Morgunblaðið - 16.10.2020, Side 34
EM
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Þriðja bylgja kórónuveirufaraldurs-
ins hefur sett undirbúning íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu í
uppnám fyrir leik liðsins gegn Sví-
þjóð í undankeppni EM á Ullevi-
vellinum í Gautaborg í Svíþjóð hinn
27. október næstkomandi.
Íslenska liðið er með 13 stig í öðru
sæti F-riðils undankeppninnar eftir
fimm spilaða leiki, jafn mörg stig og
Svíþjóð, en Svíar hafa skorað fjórum
mörkum meira.
Æfinga- og keppnisbann er á höf-
uðborgarsvæðinu þessa dagana
vegna faraldursins en íslenski lands-
liðshópurinn, sem var kynntur 9.
október síðastliðinn, kemur saman til
æfinga á mánudaginn kemur.
„Það hefur gengið á ýmsu í okkar
undirbúningi og skipulaginu líka,“
sagði Jón Þór í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Við komum saman á
mánudaginn kemur og markmiðið
var að byrja hérna heima fyrst en
það ræðst aðeins af því hvernig fer
með þetta æfinga- og keppnisbann
sem nú er við lýði á höfuðborgar-
svæðinu og hvort því verður aflétt á
mánudaginn.
Ef bannið verður framlengt reyn-
um við að fara fyrr út til Svíþjóðar
með liðið ef við megum ekki og get-
um ekki æft hérna heima. Þetta er
ekki ákjósanleg staða, svo ég sé nú
bara hreinskilinn með það. Í sjálfu
sér hefur þetta ekki mikil áhrif á okk-
ar upplegg í leiknum eða undirbún-
inginn þannig séð en stærsti óvissu-
þátturinn er auðvitað bara hvenær
og hvar liðið getur komið saman.“
KSÍ reynslunni ríkara
Jón Þór ítrekar að það sé að
mörgu að huga fyrir leikinn mik-
ilvæga í Gautaborg.
„Við erum búin að teikna upp
nokkrar sviðsmyndir að því hvernig
við getum gert hlutina ef allt fer á
versta veg. Ein útfærsla er að fara
snemma með liðið til Svíþjóðar, æfa
og undirbúa sig fyrir leikinn þar, en
það gæti líka reynst erfitt upp á flug
og annað með stuttum fyrirvara.
Það hefur gengið á ýmsu hérna
heima að undanförnu, bæði í kring-
um karla- og U21-árs landsliðið, og
verið nóg að gera hjá KSÍ. Á sama
tíma er þetta dýrmæt reynsla sem
sambandið öðlast með þessum uppá-
komum og þetta kennir manni að við
þurfum að vera við öllu búin í því
ástandi sem ríkir í heiminum í dag.
Ef við lendum í smiti eða sóttkví í
Svíþjóð sem dæmi þurfum við að
vera tilbúin að eiga við það og það er
einn liður í undirbúningi okkar fyrir
Svíþjóðarferðina. Það er því að
mörgu að huga og að því leyti er
þetta kannski aðeins frábrugðið hin-
um venjulega keppnisleik.“
Aðeins er um einn leik að ræða í
þessum landsleikjaglugga.
„Við settum verkefnið þannig upp
til að byrja með að hópurinn kæmi
saman 19. október. Við munum hins
vegar ekki kalla þá leikmenn sem
spila erlendis heim fyrir þessar æf-
ingar, einfaldlega vegna flækjustigs-
ins sem það mun skapa og óþarfa
ferðalaga.
Við myndum svo fljúga út á
fimmtudegi eða föstudegi þannig að
við fáum ágætis tíma hérna heima
með þeim leikmönnum sem hér spila,
ef allt gengur að óskum. Þeir leik-
menn sem leika erlendis myndu svo
hitta okkur í Svíþjóð í lok vikunnar.
