Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 35

Morgunblaðið - 05.12.2020, Síða 35
Nýlega lauk 5. fundi 19. miðstjórnarþings kínverska kommún- istaflokksins og var af- rakstur fundarins 14. fimm ára áætlunin (2021-2025) varðandi efnahagslega og þjóð- félagslega þróun og langtímamarkmið allt til ársins 2035. Þetta markar leiðina að þróun Kína næstu fimm árin og lýsir framtíðarsýninni næstu 15 ár- in. Fimm ára áætlanir eru mikilvæg leið fyrir kínverska kommúnistaflokk- inn að stefnumörkun og stjórnun landsins, en eru einnig gagnlegar fyr- ir umheiminn til að skilja efnahags- lega og þjóðfélagslega þróun Kína. Árið 2020 er síðasta árið sem 13. fimm ára áætlunin gildir. Á því ári mun Kína hafa lokið við að byggja upp velmegandi þjóðfélag á öllum sviðum og mun hafa náð að útrýma sárri fá- tækt. Árið 2021 mun Kína halda áfram inn í nýtt þróunarskeið og stefna að því að byggja upp nútíma- legt sósíalískt samfélag á öllum svið- um. 14. fimm ára áætlunin setur Kína þróunarmarkmið á sex nýjum sviðum: ný markmið í efnahagslegri þróun, ný skref í umbótum og opnun landsins, nýja og endurbætta siðmenningu, ný viðmið til uppbyggingar vistvænnar þróunar, nýjar umbætur í velmegun fyrir almenning og nýjar aðferðir í bættri skilvirkri stjórnsýslu. Á árinu 2035 mun Kína hafa náð því að nú- tímavæða hið sósíalíska þjóðfélag. Efnahagur Kína og sameiginlegur tæknilegur styrkur þjóðarinnar mun hafa aukist umtalsvert. Miklar fram- farir munu hafa orðið í mikilvægri kjarnatækni. Nútímalegur efnahagur mun verða fullmótaður. Nútímavæð- ing kínverska kerfisins og nútíma- stjórnun mun hafa náð að festa sig í sessi. Hinn mjúki menningarstyrkur Kína mun hafa vaxið enn meira. Vistvænar leiðir í leik og starfi munu hafa náð fótfestu og einkenna allt sam- félagið. Opnunin mun hafa náð nýjum hæðum og landsframleiðsla á mann mun hafa náð meðaltali landsfram- leiðslu þróaðra ríkja. Fólk mun lifa betra lífi. Samkvæmt áætl- uninni mun Kína vinna að frekari þróun með innlenda dreifingu í forgrunni, þar sem alþjóðleg dreifikerfi og innlend munu vinna saman, styrkja hvort ann- að og ýta undir hágæða þróun. Hið nýja þróunarviðmið mun gera Kína kleift að nýta eigin markaðsmögu- leika til fullnustu og skapa aukna eft- irspurn í öðrum ríkjum. Landsfram- leiðsla á mann hefur nú þegar farið yfir 10.000 bandaríkjadali og sá hópur sem hefur miðlungstekjur er nú yfir 400 milljón manns. Á sama tíma og efnahagur Kína batnar vill almenn- ingur að sjálfsögðu lifa enn betra lífi. Þetta mun skapa meiri eftirspurn eft- ir fjölbreyttari hágæða framleiðslu og tæknivöru ásamt aukinni þjónustu frá öllum heimshornum. Þrátt fyrir þann skaða sem Covid-19-faraldurinn hefur valdið, standa grunnstoðirnar undir hinum stöðuga langtíma efnahags- vexti Kína enn óbreyttar. Á þessu ári mun landsframleiðsla fara yfir 100 trilljón RMB Yuan (14,5 trilljón bandaríkjadalir), og er búist við að Kína verði eina stóra hagkerfið í heiminum til að vaxa árið 2020. Í lok tímabils 14. fimm ára áætlunarinnar er búist við að efnahagur Kína muni hafa náð því stigi sem nú einkennir hálaunalönd. Það er einnig raunhæfur möguleiki að landsframleiðsla og tekjur á íbúa í Kína muni hafa náð að tvöfaldast árið 2035. Samkvæmt áætluninni mun Kína hraða og auka opnunina kröftuglega og deila þróunartækifærum með öðr- um löndum veraldar. Kína mun byggja upp opið hagkerfi með háum gæðaviðmiðum og styðja við aukið viðskipta- og fjárfestinga- frelsi og innviði sem því tengjast. Kína mun endurbæta kerfið sem snýr að erlendri fjárfestingu og fjárfestinga- stýringu, sem byggist á að erlend fyrirtæki standi jafnfætis innlendum fyrirtækjum á þeim sviðum þar sem Kína leyfir alþjóðlegar fjárfestingar (negative list). Kína mun opna upp þjónustugeirann með