Morgunblaðið - 16.10.2020, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
Vefverslun brynja.is
Rafmagnsbrýni
11.850 kr.
JIFF-S hnífa- og
skærabrýni 1.995 kr.
TriHone
þriggja steina brýni
6.920 kr.
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Ný sending af vönduðum brýnum
frá Smith‘s - Mikið úrval
Kitc
dem
fyrir
5.110 kr.
hen 2 stiga
antsbrýni
hnífa og skæri
Demantsstál
5.980 kr.
Vasabrýni
2.980 kr.
CCKS einfalt brýni,
gróft, fínt 1.200 kr.
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Rafmagnsbrýni
8.950 kr.
Demantsbrýni
8.520 kr.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er margt að gerast í kringum
þig og þú mátt hafa þig alla/n við að
straumurinn hrífi þig ekki með sér. Veldu af
kostgæfni það sem þú ákveður að trúa á.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér kemur alveg ótrúlega vel saman
við aðra – það er eins og fólk skilji full-
komlega allt sem þú segir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert einbeitt/ur og tilbúin/n til
að hella þér út í vinnu í dag. Settu félaga
þinn inn í málið sem þú vinnur að og biddu
um hans álit.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert í algerlega nýrri aðstöðu
þessa stundina og veist varla hvað snýr
upp og hvað niður. Þú drífur hlutina áfram
á þinn hátt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þetta er góður dagur til þess að
hugsa um vináttuna. Heimurinn liggur allur
fyrir fótum þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hættu að bíða eftir því að aðrir geri
hlutina. Þú vekur aðdáun annarra fyrir fág-
aða framkomu og flottan stíl.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú munt ekki sjá eftir þeirri ákvörðun
þinni að deila sjálfum þér og jafnvel eigum
þínum með þeim sem eru þér kærir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er rétt að huga að ferða-
áætlunum sem hafði verið slegið á frest
eða aflýst. Gefðu þér tíma til þess að dekra
við þig, þú átt það skilið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er nauðsynlegt að taka til-
lit til hagsmuna annarra, þegar mál, sem
margir eiga aðild að, eru til lykta leidd.
Hafðu þetta í huga þegar þú gengur fram á
vettvangi dagsins.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu ekki svo hrædd/ur um til-
finningar þínar, að þú þorir alls ekki að láta
neitt uppi. Þú lendir í rifrildi við nágranna
þína.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt erfitt með að sjá hlutina í
skýru ljósi í dag og því er hætt við ruglingi
og misskilningi. Fólk er tilbúið til að deila
með þér leyndarmálum en þú verður að
gæta trúnaðar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Yfirleitt er það svo að gæska þín og
gjafmildi falla í góðan jarðveg. Allt mun
fara vel að lokum. Taktu lífið ekki of alvar-
lega.
var. „Það var gaman að vera ungur á
þessum tíma. Ég hlustaði mikið á tón-
list eins og öll mín kynslóð, enda Bítl-
arnir og Rolling Stones ekkert slor.“
Kolbeinn er mikill bílaáhugamaður
og hefur séð um viðhald á bílum sín-
um öll árin. Þrátt fyrir það ákvað
hann að breyta um vinnuvettvang.
„Eins og ég hafði gaman af bílum, þá
hentaði það mér ekki vel að vera allt-
af fastur á sama stað.“ Hann fór að
vinna á ýmsum stöðum frá 1971-76,
m.a. hjá Skipasmíðastöð Mars-
ellíusar. „Ég kynntist mörgu góðu
fólki í skipasmíðinni, sem ég er enn í
góðu sambandi við í dag.“
Árið 1977 fór Kolbeinn á náms-
samning í pípulögnum í Stálvík í
Garðabæ og lauk sveinsprófi 1980.
Næstu fimm árin var hann verktaki í
hitaveitulögnum og vann síðan hjá
eldrar hans fluttu til Reykjavíkur
1961 og Laxeldisstöð ríkisins tók við
búinu var hann áfram tvo næstu vet-
urna í Klébergsskóla.
