Morgunblaðið - 10.12.2020, Page 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Aðventan og jólin snúast umhefðir og okkur finnst iðu-lega að engu megi breyta.
Við segjum stundum: Það eru ekki
jól nema ég fari í messu, hitti stór-
fjölskylduna á jóladag eða faðmi
alla vinina í bænum á Þorláks-
messu. Þegar við horfum til baka
eru jólin þegar eitthvað fór úrskeið-
is oft eftirminnilegri. Bilaða elda-
vélin, gubbupestin og jólatréð sem
valt um koll er söguefni í áratugi.
Öðruvísi jól
Vegna Covid-19 eru jól og að-
venta öðruvísi í ár, en við höfum
engu að síður margvíslega mögu-
leika á því að gleðjast saman. Njót-
um aðventu og jóla en höfum í huga
þessar ráðleggingar, því sumar at-
hafnir fela í sér meiri áhættu en
aðrar.
Njótum rafrænna sam-
verustunda
Eigum góðar stundir með
heimilisfólkinu
Veljum jólavini (hverja við ætl-
um að hitta yfir hátíðarnar)
Hugum að heilsunni og stundum
útivist í fámennum hópi
Verslum á netinu ef hægt er
Verum tilbúin með inn-
kaupalista þegar farið er að versla
Kaupum máltíðir á veit-
ingastöðum og tökum með heim
Ef við finnum fyrir einkennum
sem bent geta til Covid-19 er mik-
ilvægt að vera heima, fara í próf og
vera í einangrun þar til niðurstaða
liggur fyrir. Hægt er að panta
sýnatöku á Mínum síðum á heilsu-
vera.is og sýni eru tekin alla daga
nema jóladag og nýársdag. Lækna-
vaktin er opin alla hátíðisdagana,
svarað er í síma 1700. Netspjall
heilsuveru verður einnig opið að
hluta og erindum verður svarað,
þótt stundum verði aðeins að bíða
eftir svari.
Áfram þurfum við að huga að
persónulegum sóttvörnum og það
eru engar jólaundantekningar á
því.
Heimboð og veitingar
Við þurfum að fara eftir til-
mælum sóttvarnalæknis og tak-
marka fjöldann sem við hittum um
hátíðirnar. Búum til jólakúlu, fá-
menna en góðmenna, af ættingjum
og vinum sem okkur eru kær og við
viljum hitta um hátíðina. Förum
ekki milli jólaboða, bíðum í nokkra
daga. Við þurfum að fara varlega
og gæta að öllum sóttvörnum. Áður
en þeir sem eru í jólakúlunni koma
í heimsókn er gott að hafa í huga:
Virðum 10 manna regluna.
Börn fædd 2005 og síðar eru
undanþegin ákvæðum um fjölda-
takmörkun, nálægðartakmörkun og
grímuskyldu.
Tryggjum nándarmörk og ein-
staklingsbundnar smitvarnir. Bjóð-
um upp á grímur, þvoum hendur og
sprittum okkur reglulega.
Forðumst samskotsboð („pál-
ínuboð“) og hlaðborð.
Geymum handabönd, faðmlög
og kossa til betri tíma.
Hugum að loftræstingu og
loftum út meðan á boðinu stendur.
Takmörkum sameiginlega
snertifleti og þrífum þá oft og
reglulega.
Notum grímu og þvoum okkur
reglulega um hendur á meðan við
útbúum matinn, berum hann fram
og göngum frá. Takmörkum fjölda
fólks sem kemur að matseld, fram-
reiðslu og frágangi. Núna eiga ekki
allir að hjálpast að.
Takmörkum notkun á sameig-
inlegum áhöldum, svo sem tertu-
hnífum, kaffikönnum, mjólkur-
könnum og svo framvegis.
Forðumst söng og hávært tal,
sérstaklega innandyra.
Gisting og ferðalög
Algengt er að vinir og/eða fjöl-
skyldumeðlimir dvelji saman yfir
hátíðirnar á sama heimili. Mik-
ilvægt er að vera búin að ræða fyr-
irfram hvað verður gert ef gestir
og/eða heimilisfólk veikjast af Co-
vid-19 meðan á heimsókn stendur.
Jólin eru ferðatími en áður en við
ferðumst á milli staða innanlands
þurfum við auðvitað að velta ýmsu
fyrir okkur.
Erum við eða einhver í okkar
nána tengslaneti í áhættuhópi?
Er smithættan á þínu búsetu-
svæði eða á svæðinu sem þú ætlar
að ferðast til mikil eða að aukast?
Verður erfitt að halda nálægð-
armörkin meðan á ferðalagi stend-
ur (flug, rúta og/eða bátur)?
Er samferðafólk okkar aðrir
en heimilisfólkið?
