sakna þín, en þó fyrst og fremst gleðjast yfir því að hafa notið þess að fá að kynnast þér, elsku Maggi minn. Ásta H. Jóhannsdóttir, Gísli A. Bjarnason. Það er sárt að kveðja hann Magga bróður. Maggi var mikill gleðigjafi, alltaf glaður og bros- andi. Þrátt fyrir að geta lítið tjáð sig með orðum í seinni tíð sögðu augun allt sem segja þurfti. Ég var svo lánsöm þegar hann fæddist að vera á fullkomnum barnapíualdri, átta ára. Á milli okk- ar skapaðist mikil og góð vinátta og væntumþykja. Fyrstu árin keyrð- um við systkinin hann Magga í kerru því ekki var auðvelt að eign- ast hjólastól í þá daga. Aldrei kvartaði Mag’+i þó að hann kæm- ist ekki allt sem við systkinin vor- um að fara, við sögðum einfaldlega „þú getur þetta ekki, Maggi“, svar- ið frá honum var bara „nei“, hvorki rell né grátur. Við Maggi spiluðum mikið löngu-vitleysu og lengd spila- mennskunnar fór eftir því hvaða tíma ég hafði, en Maggi vann alltaf. Þegar ég var komin með bílpróf plataði ég oft Magga til að biðja pabba að lána sér bílinn og tókst honum það alltaf. Þannig fórum við vinkonurnar og Maggi alsæl á rúntinn. Fyrstu árin eftir að ég flutti til Reykjavíkur beið Maggi þolinmóð- ur eftir að koma í heimsókn til mín, en mamma hafði sagt honum að hann gæti ekki heimsótt mig þar sem ég kynni ekki að búa til mat. Það varð til þess að í hvert skipti sem ég kom norður spurði Maggi: „Kanntu að búa til mat núna?“ Glaður varð hann þegar hann loks fékk svarið já. Maggi var með eindæmum vin- margur. Allir og þá meina ég allir sem kynntust honum urðu vinir hans. Það var alveg sama hvort maður var á Lækjartorgi, Kringl- unni, Smáralind eða IKEA; alltaf þekkti einhver Magga. Maggi hafði gaman af að ferðast, jafnt innanlands sem utan, og fór hann t.d. í ógleymanlega ferð til Majorka með starfsstúlk- um úr Hafnarstrætinu. Maggi var lánsamur með starfs- fólk í Hafnarstræti 16, það er leit- un að annarri eins manngæsku og þar er. Allt var gert með virðingu gagnvart honum og hann dekrað- ur út í það óendanlega. Fjölskyldan er stór og allir elsk- uðu Magga. Systkinabörnin dýrk- uðu hann og söknuður þeirra er mikill. Mér er ofarlega í huga þakklæti til allra sem önnuðust Magga og gerðu honum lífið auðveldara. Hvíldu í friði elsku Maggi minn. Ég elska þig. Þín systir, Ingunn (Inga) Þóra. Þá er Magnús bróðir genginn. Þá hefur hann loks losað fjötra sína af sér, þá sem hann fékk í fæð- ingu. Nú gengur hann glaður á móti ljósinu, kátur með sitt eins og alltaf. Hann „Mangús“ eins og við kölluðum hann oft var gleðigjafi allra sem þekktu hann, en það voru afar margir. Það vildu flestir koma inn í „þetta fallega“, sem umvafði hann. Alltaf glaður og þakklátur því sem hann fékk, bæði af vináttu og gleðistundum. Hann var til í allt og gerði líka margt, þar sem mjög margir voru duglegir við að hafa hann með í öllu. Þrátt fyrir fötlun sína sútaði hann það ekki eða kvartaði, en mikið þótti honum gott að geta samsamað sig við aðra í því sem hann gat gert eins. Bara að vera í blárri úlpu frá 66°, eins og ég, eða með vera húfu/trefil eins og einhverjir aðrir og þannig vera hluti af heild. Hvort það var KA eða Þór, það fór eftir þeim sem með honum voru, þá KA með okk- ur Sigga og Þór með Ingu Möggu. Þannig sýndi hann líka sína vin- áttu við sitt umhverfi og vildi með því öllum gott gera. Fjöldi í heimili tveggja fjölskyldna í Rán 9 hæfði honum vel, hjá okkur og „afa og ömmu niðri“, alltaf einhver í hús- inu og oftast einhver að flýta sér að fara eða koma. Foreldrum trú- lega ekki alltaf auðvelt, á hans yngri árum, en það lítt borið á torg og þau þakklát því sem gert var. Þegar aðstæður þar þrengdust og hann varð eldri, fékk hann vist á nýrri Sólborg, á vistheimili þar sem var fjör og nóg um að vera. Síðar þegar rekstri þar var hætt