Morgunblaðið - 20.11.2020, Page 34
LANDSLIÐIÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Óvíst er að Ari Freyr Skúlason, leik-
maður íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu og Oostende í Belgíu,
muni leika fleiri landsleiki fyrir Ís-
lands hönd.
Bakvörðurinn öflugi var í byrj-
unarliði íslenska liðsins sem tapaði
4:0 fyrir Englandi í Þjóðadeild
UEFA á Wembley-leikvanginum í
London í fyrradag.
Ari, sem er 33 ára gamall, lék sinn
77. landsleik gegn Englandi en hann
lék sinn fyrsta landsleik árið 2009 og
var í lykilhlutverki þegar Lars Lag-
erbäck stýrði liðinu frá 2011 til árs-
ins 2016.
„Það gæti bara vel verið að ég hafi
verið að spila minn síðasta landsleik
en á sama tíma þá er ég ekki tilbúinn
að koma með neinar yfirlýsingar
þannig að við sjáum bara hvað set-
ur,“ sagði Ari Freyr í samtali við
Morgunblaðið.
Leikmaðurinn átti erfitt með að
fela vonbrigði sín eftir tapið á Wem-
bley á miðvikudaginn og segir að
leikjaálagið í ár hafi gert liðinu erfitt
fyrir í Þjóðadeildinni.
„Maður er alltaf vonsvikinn þegar
maður tapar en þessi Ungverja-
leikur sat mikið í öllum enda var
markmiðið númer eitt, tvö og þrjú að
komast á EM og við vorum ansi ná-
lægt því. Þessi þriggja landsleikja
gluggi er náttúrlega algjört kjaftæði
enda erum við að tala um þrjá lands-
leiki á sjö dögum og ofan á það bæt-
ast ferðalög á milli landa.
Menn haldast ekki heilir á milli
leikja, við erum að breyta liðinu
hægri vinstri og þannig hefur þetta
verið í Þjóðadeildinni í ár. Englend-
ingar, Belgar og Danir eru allir með
sitt sterkasta lið á meðan við erum
að keyra á nokkrum ungum strákum
og leikmönnum sem hafa ekki verið
að spila mikið í gegnum tíðina. Það
er því alveg óhætt að segja að þetta
sé brekka enda alls ekkert auðvelt
að mæta sterkustu knattspyrnu-
þjóðum heims með sundurslitið lið.“
Grunnurinn að góðu gengi
Svíinn Erik Hamrén lét af störf-
um sem þjálfari íslenska liðsins eftir
Englandsleikinn og telur Ari að
hann hafi fengið óverðskuldaða
gagnrýni fyrir gengi liðsins.
„Við vorum svo gott sem meiðsla-
lausir í sjö ár þegar Lars Lagerbäck
og Heimir Hallgrímsson voru með
liðið og gátum þess vegna alltaf spil-
að á sama liðinu allan tímann. Það er
auðvelt að gagnrýna þegar menn
þurfa að fara að breyta og beygja út
af vananum ef svo má segja. Við
fáum 19 stig í undankeppni EM sem
er einu stigi minna en Lars náði í. Sú
gagnrýni sem Erik Hamrén og
Freyr Alexandersson hafa fengið er
algjörlega óverðskulduð að mínu
mati enda báðir miklir toppmenn og
þjálfarar.
Allir þjálfarar landsliðsins sem ég
hef unnið með í gegnum tíðina hafa
verið ólíkir og nálgun þeirra hefur
verið mismunandi. Fyrir mér er það
hins vegar alltaf Lars Lagerbäck
sem er númer eitt. Hann er þvílíkt
toppeintak og kom mér inn í þetta á
sínum tíma. Hann hjálpaði mér mik-
ið og skólaði mig til ef svo má segja.
Það hugarfar sem hefur verið
ríkjandi innan landsliðsins er honum
að þakka og hann breytti því al-
gjörlega þegar hann tók við liðinu.
Hann er grunnurinn að öllu þessu
góða gengi undanfarin ár.“
Uppbygging sem tekur tíma
Eftir slæmt gengi í Þjóðadeildinni
undanfarin tvö tímabil hafa sumir
knattspyrnumenn kallað eftir ákveð-
inni endurnýjun í íslenska liðinu.
„Núna er það mikið í umræðunni
að það eigi að skipta út þessum
gömlu körlum og ef það er almennur
vilji fyrir því þá er það bara þannig.