skipulögðum hætti og vernda réttindi erlendra fjár- festa ásamt því að bæta lagaumhverfi og stuðning við fjárfestingar erlendis. Kína mun halda áfram að hámarka umhverfið í kringum leiðandi fríversl- unarsvæði og auka veg mikilvægra heimssýninga, eins og t.d. Alþjóðlegu innflutningssýningarinnar í Kína. Kína mun áfram halda sig við þá stefnu sem felst í sameiginlegri ráð- gjöf, samvinnu og sameiginlegum ávinningi, leita eftir opinni, grænni samvinnu og samvinnu í hágæðaverk- efninu Belti og Braut. Þar sem við horfum fram á veginn til aukinnar opnunar, breiðari mark- aða, aukinnar nýsköpunar og sterkari þróunarsveigjanleika í Kína, mun Kína færa samstarfi og sameiginlegri þróun Kína og Íslands fleiri tækifæri. Bæði löndin njóta bjartrar framtíðar í samstarfi á sviði hreinnar orku, líf- tækni, rafrænna samskipta, skipa- smíða og stafræns hagkerfis. Á árinu 2021 munum við fagna 50 ára sögu diplómatískrar samvinnu milli Kína og Íslands. Kína er reiðubúið til að vinna með Íslandi að sameiginlegum tækifærum, þróun og styðja við fjöl- þjóðahyggjuna og grunngildi Samein- uðu þjóðanna í viðbrögðum við áskor- anir vegna loftslagsbreytinga og skapa samfélag með sameiginlegri framtíð fyrir mannkyn allt. Ný þróunaráætlun Kína færir heimsbyggðinni ný tækifæri Eftir Jin Zhijian » Þar sem við horfum fram á veginn til aukinnar opnunar, breiðari markaða, auk- innar nýsköpunar og sterkari þróunarsveigj- anleika í Kína, mun Kína færa samstarfi og sameiginlegri þróun Kína og Íslands fleiri tækifæri. Jin Zhijian Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Árið 2000 lagði Páll Pétursson, þá- verandi félagsmálaráðherra, fram frumvarp til nýrra laga um fæð- ingaorlof fyrir hönd ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Hin nýja löggjöf kvað á um að hvert foreldri ætti rétt á þriggja mánaða or- lofi en þremur mánuðum gætu for- eldrar skipt að vild. Löggjöfin vakti þegar alþjóðaathygli fyrir jafna skipt- ingu orlofsréttar milli foreldra, en ekkert land hafði á þeim tíma stigið slíkt skref þó algengt væri að veita feðrum ákveðinn óframseljanlegan rétt. Íslenskir feður nýttu strax rétt sinn til orlofs, yfir 90% feðra tóku orlof í að meðaltali um þrjá mánuði. Þetta hef- ur ekki breyst á 20 ára tímabili, mæð- ur taka að jafnaði um sex mánuði en feður sína þrjá. Feður juku þátttöku í umönnun barna og bilið milli feðra og mæðra varðandi atvinnuþátttöku og vinnutíma dróst saman, þó enn muni mjög miklu á stöðu feðra og mæðra. Feðrum reynist erfitt að semja um meira rými til þátttöku en hinn sjálf- stæði réttur þeirra veitir þeim, en það er í takt við það sem gerst hefur í ná- grannalöndum, taka feðra er almennt í réttu hlutfalli við rétt þeirra. Nýlegt dæmi frá Noregi sýnir þetta glögg- lega. Árið 2014 ákváðu Norðmenn að auka „frelsi foreldra“ til að ákveða sjálfir hvernig þeir höguðu orlofi og styttu óframseljanlegan rétt feðra um fjórar vikur í því skyni. Umsvifalaust dró úr töku feðra og ljósi þeirrar reynslu ákváðu Norðmenn að endur- reisa réttinn til fyrra horfs og frá 2018 hefur hann verið 15-19 vikur. Í kjöl- farið hafa feður aftur aukið töku or- lofs. Nú eru 20 ár síðan tímamótalög- gjöfin var sett og löngu orðið tíma- bært að lengja fæðingarorlofið. Á síð- asta ári var fæðingarorlof hvors foreldris lengt í fjóra mánuði og sam- eiginlegi rétturinn styttur úr þremur í tvo mánuði. Tölur yfir nýtingu orlofs- ins fyrstu 10 mánuði ársins 2020 sýna að feður hafa aukið orlofstöku sína talsvert í kjölfarið, sem sé nýtt lengd- an rétt sinn. Nú hefur ríkisstjórn sömu flokka og lögðu til tímamótalög- gjöfina árið 2000, ásamt Vinstri hreyf- ingunni – grænu framboði, lagt fram frumvarp um að hvort foreldri fái einn mánuð til viðbótar við sjálf- stæðan rétt sem yrði þá fimm