flutti hann í sambýli við færri og þar voru áhyggjur óþarfar, þar sem hann var þakklátur því sem hann fékk og hafði. Á öllum stöð- um fékk Maggi góða umönnun og ber að þakka öllum þeim sem um hann önnuðust, lengst af í Hafn- arstræti 16. Kærar þakkir til alls þessa góða fólks. Helgarheim- sóknir hans til okkar voru fjöl- skyldu minni kærar og þegar okk- ar börn voru flogin úr hreiðrinu sóttust þau eftir að koma, helst öll í heimsókn og þannig fylgdist „Mangús“ með öllum bæði fólki og dýrum. Dóttur okkar þótti einnig mjög vænt um að fá að þjónusta hann sem iðjuþjálfi við búnaðar- útvegun o.fl. Elsku Maggi, hafðu það gott í Sumarlandinu bjarta og berðu bestu kveðjur. Takk fyrir allt og allt. Björn og fjölskyldur. Elsku Maggi okkar, mikið verð- ur skrítið að koma norður og fara ekki beint í Hafnarstrætið og fá knúsið þitt og risastóra brosið með tilheyrandi hljóðum. Þú varst allt- af svo glaður og kátur, nokkuð sem við hin ættum að taka þig til fyrirmyndar með. Það eru forréttindi að hafa fengið að vera í kringum þig frá því við munum eftir okkur eða komum inn í fjölskylduna, það sem þú hefur kennt okkur margt, sem mun fylgja okkur áfram í gegnum lífið. Þú varst svo barn- góður, mikil félagsvera, elskaðir dýr, varst mjög stríðinn og svo má nú ekki gleyma því hvað þú varst kvensamur (híhíhí). Það sem þú afrekaðir í þau rúm 60 ár sem þú lifðir var ótrúlegt. Þú varst nánast til í að prófa allt. Við fórum með þig í tívolí, keyrðum risastóra gröfu, fórum í go-kart þar sem þú klesstir þig og Stjána nánast í dekkjakaf því þú varst svo spenntur að fóturinn á þér sperrt- ist upp og festist á bensíngjöfinni, trylltir um á fjórhjólum þar sem þú varst teipaður fastur við Stjána svo þú dyttir ekki og óhljóðin frá þér voru svo mikil að við vorum mest hrædd um að fólk myndi hringja á lögguna og halda að það væri verið að ræna þér (en þetta voru auðvitað gleðihljóð). En svo var líka ýmislegt sem við gerðum til að stríða þér og þér fannst það nú ekki leiðinlegt þar sem þú gerðir í því að æsa alla upp með stríðninni þinni. Minnisstæð- ast er mér þegar Stjáni sagði við þig að ef þú hættir ekki að kalla hann Stjána bláa myndi hann festa kaðal við stólinn þinn og festa á krókinn á bílnum og keyra með þig í eftirdragi alla leið til Reykjavíkur! Auðvitað kallaðir þú hann aftur og aftur Stjána bláa þangað til hann kom með kaðalinn sem hann festi í stólinn og bílinn og byrjaði að keyra út götuna hjá Ellu frænku, það sem þú hlóst mikið. Síðan þegar Stjáni fór með þig út í háa grasið í Asparlundi og sagði þér að þú mættir ekki láta heyra neitt í þér því hann ætlaði að láta alla leita að þér, fara í feluleik. Auðvitað gegndir þú og allir byrj- uðu að leita en enginn fann þig – Stjána var nú ekki farið að standa á sama og mundi ekkert hvar í grasinu hann hafði falið þig. Hann byrjaði að kalla á þig en auðvitað svaraðir þú ekki því hann var bú- inn að segja að þú mættir ekki láta heyra neitt í þér. Eftir dágóða leit fannst þú og þvílíkur léttir hjá öll- um en auðvitað hlóst þú bara, ha- haha. Svo var líka nóg að prumpa fyr- ir framan þig eða nefna prump, þá bara gastu ekki hætt að hlæja, það sem þér þótti það fyndið. Við gætum talið upp svo margt margt fleira en látum hér við sitja. Elsku Maggi mús, þín verður sárt saknað og við munum aldrei gleyma þér, þú verður alltaf í hjarta okkar. Góða ferð í Draumalandið til ömmu, afa og Kidda Dóra, við vit- um að það verður vel tekið á móti þér. Saknaðarkveðjur, Margrét frænka, Krist- ján (Stjáni), Alexander Ingi, Skúli Eggert, Rúna, Kristjana Rún, Inga Þóra, Patrik Máni og Kristján Darri. Við erum stödd í Ránargötunni, það er laugardagur sem var graut- ardagur hjá ömmu og afa. Inni í eldhúsi er Maggi skælbrosandi með glasið sitt fullt af Cocoa Puffs því