Morgunblaðið - 20.11.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2020
und tonn af mjöli í pokum. Grunnur
og gólf er steypt og síðan kemur
reisulegt stálgrindarhús með 10
metra lofthæð upp í mæni.
Nýtt kælikerfi í Hoffellið
Undanfarnar sex vikur hefur Hof-
fellið, uppsjávarskip Loðnuvinnsl-
unnar, verið í slipp í Þórshöfn í Fær-
eyjum. Stærsta verkefnið var að
skipta um kælikerfi, úr freoni yfir í
ammoníak í takt við tímann og
reglugerðir.
Skipið var í gær á leið á síldar-
miðin vestur af landinu og væntan-
lega kemst reynsla á nýja kælikerfið
þegar íslensk sumargotssíld verður
komin í tankana.
koma honum upp á hafnarbakkann.
Þrír öflugir kranar voru notaðir við
verkið, sem gekk vel, og nýttu menn
sér reynslu frá því að sams konar
þurrkari kom til landsins fyrir fjór-
um árum.
Gömlu þurrkararnir voru keyptir
notaðir þegar bræðslan tók til starfa
1996 og eru þeir orðnir rúmlega 40
ára og viðhaldsfrekir. Þeir hafa ver-
ið seldir til Marokkó. Þurrkflötur
gömlu þurrkaranna var samanlagt
400 fermetrar, en þess nýja 690 fer-
metrar.
Þá er verið að byggja mjöl-
skemmu við austurgafl fiskimjöls-
verksmiðjunnar. Hún verður 700
fermetrar og tekur rúmlega tvö þús-
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Talsverðar framkvæmdir hafa und-
anfarið staðið yfir hjá Loðnuvinnsl-
unni á Fáskrúðsfirði. Nýr þurrkari í
fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins
kom til landsins í vikunni með flutn-
ingaskipinu Sun Rio, sem tekur tvo
eldri þurrkara með til baka. Þá er
unnið að því að reisa nýja mjöl-
geymslu og er áætlaður kostnaður
við þurrkarann og skemmuna hátt í
400 milljónir, samkvæmt upplýs-
ingum Friðriks Mars Guðmunds-
sonar, framkvæmdastjóra LVF.
Nýi þurrkarinn vegur 100 tonn og
var talsvert umstang samfara því að
Morgunblaðið/Albert Kemp
Tilfæringar Þrír öflugir kranar komu að því að hífa nýja þurrkarann úr flutningaskipinu og í land á Fáskrúðsfirði.
Nýr 100 tonna þurrkari
Endurnýjun í fiskimjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar á
Fáskrúðsfirði Framkvæmt fyrir hátt í 400 milljónir króna
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Magn af útfluttum óunnum fiski í
gámum nam á síðasta ári um helm-
ingi þess magns sem fór í gegnum
fiskmarkaði á árunum 2018 og
2019. Þessi útflutningur jókst tals-
vert þessi ár, en árið 2017 var
magnið talsvert minna. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í
skýrslu um út-
flutning á óunn-
um fiski í gám-
um, sem Sjávar-
útvegsmiðstöð
Háskólans á Ak-
ureyri hefur unn-
ið.
Skýrslan var
kynnt á fundi at-
vinnuveganefnd-
ar Alþingis í
gærmorgun og
er hluti af ítarlegum svörum fimm
ráðuneyta við spurningum atvinnu-
veganefndar síðasta haust.
Mikilvægt samspil
Fram kemur í svari ráðuneyt-
anna að framboð á fiskmörkuðum
hefur ekki breyst að neinu ráði á
síðastliðnum þremur árum þótt
magn útflutnings á óunnum fiski
hafi aukist. Í skýrslunni segir að
eins og staðan sé í dag sé varla
hætta á að fiskvinnsla flytji úr
landi í stórum stíl en sala óunnins
fisks hafi þó vissulega aukist veru-
lega.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, for-
maður atvinnuveganefndar, segir
að svör hafi fengist við ýmsum
spurningum um umfang þessa út-
flutnings. Á næstunni verði fulltrú-
ar ýmissa hagsmunaaðila kallaðir á
fund nefndarinnar og nefnir hún
Alþýðusamband Íslands, Lands-
samband smábátaeigenda, fulltrúa
fiskmarkaða og fiskútflytjenda án
útgerða.
