Morgunblaðið - 05.12.2020, Side 54
54 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 2020
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins og mbl.is er staða Jóns
Þórs Haukssonar, landsliðsþjálfara
kvenna í knattspyrnu, orðin erfið
gagnvart landsliðskonunum. Heim-
ildarmenn lýsa samskiptum Jóns
Þórs við leikmenn sem mjög óvið-
eigandi þegar hópurinn fagnaði
sætinu á EM í vikunni. Jón Þór hafi
undir áhrifum áfengis látið niðr-
andi ummælli falla um leikmenn
sem sneru að getu þeirra á vell-
inum. Hægt er að lesa meira um
málið á mbl.is en málið er til skoð-
unar hjá KSÍ. bjarnih@mbl.is
Staða þjálfar-
ans orðin erfið
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfarinn Jón Þór Hauksson,
landsliðsþjálfari kvenna.
Kári Jónsson, landsliðsmaður í
körfuknattleik, er genginn til liðs
við Girona sem er í Katalóníu og
leikur í b-deildinni á Spáni. Kári
var samningsbundinn Haukum en
gat fengið sig lausan ef tilboð kæmi
að utan.
Marc Gasol sem gekk í raðir LA
Lakers á dögunum er forseti fé-
lagsins. Hann tók þátt í að stofna
félagið árið 2014 og fyrst var þar
einungis yngri flokka starfsemi. Þá
bar félagið nafn kappans en var síð-
ar skýrt Girona. Meistaraflokksliði
var komið á 2017.
Kári Jónsson
til Katalóníu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Girona Kári verður ekki í búningi
Hauka þegar keppni hefst á ný.
ið 2008. Mér fannst þess vegna sjálf-
sagt mál að stíga til hliðar og leyfa
öðrum að taka við keflinu. Þú þarft
að vera tilbúin að fara alla leið og
leggja allt í sölurnar þegar þú spilar
fyrir land og þjóð.“
Ákvörðun þjálfarans
Eins og Rakel bendir sjálf á hefur
hún ekki átt fast sæti í liðinu að und-
anförnu.
„Auðvitað vill maður alltaf spila
en á sama tíma þá virðir maður allt-
af ákvarðnir þjálfarans. Þú ert með
23 leikmenn í hópnum sem vilja allir
spila en þetta snýst fyrst og fremst
um að sýna sig og sanna og reyna að
koma sér þannig inn í liðið.
Í sannleika sagt þá hefur áhuginn
aðeins farið dvínandi og drifkraft-
urinn sem maður hafði hefur minnk-
að. Einu sinni snerist allt um að vera
geggjuð í fótbolta en það hefur að-
eins breyst og ég er farin að pæla í
öðrum hlutum líka.“
Rakel á eitt ár eftir af samningi
sínum við Breiðablik og stefnir á að
taka slaginn með liðinu á komandi
keppnistímabili.
„Hvenær ég hætti alveg í fótbolta
er bara eitthvað sem þarf að koma í
ljós. Mér fannst mjög gaman að
spila með Breiðabliki í sumar, þetta
er flottur hópur þarna og þjálfarinn
alveg geggjaður. Núna tekur við
langþráð jólafrí hjá manni sem mað-
ur er búinn að bíða eftir ansi lengi.
Ég ætla þess vegna að njóta þess
að vera í fríi áður en maður fer að
pæla í næsta sumri. Ég er samn-
ingsbundin Breiðabliki og þeir vilja
halda mér þannig að stefnan er að
spila með liðinu næsta sumar eins
og staðan er í dag.
Skrítið tímabil
Miðjukonan varð Íslandsmeistari
með Breiðabliki í annað sinn í lok
október eftir að ákveðið var að
hætta keppni á Íslandsmótinu.
„Þetta ár var mjög skrítið og það
var stórfurðulegt að mæta ekki á
fótboltaæfingar á hverjum degi.
Maður vissi ekkert hvenær maður
mætti mæta á æfingar og maður
fylgdi þess vegna bara prógrami frá
sjúkraþjálfaranum í Breiðabliki. Það
var sérstakt að fá ekki að hitta liðs-
félagana sem var öðruvísi líka og
maður hafði klárlega meiri frítíma
en venjulega.
Maður datt í smá sumarfrísgír,
eitthvað sem maður hefur aldrei
fengið að upplifa, og ég get alveg
viðurkennt það að síðasta keppn-
istímabil var langt frá því að hafa
verið eitthvað sérstaklega skemmti-
legt. Ég er eflaust ekki ein um þá
skoðun en vonandi breytist þetta
eitthvað á næstu mánuðum og við
fáum að æfa undir eðlilegum kring-
umstæðum.