Það jákvæða við þennan leikja-
glugga er að þetta er bara einn leikur
sem við erum að fara að spila og við
fáum þess vegna mjög góðan tíma til
þess að undirbúa liðið.“
Ekki þungar áhyggjur
Í 23 manna hópi landsliðsins eru 16
leikmenn sem leika á Íslandi en síð-
ast var leikið í efstu deild hérlendis
hinn 4. október. Á meðan er leikið af
fullum krafti í Svíþjóð, Englandi,
Þýskalandi, Ítalíu og Spáni þar sem
leikmenn sænska landsliðsins spila.
„Ég hef í sjálfu sér ekki miklar
áhyggjur af þessu. Auðvitað er það
ekki ákjósanlegt en við erum að klára
tímabilið hérna á Íslandi og þar af
leiðandi eru allir leikmenn í topp-
formi. Ég hefði meiri áhyggjur af
þessu ef við værum að fara inn í
þennan leik að vori til þar sem tíma-
bilið væri að hefjast en það hefur
minna að segja eins og staðan er
núna.
Félögin hérna heima hafa gert
virkilega vel í faraldrinum þegar
kemur að æfingum fyrir sína leik-
menn, bæði einstaklingsmiðuðum
æfingum og hópæfingum. Það eru
þrekþjálfarar í fullu starfi hjá félög-
unum þar sem er haldið vel utan um
allt sem er í gangi og við höfum líka
verið í mjög góðu sambandi við þjálf-
ara liða í deildinni um þessi mál.
Allir leikmenn eru því að æfa af
fullum krafti, þótt það sé ekki verið
að spila fótbolta þessa stundina. Af
því leiðir að við fáum þessa leikmenn
til okkar í mjög góðri æfingu sem er
auðvitað frábært fyrir landsliðið.“
Nýr leikur í Gautaborg
Fyrri leik liðanna á Laugardals-
velli hinn 22. september síðastliðinn
lauk með 1:1-jafntefli þar sem Anna
Anvegård kom Svíum yfir í fyrri hálf-
leik en Elín Metta Jensen jafnaði
metin fyrir Ísland um miðjan seinni
hálfleikinn.
„Við förum inn í þennan leik full
sjálfstrausts eftir mjög góð úrslit hér
heima. Það var fullt af atriðum í þeim
leik sem við gerðum virkilega vel og
markmiðið er auðvitað að byggja of-
an á þau í leiknum úti. Við þurfum að
eiga mjög góðan leik til þess að ná í
úrslit og það er mikilvægt að við ger-
um okkur grein fyrir því að þetta er
nýr leikur sem við erum að fara út í.
Jafntefli gegn Svíþjóð á Laugar-
dalsvelli gefur okkur ekkert í leikn-
um í Svíþjóð og ástæða þess að við
náðum í stig var sú að við undir-
bjuggum okkur virkilega vel og vor-
um mjög einbeitt allan tímann. Við
þurfum því að stilla okkur rétt af
strax í næstu viku og setja fullan fók-
us á erfiðan leik gegn einu af bestu
liðum heims.“
Jón Þór tók við liðinu í október
2018 og viðurkennir að það hafi mikið
gengið á síðan hann tók við.
„Ég gef ekki mikið fyrir tal um að
Svíar hafi ekki verið vel undirbúnir
fyrir leikinn hérna heima. Þeir mæta
með tuttugu manna starfslið til Ís-
lands og öll umgjörð í kringum liðið
er miklu stærri en við eigum að venj-
ast. Mér finnst þess vegna mjög
áhugavert þegar sagt er að þeir hafi
ekki verið undirbúnir en hins vegar
er það alveg rétt að okkur tókst að
koma þeim í opna skjöldu.