Það voru viðbrigði að flytja til
Reykjavíkur eftir að hafa verið á
Kjalarnesinu þar sem allir þekktu
alla. Kolbeinn gekk einn vetur í Hlíða-
skóla og eignaðist þar góða vini. Næst
fór hann í Gagnfræðaskóla verknáms
í Brautarholti og Ármúla einn vetur
og síðan í Iðnskólann þar sem hann
lærði bifvélavirkjun. „Það var frekar
erfitt atvinnuástand á þessum tíma og
ekki sjálfgefið að komast á samning
alls staðar, en fyrir vinskap komst ég
á samning hjá Kistufellinu árið 1965.“
Á þessum tíma var rúnturinn í há-
marki og Kolbeinn keyrði um á
Chevrolet með sítt krullað hár og í út-
víðum buxum eins og tíska tímans
K
olbeinn Guðmundsson
fæddist 16. október
1950 í Kollafirði á Kjal-
arnesi, en bærinn hafði
verið heimili margra
ættliða. „Það var gaman að alast upp á
Kjalarnesinu. Ég var yngstur okkar
systkinanna og þau hugsuðu alltaf vel
um mig.Nú er ég, sá yngsti, orðinn
sjötugur,“ segir hann og hlær.
Kolbeinn gekk í barnaskólann á
Klébergi, þar sem skólastjórinn og
eini kennari skólans, Ólafur Kr.
Magnússon, réð húsum. „Þarna voru
góðir krakkar og ég var í heimavist,
sem var skemmtilegast af öllu. Ólafur
kenndi okkur öll fögin og hugsaði vel
um okkur. Við tölum ekki um neina
óþekkt, en það var oft mikið fjör.“
Heyra má að Kolbeinn hugsar til skól-
ans með mikilli hlýju og þegar for-
öðrum pípulagningameisturum til
1990, þegar hann ákvað að starfa
sjálfstætt, sem hann hefur gert allar
götur síðan.
Árið 1980 kynntist Kolbeinn konu
sinni Árnýju. „Ég bauð henni í bíltúr
á Bronco-jeppa sem ég átti og hún
var svo hrifin af bílnum að ég held að
ég hafi fengið að fylgja með,“ segir
Kolbeinn og skellihlær. Síðan urðu
bíltúrarnir fleiri og þá var Áslaug, sjö
ára dóttir Árnýjar, með í för. „Við
fluttum fyrst í íbúð Árnýjar í Foss-
vogi en fórum fljótlega í Hraunbæ og
vorum þar í tíu ár. Síðan byggðum við
einbýlishús í Grafarvoginum, þar sem
við búum enn.“
Kolbeinn hefur gaman af hálendis-
ferðum og fer á upphækkuðum jepp-
um í margar ferðir, en upp úr standa
þó alltaf ferðir með fjölskyldunni.
Kolbeinn Guðmundsson pípulagningameistari – 70 ára
Einstaklega
heppinn með
fjölskyldu
Fjölskyldan Frá vinstri: Kolbeinn, Ingólfur, Ólafur, Áslaug, Árný og Helga.
Afi Kolbeinn Hér er
Kolbeinn með barna-
barnið Arnar Bjarka
Þórisson í Herjólfi
á leið til Eyja.
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Una María Óskars-
dóttir fæddist 6. október 2019 kl.
5.42. Hún vó 3.280 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar eru Elísa Björg
Björgvinsdóttir og Óskar Guðbrands-
son.
Nýr borgari
30 ára Darri ólst upp í
Litla-Skerjafirði en býr
núna í gamla Vestur-
bænum. Hann er leikari
og hefur m.a. leikið í
Tjarnarbíói, Hörpu og
Borgarleikhúsinu. Núna
er hann að leika í Borgar-
leikhúsinu í Stúlkunni sem stöðvaði heim-
inn og í Hörpu í Karíusi og Baktusi. Eftir
áramót stígur hann á fjalir Þjóðleikhússins.
Maki: Erna Guðrún Sigurðardóttir, f. 1989,
hugbúnaðarverkfræðingur.
Börn: Kolbeinn Loki, f. 2016, og Kolfinna
Margrét, f. 2019.
Foreldrar: Margrét I. Hallgrímsson, f.
1959, ljósmóðir, og Kristján Eric Krist-
jánsson, f. 1958, smiður.
Kjartan Darri
Kristjánsson
30 ára Fatima ólst
upp á Filippseyjum en
býr núna í Kópavogi.
Fatima er hjúkr-
unarfræðingur og vinn-
ur á lungnadeild á
Landspítalanum. Núna
er búið að breyta deild-
inni í Covid-deild út af ástandinu í þjóð-
félaginu og er Fatima að vinna þar.
Helstu áhugamálin eru ferðalög.
Maki: Gunnar Örn Eggertsson, f. 1983,
námsmaður.
Barn: Jóhann Óskar Gunnarsson, f.
2014.
Foreldrar: Jeremias Abitona Labitigan, f.
1963, bóndi, og Nora Mandia Labitigan f.
1966, húsmóðir. Þau búa á Filippseyjum.
Fatima Mandia
Labitigan