Morgunblaðið - 20.11.2020, Side 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2020
30 ára Elín ólst upp í
Vesturbænum og í Graf-
arvogi. Elín er tónlist-
arkona, betur þekkt
undir nafninu Elín Ey.
Elín hefur notað tímann
á þessum undarlegu
Covid-tímum og verið
að semja og vinna tónlist í stúdíói undan-
farið og er að vinna að tveimur plötum.
Svo er hún nýbúin að taka upp jólalag,
það fyrsta sem hún hefur gert á ferlinum.
Maki: Ragnheiður Guðmundsdóttir, f.
1985, meistaranemi í markaðsfræði.
Barn: Jón Mói, f. 2019.
Foreldrar: Ellen Kristjánsdóttir, f. 1959,
söngkona og Eyþór Gunnarsson, f. 1961,
tónlistarmaður. Þau búa í Árbænum.
Elín
Eyþórsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það sem þú kallar dekur finnst
öðrum nauðsynlegt viðhald. Leitaðu að-
stoðar ef þú þarft. Sinntu viðgerðum og
endurbótum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú gætir freistast til að rífast við
einhvern því þú ert þess fullviss að þú haf-
ir rétt fyrir þér. Gættu þess að fæla fólk
ekki frá þér vegna stífni þinnar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sýndu maka og nánum vinum
sérstaka tillitssemi í dag. Gott er að
vingast við aðra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú þarft ekkert að fyrirverða þig
fyrir tilfinningar þínar, ef þær eru sannar
og án sársauka fyrir aðra. Taktu tillit til
annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Lífið leikur við þig þessa dagana og
rómantíkin blómstrar. Leggðu áherslu á að
þér líði sem best og þeim sem í kringum
þig eru.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér væri fyrir bestu að gera lista
yfir þau verk sem þú hefur trassað. Njóttu
velgengni þinnar því ekkert varir að eilífu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt eftir að koma þér í klípu. Ekki
harka af þér, betra er að ræða hlutina og
fá útrás þannig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það sem áður virtist ósköp
auðvelt, er nú óvinnandi verk. Farðu var-
lega í allri samningagerð. Einföld áætlun
með fáu fólki er óskastaðan.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samræður innan fjölskyld-
unnar verða þýðingarmeiri núna og á
næstu vikum en oft áður. Gefðu öðrum
nægt pláss og leyfi til að vera eins og þeir
eru.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þig langar til að öðlast dýpri
þekkingu á málefnum sem þú hefur vana-
lega engan áhuga á. Gríptu tækifærið,
taktu málið í þínar hendur og fylgdu því
fram til sigurs.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leggðu þitt af mörkum svo
samstarf gangi áfallalaust fyrir sig. Allir
eru glaðir, hressir og jákvæðir, líka þú.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft ekki að taka heiðurinn af
því sem þú gerir vel, en það væri frábært
ef þú gerðir það. Mundu að allt vald er
vandmeðfarið.
Netkirkjan
„Fritz var prestur í Noregi um
tíma og þar kynntist hann netkirkj-
unni, Nettkirken, og fær þá þessa
hugmynd að það væri mikilvægt að
koma á fót svona þjónustu á Íslandi.
Eftir gott samtal ákveðum við að slá
til. Í samvinnu við norsku netkirkj-
una byrjum við að móta og forma net-
kirkju hérna heima og höfum verið að
byrjuðu saman árið 2009. Hún segir
að þau hafi fylgst að og þróast saman,
bæði í námi og í trúnni. Díana lauk
mag.theol.-prófi úr Guðfræðideild HÍ
árið 2013 og tók síðan auka-
meistaragráðu innan sálgæslusviðs
auk þess að bæta við sig tveimur
gráðum innan Félagsráðgjafadeildar
og fór síðan í doktorsnámið í félags-
ráðgjöf, sem hún er á síðustu metr-
unum með í dag.
D
íana Ósk Óskarsdóttir
fæddist á Ísafirði 20.
nóvember 1970.
„Mamma og pabbi
kynnast á Súg-
andafirði. Níu mánaða fer ég til Siglu-
fjarðar með mömmu.“ Það var mikið
rót á Díönu í æsku og var hún hálfan
vetur í Laugarnesskóla, Austurbæj-
arskóla og Breiðholtsskóla en annars
í barnaskóla Siglufjarðar. Þetta rót
og önnur áföll gerðu það að verkum
að ellefu ára var hún tætt og reitt
barn. Við tóku róstusöm unglingsár.
„Ég fór að heiman og varð götu-
unglingur í einhverja mánuði og fór á
unglingaheimilið í Kópavogi tólf ára.“
Þetta var erfiður tími, Díana í upp-
reisn og tók það út á sjálfri sér með
neyslu áfengis og vímuefna. Sextán
ára lendir hún í áfalli sem verður til
þess að hún leitar sér hjálpar. Næstu
sjö árin litast af baráttu við fíknina.
Átján ára eignast hún frumburðinn
sem hefur mikil og góð áhrif á hana.