Það er eðlilegt enda vorum við
bara búin að spila þrjá landsleiki á
árinu, alla í mars. Síðustu landsleikir
fyrir það voru í október þannig að
auðvitað eru þættir í okkar leik sem
eru óvæntir. Sveindís og Karólína
sem dæmi eru báðar nýliðar í hópn-
um og þess vegna var ekkert sem
gaf Svíum tilefni til þess að undirbúa
sig eitthvað sérstaklega fyrir inn-
komu þeirra.
Svo má ekki gleyma frammistöðu
Dagnýjar Brynjarsdóttur sem var
stórkostleg en þetta var hennar
besti landsleikur í langan tíma. Liðið
er í ákveðinni þróun og hefur verið
það að undanförnu. Markmið okkar
er þess vegna að halda áfram að
bæta og þróa okkar leik eftir því sem
fram líða stundir því eins og ég hef
áður sagt þá hefur gengið á ýmsu frá
því ég tók við liðinu í október 2018.
Við höfum aldrei náð neinum takti
í liðið, því miður, því það hefur ein-
faldlega verið of langt á milli leikja,
bæði vegna faraldursins og svo
vegna annarra stoppa. Við erum
hins vegar bjartsýn núna á að geta
haldið uppi góðum takti og að við
séum loksins komin á fulla ferð ef
svo má segja.“
Allir leikir úrslitaleikir
Íslenska liðið er í vænlegri stöðu í
öðru sæti F-riðils undankeppninnar
en sigur í Gautaborg myndi fara
langleiðina með að tryggja efsta sæti
riðilsins.
„Við erum komin á þann stað í
riðlinum núna að við eigum þrjá leiki
eftir. Markmiðið er og hefur alltaf
verið að fara til Englands í loka-
keppnina en við eigum þrjá úrslita-
leiki eftir. Þú færð þrjú stig fyrir sig-
ur og við þurfum öll þau stig sem í
boði eru til þess að ná ætlunarverk-
inu.
Þessi leikur er ekki hinn einstaki
úrslitaleikur ef við horfum á stóru
myndina því við þurfum að vinna
bæði Ungverja og Slóvaka til þess að
komast áfram í lokakeppnina. Ef við
ætlum okkur hins vegar að vinna rið-
ilinn þurfum við að leggja Svía að
velli og það má þess vegna líta á
þetta sem úrslitaleik upp á það að
gera.
Við megum hins vegar ekki fara
fram úr okkur og fyrsta markmiðið
er að halda áfram þróun liðsins og
svo sjáum við bara til að endingu
hvert það skilar okkur.“
Gengið á ýmsu frá því
þjálfarinn tók til starfa
Jón Þór Hauksson undirbýr kvennalandsliðið fyrir úrslitaleik í Gautaborg
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Elín Metta Jensen, Sveindís Jane Jónsdóttir, Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir fagna marki Elínar gegn Svíum.
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 2020
Bandaríkin
Orlando – New York City....................... 1:1
Guðmundur Þórarinsson lék allan leik-
inn með New York sem er í sjötta sæti
Austurdeildar MLS.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 1. umferð:
Düren – Bayern München ....................... 0:3
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Porto – Pick Szeged............................ 25:19
Stefán Rafn Sigurmannsson lék ekki
með Pick Szeged.
París SG – Elverum ............................. 35:29
Vardar Skopje – Flensburg................. 31:26
Flensburg 6 stig, Kielce 6, Meshkov
Brest 4, Porto 4, Elverum 2, París SG 2,
Vardar Skopje 2, Pick Szeged 0.
Þýskaland
RN Löwen – Leipzig ........................... 23:28
Alexander Petersson skoraði ekki fyrir
Löwen en Ýmir Örn Gíslason 1.
Ludwigshafen – Magdeburg.............. 22:28
Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson lék ekki með.
Bergischer – Wetzlar.......................... 20:22
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 2 mörk
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson lék
ekki með. .
Füchse Berlín – Hannover-Burgdorf. 31:27
Efstu lið: Leipzig 7 stig, Flensburg 6,
Magdeburg 6, Wetzlar 6, RN Löwen 6,
Bergischer 6, Fücshe Berlín 5.