Fólk þarf hins vegar að átta sig á því
að það mun taka tíma að ætla byggja
upp svipaðan árangur og átt hefur
sér stað undanfarin sjö ár. Hvort
þeir sem vilja fá gömlu karlana í
burtu séu tilbúnir að bíða eftir því
skal látið ósagt.
Það er eitt að spila einhvern fínan
fótbolta með félagsliðinu sínu því
það þýðir ekki að þú sért að fara að
gera það með landsliðinu. Landsliðið
snýst um vilja, dugnað og að vinna
hver fyrir annan og það hefur haldið
okkur gangandi undanfarin ár. Við
erum með frábæra og hæfileikaríka
leikmenn sem hafa unnið leiki fyrir
okkur upp á sitt eindæmi en þeir
hafa alltaf skilað sínu og unnið sína
vinnu fyrir landsliðið.“
Efniviðurinn til staðar
Ari ítrekar að framtíðin sé björt í
íslenskum fótbolta en að ungir leik-
menn þurfti tíma til þess að aðlagast
landsliðsumhverfinu.
„Við eigum fullt af efnilegum leik-
mönnum eins og Albert Guðmunds-
son, Arnór Sigurðsson, Andra Fann-
ar Baldursson, Svein Aron
Guðjohnsen og Jón Dag Þor-
steinsson svo einhverjir séu nefndir.
Þetta eru allt flottir fótboltamenn
eins og Ísak Bergmann Jóhannesson
en Ísak er sem dæmi ekki að fara að
vera okkar stjörnuleikmaður eftir
eitt ár enda bara sautján ára gamall.
Hann þarf sinn tíma og það má ekki
rífa hann of fljótt inn í hópinn.
Svo er líka spurningin hvað næsti
þjálfari vill, hvað hann ætlar sér að
gera og hver stefna KSÍ er í þessu
öllu saman. Mín skoðun er sú að það
þurfi að fá þessa ungu stráka inn
hægt og rólega í stað þess að henda
þeim beint út í djúpu laugina. Þeir
þurfa að læra hvað íslenska lands-
liðið stendur fyrir en framtíðin er
klárlega spennandi og jafnframt
krefjandi líka fyrir íslenskan fót-
bolta.“
Sigurmark í uppbótartíma
Bakvörðurinn hefur gengið í
gegnum skin og skúrir með landslið-
inu og á erfitt með að fanga eitt
augnblik sem stendur upp úr á
landsliðferlinum.
„Árangurinn undanfarin ár hefur í
raun verið algjörlega lygilegur og
þetta segir manni bara hversu langt
er hægt að ná ef trúin, viljinn og ís-
lenska hjartað er til staðar. Það er
erfitt að taka eitthvað eitt eða ein-
hvern einn hlut út. Fyrir mér hafa
síðustu átta ár verið algjörlega stór-
kostleg og besti fótbolti lífs míns ef
svo má segja.
Þetta hafa verið frábærir tímar,
geggjað lið og svo auðvitað bara allt
fólkið í kringum þetta batterí. Ef ég
þarf að velja á milli sigursins gegn
Austurríki og Englandi á EM 2016 í
Frakklandi þá verð ég eiginlega að
segja Austurríki. Við vorum að
reyna að kreista fram jafntefli, skor-
um sigurmark í uppbótartíma og það
var algjörlega geggjað,“ bætti Ari
Freyr við í samtali við Morgun-
blaðið.
Þurfa að læra fyrir hvað
íslenska landsliðið stendur
Ari Freyr Skúlason íhugar framtíð sína með landsliðinu eftir 77 landsleiki
AFP
Svekktur Bakvörðurinn Ari Freyr Skúlason lék sinn fyrsta landsleik gegn Íran í Teheran í nóvember 2009.
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2020
Meistaradeild kvenna
2. umferð:
Gintra - Vålerenga .................................. 0:7
Ingibjörg Sigurðardóttir lék fyrstu 46
mínúturnar fyrir Vålerenga.
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Vardar Skopje – Kielce ...................... 29:33
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö
mörk fyrir Kielce. Haukur Þrastarson er
meiddur.
B-RIÐILL:
Kiel – Barcelona .................................. 26:32
Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyr-
ir Barcelona.