það er bara mikið betra en grautur. Þessi minning og aðrar fylla huga minn þessa dagana en Maggi var einstakur og hann bætti svo miklu við líf okkar sem vorum svo lánsöm að fá að fylgja honum í þessu lífi. Hann fékk kannski ekki heppilegasta hulstrið en hann fékk svo sannarlega fal- legustu sálina. Maggi var ekkert að flækja hlutina heldur var hann okkur öllum góð fyrirmynd og kennari. Hans hlutverk hér var að gera lífið fallegra og litríkara. Til að mynda tók hann alltaf fagnandi á móti öllum með bros á vör og þá meina ég með stóru brosi sem náði alla leið til augnanna og auðvitað var faðmlag í kaupbæti. Annað sem einkenndi Magga var að hann sýndi öðrum mikinn áhuga og var alltaf að spyrja um velferð ann- arra en Maggi fylgdist vel með fjölskyldunni sinni og vinum. Svo var nú líka stutt í púkann hjá hon- um og hann til í að gantast og hlæja mikið. Allir sem Magga þekktu vita hversu innilega hann gat hlegið og þá með öllum líkam- anum og það var erfitt að vera ekki glaður þegar maður var með honum. Þó að það eina sem við vitum þegar við fæðumst er að við mun- um kveðja þennan heim þá verður það skrýtið að halda áfram án Magga. Ég vona að við sem eftir erum getum nýtt okkur lífsspeki hans, þ.e. „Taktu öllum fagnandi – sýndu öðrum áhuga – hlæðu inni- lega“ til að gera heiminn betri. Nú ertu farinn á annan stað, Maggi minn, þar sem ég veit að sálin er frjáls. Líf okkar hér verður tómlegra án þín en minningarnar ylja þangað til við hittumst næst, gamli minn. Minning þín er mér ei gleymd, mína sál þú gladdir, innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Jóhanna Mjöll og fjölskylda. Sumar sálir eru einfaldlega fal- legri en aðrar og að öllum öðrum ólöstuðum held ég að þín hafi verið sú allra fallegasta. Því finnst mér þessar línur úr ljóði eftir Þórarin Eldjárn (Óli) lýsa þér og okkur sem þig þekktum svo vel: Það sem heftir þroska þinn efldi minn Allt sem þú gafst mér: þú kynntir mig Sorginni og Voninni og kenndir mér að ekkert er sjálfsagt Þrjú G lýsa þinni ævi best; gleði – glens - grín, því þrátt fyrir allar þínar líkamlegu og andlegu höml- ur fannst manni þú í raun ekki hafa neinar. Þú varst til í að prófa nánast allt, hvort sem það var að leyfa manni að drösla þér í tívolí- tæki, niður rennibrautir, á fjórhól eða hvað sem var. Þú komst líka með á fótboltaleiki Breiðabliks ef okkar maður var að spila fyrir norðan, ekki af því að þú hefðir brennandi áhuga á boltanum held- ur elskaðir þú fólk, líf og fjör og alltaf tilbúinn að vera lukkudýrið okkar. Það sem ungir leikmenn Breiðabliks græddu. Sumir voru aðeins lengur að hætta að vera „feimnir“ við þig en með árunum urðu þeir jafn glaðir að sjá þig og þú þá. Mikið verður skrýtið að fara norður héðan í frá og koma ekki í Hafnarstræti 16 þar sem þú bjóst með dásamlegu heimilisfólki og ekki síðri starfsmönnum. Það að kalla fólkið þitt starfsmenn er í raun ekki rétta orðið … þvílíkir gullmolar sem þar voru og sáu um þig og þína. Þakklæti og forrétt- indi eru mér efst í huga eftir að hafa fengið að kynnast þeim í gegnum þig. Í huga barna minna varstu og verður alltaf aðalfrændinn, mest elskaður og skemmtilegastur. Það er því með miklum trega og sorg en jafnframt þakklæti sem við kveðjum í dag. Takk fyrir allt elsku Maggi mús – elskum þig óendanlega. Berglind, Sigurður (Siggi), Bryndís Kara og Stefán Ingi. Þú varst fljótur að átta þig á því, að ef þú barst þig ekki eftir hlut- unum sjálfur, var minna að fá. Ungur að árum gastu dregið þig milli staða, skellt annarri hendinni upp á borðbrúnina, híft þig upp til að sjá hvað var í boði og svo teygt þig í það. Það veitti ekkert af þess- ari sjálfsbjargarviðleitni, enda 10 munnar og 20 hendur um það sem í boði var á borðinu. Lífið var eng- inn dans á rósum en þó var það