Þá kemst maður vonandi í góðan
gír en það verður gott að núllstilla
sig aðeins í desember eftir þetta ár,“
bætti Rakel við í samtali við Morg-
unblaðið.
Sjálfsagt mál að leyfa
öðrum að taka við keflinu
Rakel Hönnudóttir hefur lagt landsliðsskóna á hilluna eftir tæplega 13 ára feril
Morgunblaðið/Eggert
Tækling Rakel gaf aldrei tommu eftir í þeim 103 landsleikjum sem hún lék með íslenska kvennalandsliðinu.
Rakel Hönnudóttir
» Fæddist 30. desember
1988.
» Uppalin hjá Þór/KA á Akur-
eyri og lék sinn fyrsta meist-
araflokksleik með liðinu árið
2006.
» Hefur leikið með Þór/KA og
Breiðabliki hér á landi.
» Íslandsmeistari með Breiða-
bliki 2015 og 2020.
» Bikarmeistari með Breiða-
bliki 2013 og 2016.
» Lék með Bröndby í Dan-
mörku, Limhamn Bunkeflo í
Svíþjóð og Reading á Englandi
á atvinnumannaferli sínum.
» Á að baki 103 A-landsleiki
og er níunda leikjahæst ásamt
Eddu Garðarsdóttur.
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Mér fannst þetta vera góður tíma-
punktur að skilja við liðið,“ sagði
knattspyrnukonan Rakel Hönnu-
dóttir, leikmaður Breiðabliks í úr-
valsdeild kvenna, í samtali við
Morgunblaðið en hún ákvað að
leggja landsliðsskóna á hilluna í
gær.
Rakel, sem er 31 árs gömul, á að
baki 103 A-landsleiki fyrir Ísland
þar sem hún hefur skorað þrjú mörk
en hún er níunda leikjahæsta lands-
liðskona Íslands frá upphafi ásamt
Eddu Garðarsdóttur.
Rakel var í íslenska landsliðs-
hópnum sem mætti Slóvakíu í Senec
og Ungverjalandi í Búdapest í loka-
leikjum sínum í undankeppni EM á
dögunum.
Ísland vann báða leikina og
tryggði sér sæti í lokakeppni Evr-
ópumótsins fjórða skiptið í röð en
mótið fer fram á Englandi sumarið
2022. Til stóð að mótið færi fram
næsta sumar en því var frestað
vegna kórónuveirunnar.
Rakel hefur farið á þrjú Evr-
ópumót með íslenska liðinu og íhug-
aði alvarlega að taka slaginn á fjórða
stórmótinu í röð.
Of langur tími
„Ég var búin að ákveða að leggja
landsliðsskóna á hilluna fyrir ein-
hverju síðan. Það er engin ein
ástæða sem trompar aðra og það er í
raun ekkert sem býr að baki þessari
ákvörðun. Mér fannst þetta bara
komið gott ef svo má segja, sér-
staklega eftir að ákveðið var að
fresta lokakeppni EM um eitt ár.
Ef mótinu hefði ekki verið frestað
þá er ég nokkuð viss um að ég hefði
tekið eitt ár í viðbót með liðinu en
mér fannst tvö ár einfaldlega of
langur tími. Vissulega hefði verið
gaman að fara á fjórða stórmótið
með landsliðinu en af því verður
ekki,“ bætti Rakel við en hún á að
baki 215 leiki í efstu deild með upp-
eldisfélagi sínu Þór/KA og Breiða-
bliki þar sem hún hefur skorað 125
mörk.
Rakel lék sinn fyrsta landsleik
gegn Póllandi á Algarve-mótinu í
Portúgal í mars árið 2008, þá 19 ára
gömul, en hún er fædd í lok desem-
ber.
„Mitt hlutverk í landsliðinu hefur
minnkað með árunum en ég hef
samt sem áður alltaf verið klár þeg-
ar kallið kemur. Ég hef alltaf viljað
spila og gert allt sem ég get til þess
að hjálpa liðinu. Á sama tíma hefur
áhugi minn aðeins minnkað líka.