Danmörk
Skjern – Tvis Holstebro...................... 37:31
Elvar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir
Skjern.
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 1 mark
fyrir Tvis Holstebro.
Efstu lið: Aalborg 15, GOG 12, Mors 11,
Skjern 11, Tvis Holstebro 10, Bjerringbro/
Silkeborg 10, Skanderborg 9, SønderjyskE
9, Kolding 8.
Svíþjóð
Boden – Lugi ........................................ 21:26
Markvörðurinn Hafdís Renötudóttir
leikur með Lugi.
Frakkland
B-deild:
Dijon – Nice.......................................... 30:26
Grétar Ari Guðjónsson varði 6 skot í
marki Nice og var með 29% markvörslu.
Skjern vann Holsterbro í markaleik
í efstu deild danska handboltans í
gær 37:31. Með sigrinum fór Skjern
upp fyrir Holsterbro og er með 11
stig en Holsterbro 10 stig í 5. sæti.
Álaborg er í efsta sæti með 15
stig, GOG með 12 stig og Mors-Thy
með 11 eins og Skjern.
Elvar Örn Jónsson skoraði þrjú
mörk fyrir Skjern og Óðinn Þór
Ríkharðsson 1 mark fyrir Hol-
sterbro. Gamli refurinn Anders
Eggert í vinstra horninu hjá Skjern
virðist eiga nóg eftir og var marka-
hæstur með 10 mörk.
68 marka leikur
í Danmörku
Ljósmynd/Robert Spasovski
3 mörk Selfyssingurinn Elvar Örn
Jónsson leikur með Skjern.
ESPN fullyrðir að ítalska knatt-
spyrnufélagið Juventus ætli að
leggja fram tilboð í franska sókn-
armanninn Kylian Mbappé næsta
sumar.
Útlit er fyrir að slegist verði um
franska heimsmeistarann sem er
aðeins 21 árs gamall en fyrir löngu
orðinn fastamaður í franska lands-
liðinu. Real Madrid og Liverpool
eru einnig sögð afar áhugasöm.
Margar franskar stjörnur hafa
leikið með Juve. Nægir þar að
nefna Michel Platini, Zinedine Zid-
ane og Paul Pogba.
Juve ætlar sér
að ná Mbappé
AFP
Eftirsóttur Kylian Mbappe mun
færa sig um set næst sumar. Fullyrt er í nýrri bók að knatt-
spyrnumaðurinn Lionel Messi hafi
íhugað sterklega að ganga til liðs við
Chelsea árið 2014. Í samningi Messi
var klausa sem myndi leyfa honum að
fara ef eitthvert félag væri tilbúið að
greiða vissa upphæð sem getið var um
í samningi. Á þessu ári var sú upphæð
stjarnfræðilega há. Upphæðin var öllu
lægri í þeim samningi sem var í gildi
árið 2014. Chelsea var tilbúið að
greiða þessa upphæð og þá var lítið
sem Barcelona gat gert en að bíða
átekta.
Gianluca Di Marzio ritaði bókina en
hann starfar fyrir Sky Sports á Ítalíu.
Fullyrðir hann að José Mourinho hafi
sannfært Lionel Messi um að koma til
Chelsea eftir að tilboðið var lagt fram.
Er fundur Mourinho og Messi sagður
hafa farið fram í gegnum fjar-
fundabúnað.
Á þessum tíma var mál í gangi fyrir
dómstólum á Spáni gegn Messi vegna
skattsvika. Messi er sagður hafa sam-
þykkt munnlega að ganga til liðs við
Chelsea eftir fundinn með Mourinho
en hafi síðar hætt við. Talið er að faðir
hans og umboðsmaður hafi verið á
móti því að Messi færi til Chelsea. Di
Marzio segir einnig að Messi hafi ráð-
fært sig við Portúgalann Deco.
Eitt
ogannað