Þýskaland
Erlangen – Balingen........................... 32:34
Oddur Gretarsson skoraði níu mörk fyr-
ir Balingen.
Nordhorn – Göppingen....................... 20:29
Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk
fyrir Göppingen.
Danmörk
Tvis Holstebro – Ribe-Esbjerg .......... 30:24
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði tvö mörk
fyrir Tvis Holstebro.
Rúnar Kárason skoraði átta mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson tvö
og Daníel Þór Ingason ekkert.
Skjern – SönderjyskE......................... 22:26
Elvar Örn Jónsson skoraði þrjú mörk
fyrir Skjern.
Sveinn Jóhannsson skoraði ekkert mark
fyrir SönderjyskE.
Svíþjóð
Alingsås – Aranäs................................ 18:29
Aron Dagur Pálsson skoraði þrjú mörk
fyrir Alingsås.
Evrópubikarinn
Andorra – Antwerpen ........................ 82:69
Haukur Helgi Pálsson var ekki í leik-
mannahópi Andorra.
Tveir leikir fóru fram í Meist-
aradeild karla í handknattleik í
gærkvöldi og voru Íslendingar í
báðum sigurliðunum.
Aron Pálmarsson skoraði þrjú
mörk fyrir spænska stórliðið Barce-
lona sem vann 32:26-sigur á hans
gömlu félögum í Kiel í Þýskalandi.
Barcelona er á toppi B-riðilsins með
fullt hús stiga eftir sex leiki.
Þá skoraði Sigvaldi Guðjónsson
tvö mörk fyrir Kielce frá Póllandi
sem vann Vardar Skopje í Make-
dóníu, 33:29. Kielce er á toppi A-
riðilsins með 11 stig eftir sjö leiki.
Barcelona
óstöðvandi
Ljósmynd/Barcelona
Sigurganga Aron og félagar vinna
og vinna í Meistaradeildinni.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís-
landsmeistari í golfi úr Keili, náði
sínum besta árangri á Evrópu-
mótaröð kvenna frá upphafi er hún
varð jöfn í 39. sæti á The Saudi La-
dies Team International-mótinu í
Sádi-Arabíu í gær.
Guðrún Brá lék þriðja og síðasta
hringinn í gær á einu höggi yfir
pari vallarins, 73 talsins, en lauk
keppni á alls þremur höggum yfir.
Hún lék fyrsta hringinn á þremur
höggum undir en fataðist svo flugið
á öðrum degi, lék á fimm höggum
yfir pari.
Besti árangur
Guðrúnar
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Árangur Guðrún hafði áður náð 57.
sæti í Tékklandi fyrr á þessu ári.
Grindvíkingurinn Jón Axel Guð-
mundsson gaf kost á sér í nýliðavali
NBA-deildarinnar í körfuknattleik en
var ekki valinn. Hann fundaði með
nokkrum NBA-liðum sem sýndu hon-
um áhuga síðasta vor en Jón var
ágætlega kynntur í körfuboltaríkinu
Norður-Karólínu og víðar eftir fram-
göngu sína með Davidson. Sérstak-
lega eftir að hafa verið valinn leik-
maður ársins í A10-deildinni árið 2019.
Atvinnumannsferill Jóns er hafinn en
hann leikur með Fraport í Þýskalandi.
Minnesota Timberwolves átti fyrsta
valrétt í nýliðavalinu og valdi Anthony
Edwards, 19 ára gamlan skotbakvörð
sem kemur úr Georgía skólanum.
Breiðabliki varð ekki ágengt í mála-
rekstrinum vegna leiksins gegn Val í
upphafi Íslandsmótsins í körfuknatt-
leik í haust. Breiðablik vann þá óvænt-
an sigur á deildarmeisturum Vals í úr-
valsdeild kvenna. Blikar tefldu hins
vegar fram leikmanni sem hafði verið
úrskurðuð í leikbann undir lok síðasta
tímabils en liðlega hálft ár hafði liðið
frá því tímabilinu var aflýst síðasta
vetur.
KKÍ sneri við úrslitum leiksins og
dæmdi Val sigur en sektaði auk þess
Breiðablik um 250 þúsund.
Breiðablik kærði niðurstöðu KKÍ til
aga- og úrskurðarnefndar. Hún úr-
skurðaði í málinu í gær og komst að
þeirri niðurstöðu að úrslitin stæðu.
Eitt
ogannað