mán- uðir fyrir hvort foreldri og til viðbótar komi einn framseljanlegur mánuður. Miðað við reynslu síðustu tveggja áratuga má leiða líkur að því slík til- högun þýði að mæður muni í flestum tilvikum taka sjö mánaða orlof og feð- ur fimm mánuði. Þegar tekið er skref í stefnumörk- un í þá átt sem hér hefur verið rakið kemur ekki á óvart að heyrist raddir sem kalla eftir auknu „frelsi“. En eins og hér hefur verið rakið sýnir reynsl- an að vegna m.a. fastmótaðra hug- mynda um hlutverk kynjanna og ólíkra væntinga til feðra og mæðra varðandi vinnumarkaðsþátttöku þá þýðir „frelsið“ í raun að mæður myndu taka stærstan hluta af slíku sameiginlegu orlofi. Það er því mikil- vægt að löggjafinn tryggi rétt barna til umönnunar beggja foreldra með sem jafnastri skiptingu orlofsréttind- anna. Löggjafinn verður að skapa báðum foreldrum sömu tækifæri til að setja fjölskyldugildi ofar launa- vinnu og möguleika á að gera rækt við tilfinningatengsl og þroska barna hærra undir höfði en tekjuöflun og starfsframa. Það kemur heldur ekki á óvart að áherslum mæðrahyggju bregði fyrir í umræðunni. Jafnvel er gengið svo langt að halda því fram að lenging orlofsins muni hafa neikvæð áhrif á brjóstagjöf, sem stenst illa skoðun. Þá má greina í umræðunni ótta við að mæður tapi ákveðinni ein- okandi valdastöðu sem aðalforeldri og vantraust á getu feðra til að annast börn sín. Hugmyndir um að þrískipta orlofinu (4+4+4) styðja einmitt við slíkt líkan þar sem mæður tækju átta mánuði en feður yrðu í hlutverki auka- eða varaforeldis og tækju fjóra mánuði. Reynsla af íslensku fæðingarorlofi hefur kennt okkur að ekki þarf að hafa áhyggjur af frammistöðu ís- lenskra feðra, þeir hafa á síðast- liðnum 20 árum, nýtt sinn sjálfstæða rétt til fæðingarorlofs og tekið æ virk- ari þátt í uppeldi barna sinna. Þá hef- ur komið í ljós að eftir að lögin tóku gildi fækkaði skilnuðum. Á sama tíma hefur innleiðing sameiginlegrar for- sjár ásamt aukinni fræðslu og stuðn- ingi við foreldra til áframhaldandi for- eldrasamstarfs eftir skilnað síðustu áratugi átt drjúgan þátt í því að draga úr neikvæðum áhrifum skilnaða á börn. Eitt nýjasta úrræðið á því sviði er danska verkefnið SES, Samvinna eftir skilnað – barnanna vegna. Það er nú innleitt til reynslu á Íslandi á veg- um félags- og barnamálaráðherra, þess sama sem er flutningsmaður þesssa nýja frumvarps um fæðing- arorlof. Ástæða er til að fagna frumvarpinu sem er liður í fjölskyldustefnu sem leggur áherslu á tengslamyndun barns við báða foreldra og aukinn jöfnuð kynjanna. Með foreldrajafn- rétti í þágu barna eru barni tryggðar samvistir og náin tengsl við báða for- eldra. Um leið er stuðlað að jafnari stöðu foreldra á atvinnumarkaði. Með því er bæði konum og körlum gert kleift að samræma fjölskyldu- og at- vinnulíf sem er mikilvægt fyrir vel- ferð barna. Það markmið er í sam- ræmi við áherslur ályktunar Alþingis um fjölskyldustefnu frá 1997 þar sem segir að ein af meginforsendum fjöl- skyldustefnu skuli vera „að velferð fjölskyldunnar byggist á jafnrétti karla og kvenna og sameiginlegri ábyrgð á verkaskiptingu innan henn- ar“. Við getum ekki veitt börnum betra veganesti en öflug tengsl við báða foreldra í frumbernsku. Eftir Guðnýju Björk Eydal, Ingólf V. Gíslason og Sigrúnu Júlíusdóttur » Ástæða er til að fagna frumvarpi til laga um fæðingarorlof sem er liður í fjöl- skyldustefnu sem legg- ur áherslu á tengsla- myndun barns við báða foreldra og aukinn jöfn- uð kynjanna. Guðný Björk Eydal Höfundar eru prófessorar við Háskóla Íslands, Guðný og Sigrún í félagsráðgjöf og Ingólfur í félagsfræði. Ingólfur V. Gíslason Sigrún Júlíusdóttir Fæðingarorlof og foreldraábyrgð: Að tryggja börnum umönnun beggja foreldra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.