22ja ára kemst Díana á beinu braut-
ina. „Frá þeim tíma hefur velgengnin
stigmagnast í mínu lífi. Ég fór í tólf
spora samtök og fann mína leið og hef
lifað samkvæmt tólf spora kerfinu
síðan.“
Fann barnatrúna aftur
Díana kynntist trú þegar hún var
lítil á Siglufirði. Í áföstu húsi við
hennar bjuggu trúboðar. Þau voru
með sunnudagaskóla sem Díana sótti
mikið í. „Í tólf spora samfélaginu er
talað um æðri mátt, eins og maður
skilur hann. Það tók sinn tíma en ég
náði að tengjast mínu trúarlega sjálfi
sem ég hafði mótað í sunnudagaskól-
anum sem barn og hef haldið áfram
að þróa og þroska.“
Díana vissi strax að hún myndi
vilja hjálpa öðrum. „Fyrstu skrefin
eru að ég fór að styðja konur í mikilli
neyslu og voru að missa börnin sín frá
sér. Síðan var mér boðin vinna á Teigi
og þar átta ég mig á mikilvægi þess
að styðja fólk með faglegum hætti.“ Í
starfinu sér hún hversu margir nýta
sér trú sem bjargráð. „Ekki endilega
kristna trú, heldur bara trú yfirhöf-
uð.“ Þar kviknaði áhuginn á að
mennta sig meira í sálgæslu.
Hún kynntist eiginmanni sínum,
Fritz Má, í guðfræðideildinni og þau
sinna henni síðan.“ Nú eru ekki allir
sem vita hvað netkirkja er, en hug-
myndin er sú að fólk geti haft sam-
band í gegnum forrit á netinu og ver-
ið alveg ópersónugreinanlegt. „Fólk
sem t.d. býr við ofbeldi í litlu sam-
félagi á mjög erfitt með að leita sér
aðstoðar. Aðstæður geta verið við-
kvæmar og við reynum að styðja fólk
til þess að ná sér í það hugrekki sem
þarf, svo það geti stigið út úr skömm-
inni og fundið lausn.“ Netkirkjan er í
stöðugri þróun og Díana segir að þau
séu vinna við að þróa fleiri möguleika
fyrir fólk sem býr við mikla ein-
angrun eins og raunin hefur verið í
Covid-faraldrinum.
Í byrjun árs 2018 byrjaði Díana
Ósk sem sjúkrahúsprestur á Land-
spítalanum og sem handleiðari. „Ég
hef verið að vinna sem handleiðari frá
því ég var í náminu og er að skrifa
doktorsritgerðina um handleiðslu svo
hún er mér mjög hugleikin.“
Díana er mikið náttúrubarn og
reynir að komast á hverju sumri til
Siglufjarðar og sjá Hólshyrnuna, sem
er jú eitt fallegasta fjall landsins. „Ég
elska að vera úti að leika mér. Ég fer í
göngutúra, í frisbígolf, príla á fjöll og
svo er ég týpan sem rífur fólk út til að
fara að gera skemmtilega hluti. Svo
finnst mér líka dásamlegt að vera ein
úti í náttúrunni og hugleiða. Ég nær-
Díana Ósk Óskarsdóttir sjúkrahúsprestur og handleiðari – 50 ára
Brúðkaup Það var mikill gleðidagur þegar Díana og Fritz giftu sig. Með
þeim á myndinni eru Þorri og Jara og fyrir aftan sést í Ara, elsta son Fritz.
Trúin er mitt haldreipi alla daga
Á tónleikum Á köldu ágústkvöldi á tónleikum með Ed Sheeran sumarið
2019, fyrir tíma Covid. Frá vinstri: Fritz, Amanda, Díana Ósk og Sunneva.
Presturinn Díana að gifta í heima-
húsi á Covid-tímum með grímu.
Til hamingju með daginn
Akureyri 27. febrúar 2020 fæddust
tvíburarnir Vilhjálmur Kristinn
Andrésson og Alda Björt Andrés-
dóttir. Vilhjálmur Kristinn vó 2.650 g
og var 47 cm að lengd. Alda Björt vó
1.788 g og var 43 cm löng. Foreldrar
þeirra eru Andrés Vilhjálmsson og
Helga Sif Eiðsdóttir.
Nýr borgari
30 ára Gyða ólst upp
í vesturbæ Reykjavík-
ur en býr núna í
Garðabænum. Hún er
lögfræðingur og starf-
ar nú sem saksóknar-
fulltrúi hjá lögreglu-
stjóranum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Maki: Aron Ferrua Teitsson, f. 1989,
húsasmiður og starfar hjá John Lindsay
hf.
Sonur: Matthías, f. 2017.
Foreldrar: Helga Ragnheiður Ottós-
dóttir, f. 1957, hjúkrunarfræðingur og
Stefán S. Guðjónsson, f. 1957, viðskipta-
fræðingur og forstjóri John Lindsay hf.
Þau eru búsett í Reykjavík.
Gyða Ragnheiður
Stefánsdóttir