„Megináhyggjuefnið er þessi
stóraukni útflutningur og að fyrir-
tæki á höfuðborgarsvæðinu séu
komin til sögunnar, án þess að
tengjast fiskvinnslu eða útgerð og
gera gagngert út á það að kaupa á
mörkuðum til þess að flytja út
óunninn fisk til vinnslu erlendis.
Þar á meðal er land eins og Pólland
þar sem laun eru miklu lægri en á
Íslandi, en á þennan hátt flyst
verðmætasköpunin úr landi,“ segir
Lilja Rafney.
Fiskvinnslum gæti fækkað
Hún segir að fiskur sem fari
beint í gáma sé ekki boðinn upp á
fiskmörkuðum. Lilja segist hafa
áhyggjur af stöðu fiskmarkaða,
minni útgerðum sem treysti á
markaðina og fiskvinnslufyrirtækj-
um sem þurfi að geta reitt sig á
framboð á fiskmörkuðum til að
geta haldið uppi starfsemi allan
ársins hring.
„Þetta samspil er mikilvægt og
ef einhverjar stoðir bresta getur
það haft áhrif víða. Þá er það líka
áhyggjuefni ef rétt verð skilar sér
ekki til sjómanna þegar landað er
yfir bryggju og fiskur er síðan
seldur á allt öðru verði til þriðja að-
ila,“ segir Lilja Rafney.
Í heildina hefur framboð á fisk-
mörkuðum ekki minnkað, en árin
2017-2019 var það um 100 þúsund
tonn. Útflutningur á óunnum fiski
sem keyptur er á mörkuðum tvö-
faldaðist á milli áranna 2017 og
2019. „Með minnkandi framboði á
fiski hvort sem það er í beinum við-
skiptum eða kaupum á fiskmarkaði
má reikna með að fiskvinnslum
fækki,“ segir í skýrslunni.
Umboðsfyrirtæki kaupa fisk
Í skýrslu sjávarútvegssviðs Há-
skólans á Akureyri segir meðal
annars: „Í heildina hefur framboð á
fiskmörkuðum ekki breyst að ráði á
árunum 2017-2019 en magn útflutts
óunnins fisks hefur aukist og mesta
aukningin er á þeim fiski sem er
seldur beint af markaði og í beinum
viðskiptum en fer a.m.k. að ein-
hverju leyti í gegnum greiðslukerfi
fiskmarkaða. Þau fyrirtæki sem
kaupa á markaði og eru í beinum
viðskiptum eru flest ekki með fisk-
vinnslu heldur eru umboðsfyrirtæki
sem kaupa fisk og flytja út.
Þau ásamt stærstu fiskvinnslu-
fyrirtækjunum eru flest staðsett á
höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesj-
um. Það sem vekur athygli er að
fiski sem þessi fyrirtæki kaupa er
oftar en ekki landað á Vestfjörðum
og á Vesturlandi. Umboðsfyrirtæk-
in eru einnig þau fyrirtæki sem
kaupa mest í beinum viðskiptum
við útgerð. Viðhorf forsvarsmanna
fiskvinnslna voru meðal annars þau
að ef aðgengi að hráefni yrði
minnkað myndi það hafa slæm
áhrif á fiskvinnslur, þeim myndi
fækka og rekstrarumhverfi yrði
ótryggara.“
Talsverð aukning í ár
Einnig voru lagðar fyrir fund at-
vinnuveganefndar í gær upplýsing-
ar frá Landssambandi smábátaeig-
enda um útflutning á heilum fiski í
ár, byggt á tölum Hagstofunnar.
Þar kemur fram að til loka sept-
ember í ár höfðu verið flutt út tæp
12 þúsund tonn af þorski og hafði
magnið aukist um 80% á milli ára,
en verðmæti um 85% og nam yfir
fimm milljörðum.
Hefur áhrif víða ef stoðir bresta
Áhyggjur af auknum útflutningi á óunnum fiski Varla hætta á að fiskvinnsla flytji úr landi í stórum
stíl Atvinnuveganefnd Alþingis fjallar um svör fimm ráðuneyta Talsverð aukning á þessu ári
Útfl utningur á ferskum, óunnum fi ski
Þúsundir tonna, 2002-2019
31
41
50 52 50
55
65
56
37
29 29
26 23
27
34 33
49 49
Heimild: Skýrsla Sjávarútvegs-
miðstöðvar Háskólans á Akureyri
'02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19
E X P O R T
70
60
50
40
30
20
10
0
Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson
Bræla Komið til hafnar í Grindavík.
Lilja Rafney
Magnúsdóttir
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Gjafakort Einstökjólagjöf
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is