Það er gaman fá fólkið sitt heim
frá útlöndum um jólin en margs er
að gæta. Fólk sem kemur til Ís-
lands þarf að fara í sóttkví og gera
þarf ráðstafanir í tengslum við það.
Síðasti dagur til að koma heim til
Íslands og vera laus úr sóttkví fyrir
jól er 18. desember.
Ekki má sækja fólk sem ferðast
til Íslands, þar með talið fjölskyldu-
meðlimi og vini. Þau sem koma til
landsins þurfa að taka flugrútu,
leigubíl, bílaleigubíl eða einkabíl
sem búið er að koma með út á flug-
völl.
Draumurinn um róleg jól
Undanfarin ár fór jólaundirbún-
ingur og þétt dagskrá yfir
þægindamörk á mörgum heimilum.
Þá dreymdi suma um einföld jól án
væntinga um að fjölskyldan mætti í
ótal boð og tæki þátt í alls konar
jólastússi. Nú er tækifærið til að
njóta rólegrar aðventu og jóla þar
sem þú og þitt heimilisfólk stjórnar
dagskránni og leggur í minn-
ingasjóðinn. Söfnum efni í allar
sögurnar sem munu byrja á:
Manstu Covid-jólin?
Morgunblaðið/Golli
Austurvöllur Alltaf er gaman að fara í miðborgina og úr þeim ferðum skapa myndirnar góðar minningar.
Gleðilega Covid-19-
aðventu- og jólahátíð
Bakstur Piparkaka og snjókarl sem skreyting. Góð fjölskyldustund er að
baka og sé stemningin góð geta bakaðar fígúrur jafnvel öðlast líf.
Unnið í samvinnu við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins.
Heilsuráð
Sigríður Dóra Magnúsdóttir
heimilislæknir og fram-
kvæmdastjóri lækninga hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins.
Góð þjónusta og forgangsröðun í
starfi heilsugæslunnar á höfuðborg-
arsvæðinu réð því að sjúkrahúsin
yfirfylltust ekki á tímum Covid-19.
Þetta gerðist jafnframt án þess að
verkefni vegna kórónuveirunnar, svo
sem ungbarna- og mæðravernd,
þyrftu að gjalda fyrir. Þetta kemur
fram í grein í BMJ Open, vísinda-
tímariti á sviði læknisfræði sem í
vikunni birti vísindagrein um stöðu
heilsugæslunnar á Íslandi í Covid.
Flestar rannsóknir sem birtar
hafa verið hingað til hafa fjallað um
árangur og viðbrögð annars stigs
þjónustu eða spítalaþjónustu. Þetta
er með fyrstu vísindagreinum í
heiminum sem byggjast á upplýs-
ingum um samskipti fólks við
heilsugæslu í fyrstu bylgju Covid-
faraldursins mars-apríl 2020. Rann-
sóknin, sem unnin var af hópi vís-
indamanna við Þróunarmiðstöð ís-
lenskrar heilsugæslu (ÞÍH) undir
forystu Emils L. Sigurðssonar, pró-
fessors í heimilislækningum, bygg-
ist á efniviði frá öllum heilsugæslu-
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu auk
Læknavaktarinnar.
Niðurstöður eru m.a. þær að sam-
skipti við sjúklinga jukust um 35%
á tímabilinu mars til apríl sl. frá
sömu mánuðum 2018 og 2019. Þar
munaði mest um verulega aukningu
á síma- og netviðtölum sem jukust
um 127%. Vaktþjónusta jókst að
sama skapi. Fjöldi samskipta í
mæðra- og ungbarnavernd dróst lít-
illega saman eða um 4%. Veruleg
breyting varð á þeim sjúkdóms-
greiningum sem sjúklingar fengu og
má þar nefna að ótti og kvíði fyrir
sjúkdómum jókst.
„Heilsugæslunni er ætlað að vera
í framlínunni. Í smitsjúkdómum sem
þessum var afar mikilvægt að
heilsugæslunni tækist að flokka fólk
eftir áhættu og beina því í réttan
farveg fyrir eftirlit eða meðferð. Hér
skipti mestu í upphafi að verja
sjúkrahúsin fyrir hópsmiti. Góð
greining utan sjúkrahúss var því
lykilatriði, segir Emil, sem í þessu
telur koma fram styrkleika heilsu-
gæslu bæði hvað varðar sveigj-
anleika í nýjum verkefnum og stöð-
ugleika í kjarnaþjónustunni.
sbs@mbl.is
Forgangsröðun heilsugæslu var góð, segir í vísindagrein
Sjúkrahúsin yfirfylltust ekki
Morgunblaðið/Eggert
Heilsugæslan Hún er við öllu búin.
Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is – Erum við símann kl. 12-17 virka daga
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
ERNA
GULL- OG SILFURSMIÐJAHönnuður
Ragnhildur Sif Reynisdóttir
Verð kr. 21.500
Hönnuður
Ösp Ásgeirsdóttir
Verð kr. 8.500
Jólaskeiðin &
jólabjallan
2020
Frí heim-
sending
IN THE HIGH COURT OF JUSTICE CR-2019-006383
BUSINESS AND PROPERTY COURTS
OF ENGLAND ANDWALES
COMPANIES COURT (ChD)
VARÐANDI
STARR INTERNATIONAL (EUROPE) LIMITED
-OG-
VARÐANDI
STARR EUROPE INSURANCE LIMITED
-OG-
VARÐANDI VII. HLUTA BRESKRA LAGA FRÁ ÁRINU 2000
UM FJÁRMÁLAÞJÓNUSTU- OGMARKAÐI (FINANCIAL
SERVICES ANDMARKETS ACT 2000)
HÉR MEÐ TILKYNNIST að Starr International (Europe)
Limited (Framseljandi) og Starr Europe Insurance Limited
(Framsalshafi) lögðu fram beiðni hjá dómstólnumBusiness
and Property Courts of England andWales, Companies Court,
(Umsóknin) skv. VII. kafla laga um fjármálaþjónustu og -
markaði frá árinu 2000 (Lögin), um Urskurði:
(1) samkvæmt 111. gr. Laganna, sem heimila áætlun
(Áætlunin) um framsal (Framsalið) til Framsalshafa á:
a. allri almennri vátryggingastarfsemi semvarðar áhættu
sem staðsett er á Evrópska Efnahagssvæðinu (til að
taka af allan vafa, að Bretlandi undanskildu) (EES) og
framseljandi hefur veitt og/eða Yfirtekið (í tilfellum
þar sem aðeins hluti vátryggingarinnar varðar EES,
verður aðeins sá hluti hennar framseldur); og
b. allri almennri endurtryggingastarfsemi sem varðar
áhættu sem staðsett er í Þýskalandi og Framseljandi
hefur veitt og/eða yfirtekið (í tilfellumþar semaðeins
hluti vátryggingarinnar varðar Þýskaland verður
aðeins sá hluti hennar framseldur); og
(2) sem mæla fyrir um viðbótarákvæði í tengslum við
áætlunina skv. 112. gr. og 112. gr. A í Lögunum.
Umsóknin var tekin til meðferðar af fr. Bacon, Dómara, hinn
12. nóvember 2020, sem kvað upp Úrskurði til staðfestingar
á Áætluninni, með viðbótarákvæðum í tengslum við
Áætlunina. Samkvæmt úrskurði dómarans, fr. Bacon, tók
áætlunin gildi kl. 23:59 GMT hinn 30. nóvember 2020.
Auk hvers kyns réttar til ógildingar sem skilmálar vátrygginga
sem falla undir Framsalið kveða á um kunna lög í viðkomandi
EES-ríki að veita þér rétt til að ógilda vátryggingu þína á
grundvelli áætlunarinnar ef vátryggingin heyrir undir
Framsalið með beinum hætti og áhættan sem hún varðar er
staðsett í öðru EES-ríki en Bretlandi. Eigir þú slíkan rétt verður
þú að nýta hann innan 30 daga frá dagsetningu þessarar
tilkynningar eða (sé munur þar á) innan þess tímafrests sem
lög viðkomandi EES-ríkis kveða á um.
10. desember 2020
Norton Rose Fulbright LLP,
3 More London Riverside, London, SE1 2AQ, Bretlandi
Lögmenn Starr International (Europe) Limited
og Starr Europe Insurance Limited
Tilv.: DJXW/1001086004
Um þessar mundir er fagnað 20 ára
afmæli galdrasýningar á Hólmavík á
Ströndum. Vegna fjöldatakmarkana
hefur hátíðahöldum verið aflýst en
þess í stað verið sett upp afmælis-
sýning þar sem greint er frá nokkrum
áföngum í sögu sýningarinnar sem
vert er að minnast og margar
skemmtilegar myndir birtar.
Galdrasýningin, sem var fyrst opn-
uð á Jónsmessu árið 2001, bregður
ljósi á galdrafár 17. aldar og menn-
inguna sem því fylgdi.
Stofnunin hefur á þessum tíma
víkkað starfsemi sína með til dæmis
útgáfu, viðburðum og rannsóknum.
Afmælissýningin stendur út allt
næsta ár.
Sýning í 20 ár
Ljósmynd/Aðsend
Hrafnagaldur Krumma sér víða stað
í íslenskri þjóðmenningu aldanna.
Galdraverk
á Hólmavík