þannig að þú hafði lag á því að fá alla í herberginu til að brosa og gast létt lund hjá öllum þeim sem í kringum þig voru. Með árunum stækkaði fjöl- skyldan og hittumst við reglulega á sunnudögum þar sem ýmislegt var brallað, náttúruminjar skoðað- ar í Mývatnssveit eða góður göngutúr tekinn í Eyjafirði í ferska loftinu. Eitt var þó eins og fasti, þú varst alltaf í góðu skapi, tókst á móti okkur með bros í and- liti og spurðir hvað væri að frétta af öllum í fjölskyldunni. Þú varst nefnilega forvitnari en restin af fjölskyldunni samanlagt! Það skipti engu þó Ragga Stína hafði flutt til Danmerkur fyrir mörgum árum, þú þurftir að vita hvað væri að frétta af utanlandsævintýrinu hennar í hvert skipti. Þú vildir vita hvað væri að frétta af Öglu og Njálu og hvar var Egill og hvar var Magga? Þú þurftir að vita hvað væri að frétta af öllum alltaf! Svo var það húmorinn, alltaf fyrstur til að hlæja af bröndurum, þeim mun grófari, þeim mun fyndnari! Svolítill bósi sem fannst ekkert leiðinlegt að láta stjana við þig af fallegum konum. Hvers manns hugljúfi sem dýrkaðir börn og þau þig! Árlegur hittingur í Asparlundi var svo hátindurinn, hitta niðjarnar sem stækkuðu með hverju árinu og þú miðpunkt- ur skemmtunarinnar. Þú gafst okkur öllum svo mikið, en fórst fram á svo lítið! Þú varst gleði- sprengja í hversdagsleikann og þín verður sárt saknað. Minning um frænda Ég man eftir þér sem Maggi mús, Sumir minnast þín sem Maggi knús. Þú sast mér við hlið í aftursæti, Misstir takið, það ei vakti kæti. Flaugst til hliðar og yfir til mín Gunni bróðir þá kallaði til þín „Hertu takið“ og ég aðstoðaði þig Fingurnir gripu handfangið þannig að aldrei takið átti að missa horfðir til mín, ég sá þig flissa Þetta þér fannst gaman og nú skyldi kalla Því bróðir þinn var sko eitthvað að bralla. Svo liðu árin og ég þig gat gripið Upp með annari en þá var klipið Í hálsinn með klónum og öskrað hátt Litli strákurinn sterkur þá hlegið var dátt Ekki ég fékk hjá þér nokkurn afslátt. Forvitinn framar öllu um alla Engan gast hitt nema fram að kalla Hvar er hann þessi og hvar er hann hinn, Ertu viss um að þetta sé bíllinn þinn? Heilu ræðurnar hélst og spurninga flóðið Allt kom frá þér og eins var hljóðið Öllu komst frá þér án þess að reyndi á Við öll orðið skildum hvað þýddi þetta jaááááá! Fyrstur að skilja og fyrstur til að hlæja Húmorinn til staðar hann ekkert náði að bæja Piss og prump og helst smá kúkur Þá var sko öskrað og helst með fullar lúkur Því súkkulaði og sætindi þú dýrkaðir Allir í kringum þig það réttu glaðir Því til baka með brosi þú borgaðir. Fjölskylda Jóhanns Gunnnars Jóhannssonar. Þá ertu farinn, elsku besti kall- inn minn, búinn að skila þínu hlut- verki í þessari jarðvist. Þú leystir það sannarlega vel af hendi, gleði- sporin þín eru mörg. Þig hitti ég fyrst þegar ég fór að venja komur mínar í Ránar- götu 9, þú spurðir af hverju ég væri þarna og ég svaraði að ég væri sko skotin í honum Kidda stóra bróður þínum. Þá gastu hlegið og sagðir oft við mig „Magga skotin“. Þær aðstæður sem þú bjóst við voru með eindæmum góðar. Fjöl- mennt heimili og miklar gesta- komur, auk ömmu og afa á neðri hæðinni. Þarna var komin öll sú þjálfun sem ungur fatlaður dreng- ur þurfti. Hann var þarna á holinu og kallaði bara „tímirðu að tala við mig“ og svona liðu dagarnir þínir. Hvert sem fjölskyldan fór, þá var Magnús með – þín fötlun var aldr- ei vandamál. Þegar þú bjóst á Vistheimilinu Sólborg vorum við svo heppin að ég var að vinna þar, þér þótti nú ekki leiðinlegt að mega sitja hjá mér á skrifstofunni og horfa á allt fólkið sem labbaði þar um. Sér- staklega þegar sætu stelpurnar sem þarna unnu áttu erindi til okkar, þá stækkaði nú brosið tals- vert. Magnús Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.