Ég fann ekki fyrir sama kraft-
inum og viljanum og þegar ég var að
stíga mín fyrstu skref með liðinu ár-
Þýskaland
Hertha Berlín - Union Berlín.................. 3:1
Staðan:
Bayern München 9 7 1 1 31:13 22
RB Leipzig 9 6 2 1 18:6 20
Leverkusen 9 5 4 0 16:9 19
Dortmund 9 6 0 3 21:9 18
Wolfsburg 9 4 5 0 14:8 17
Union Berlin 10 4 4 2 22:14 16
Mönchengladbach 9 4 3 2 17:14 15
Augsburg 9 3 3 3 11:12 12
E. Frankfurt 9 2 6 1 14:16 12
Stuttgart 9 2 5 2 17:15 11
Hertha Berlín 10 3 2 5 18:19 11
Werder Bremen 9 2 5 2 13:15 11
Hoffenheim 9 2 3 4 15:16 9
Freiburg 9 1 4 4 10:20 7
Köln 9 1 3 5 10:15 6
Mainz 9 1 2 6 11:22 5
Arminia Bielefeld 9 1 1 7 6:19 4
Schalke 9 0 3 6 6:28 3
B-deild:
Düsseldorf - Darmstadt .......................... 3:2
Guðlaugur Victor Pálsson lék ekki með
Darmstadt vegna meiðsla.
Spánn
Athletic Bilbao – Celta Vigo .................... 0:2
Staðan:
Real Sociedad 11 7 3 1 22:5 24
Atlético Madrid 9 7 2 0 19:2 23
Villarreal 11 5 5 1 15:11 20
Real Madrid 10 5 2 3 16:12 17
Sevilla 9 5 1 3 12:8 16
Cádiz 11 4 3 4 9:12 15
Barcelona 9 4 2 3 19:9 14
Granada 10 4 2 4 11:17 14
Athletic Bilbao 11 4 1 6 12:12 13
Elche 9 3 4 2 9:10 13
Getafe 10 3 4 3 9:10 13
Eibar 11 3 4 4 8:9 13
Alavés 11 3 4 4 11:13 13
Celta de Vigo 12 3 4 5 13:20 13
Valencia 11 3 3 5 17:17 12
Real Betis 11 4 0 7 12:23 12
Osasuna 10 3 2 5 8:13 11
Real Valladolid 11 2 4 5 11:16 10
Levante 10 1 5 4 10:15 8
Huesca 11 0 7 4 8:17 7
Frakkland
Nimes - Marseille ..................................... 0:2
Staðan:
París SG 12 8 1 3 30:8 25
Marseille 11 7 3 1 17:9 24
Lille 12 6 5 1 22:8 23
Lyon 12 6 5 1 21:10 23
Mónakó 12 7 2 3 23:16 23
Montpellier 12 7 2 3 21:16 23
Rennes 12 5 4 3 19:16 19
Angers 12 6 1 5 18:22 19
Lens 11 5 3 3 17:18 18
Brest 12 6 0 6 21:23 18
Nice 11 5 2 4 16:15 17
Metz 12 4 4 4 12:11 16
Bordeaux 12 4 4 4 12:13 16
Nantes 12 3 4 5 14:18 13
Saint-Étienne 12 3 2 7 12:20 11
Nîmes 13 3 2 8 11:24 11
Reims 12 2 3 7 16:22 9
Lorient 12 2 2 8 12:22 8
Strasbourg 12 2 1 9 14:24 7
Dijon 12 1 4 7 8:21 7
Danmörk
OB - AaB ................................................... 2:1
Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á eftir
78 mínútur hjá OB og jafnaði leikinn mín-
útu síðar. Aron Elís Þrándarson var ekki í
leikmannahópnum.
Staðan:
Brøndby 10 7 0 3 21:14 21
Midtjylland 10 6 2 2 17:12 20
SønderjyskE 10 5 3 2 18:13 18
Nordsjælland 10 4 4 2 20:13 16
AaB 11 4 4 3 12:13 16
AGF 10 4 3 3 18:14 15
Vejle 10 4 2 4 17:19 14
OB 11 4 2 5 16:18 14
Randers 10 4 1 5 14:11 13
København 10 4 1 5 18:20 13
Horsens 10 1 3 6 8:18 6
Lyngby 10 0 3 7 10:24 3
EM kvenna í Danmörku
A-riðill:
Frakkland - Svartfjallaland................. 24:23
Danmörk - Slóvenía.............................. 30:23
C-riðill:
Ungverjaland - Króatía ....................... 22:24
Þýskaland
B-deild:
Gummersbach - Eisenach................... 33:24
Elliði Snær Viðarsson skoraði 2 mörk fyrir
Gummersbach og gaf 2 stoðsendingar.
Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið.
Danmörk
SönderjyskE - Ringsted...................... 33:29
Sveinn Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir
SönderjyskE.
Frakkland
B-deild:
Nice - Massy Essonne.......................... 29:29
Grétar Ari Guðjónsson varði 4 skot í
marki Nice.
Svíþjóð
Alingsås - Guif ..................................... 29:21
Aron Dagur Pálsson leikur með Alings-
ås.
Daníel Freyr Ágústsson er markvörður
hjá Guif.