Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Morgunblaðið/Eggert
Aðventa Á hraðferð til jóla, en líðandi vikur eru annasamar hjá mörgum.
Allt mögulegt fyrir jól
Verslun og þjónusta. Margs þarf búið við,
segir máltækið og allir eiga erindi í versl-
anir fyrir hátíðina. Nauðsynlegt er líka að
fara til rakarans og fá jólaklippingu. Morg-
unblaðið kannaði lífið í landinu.
„Jólavertíðin hér byrjaði snemma. Slíkt þurfti líka að
vera, því í verslunum hér eru fjöldatakmarkanir og
biðraðir á göngunum oft langar. Vonandi verður þó
létt eitthvað á þessum reglum þegar líður lengra fram
í desember,“ segir Davíð Rúnar Gunnarsson, mark-
aðsstjóri Glerártorgs á Akureyri. Hvernig viðskipti á
Akureyri eru fyrir jól segir hann alltaf ráðast mikið af
færð. Austur á landi til dæmis sé siður margra að fara
í verslunarleiðangur til Akureyrar fyrir jólin, að því
gefnu að vegir séu greiðfærir.
„Fyrir jólin í fyrra var vont veður í marga daga svo
tvær helgar á aðventunni þá duttu niður að mestu
leyti í viðskiptum. Þá söknuðum við fólks að austan og
úr sveitunum hér í kring. Núna er þetta á góðri sigl-
ingu,“ segir markaðsstjórinn.
Um 40 verslanir og þjónustufyrirtæki eru á Glerár-
torgi. Þar má nefna Nettó, Rúmfatalagerinn, Heim-
ilistæki og Tölvulistann, Dressmann og Lyf og heilsu
svo nokkur þekkt vörumerki séu tiltekin. „Fyrirtæki
koma og fara, slíkt er bara lífsins gangur. Ekki er
langt síðan verslun HM hér í húsinu var opnuð og er í
rými þar sem 66°og Síminn fyrrverandi voru áður. Þá
verður Kaffi Búzt opnað hér á næstu dögum. Reyndar
átti það ekki gerast fyrr en í vor, en eigendurnir gátu
mætt óskum okkar og opnað fyrr. Að hér sé kaffihús
þar sem viðskiptavinir geta sest niður og fengið sér
tíu dropa og kleinu er alveg ómissandi í jólatraffík-
inni.“
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Glerártorg Austur á landi er siður að fara í versl-
unarleiðangur til Akureyrar, segir Davíð Rúnar.
Vertíð er hafin og
biðröð á göngum
„Verslunarrekstur með samskiptum við alls konar fólk
er áhugavert starf,“ segir Birgitta Bjarney Svavars-
dóttir í Garðarshólma á Húsavík. Verslunin á sér
langa sögu, en þar fæst fatnaður fyrir dömur jafnt
sem herra, skartgripir og gjafavara. Birgitta hefur
starfað lengi í Garðarshólma, en verslunin er í eigu
móður hennar, Guðnýjar Helgu Kristjánsdóttur.
„Hingað í búðina koma viðskiptavinir vestan úr
Skagafirði, austan af landi og allt þar á milli. Heima-
markaðurinn er mikilvægur en staðsetningin er annars
afstæð. Á dögunum opnaði ég vefverslun og reynslan
af því er góð. Ég fæ pantanir af öllu landinu, sem hef-
ur styrkt reksturinn mjög. Sumir viðskiptavinir sjá
búðina á netinu og virðast jafnvel ekki átta sig á því
að ég sé á Húsavík,“ segir Birgitta, sem leggur sig eft-
ir vera með fatnað samkvæmt nýjustu tísku. Dönsk
hönnun klæði Íslendinga vel. Þar megi nefna vöru-
merkin Freequent og Kaffe. „Fallegir kjólar standa
alltaf fyrir sínu. Oft er stemning hér í búðinni þegar
vinkonur koma saman til að máta nýja kjóla og annað
fínt,“ segir kaupkonan.
Verslunarrekstur á Húsavík hefur breyst talsvert á
síðustu árum. Verslunum með sérvörur, til dæmis raf-
tæki, sportvörur, blóm og fleira, hefur verið lokað.
„Verslunarrekstur verður alltaf barátta,“ segir Birg-
itta í Garðarshólma.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Á dögunum opnaði ég vefverslun og reynslan
af því er góð, segir Birgitta Bjarney Svavarsdóttir.
Fallegir kjólar
standa fyrir sínu
„Vonandi getum við tekið flesta sem þurfa að komast í
klippingu fyrir jól. Margir okkar viðskiptavina eru vissu-
lega komnir með svolítinn lubba og þurfa þjónustu,“ seg-
ir Gunnhildur Katrín Hjaltadóttir sem rekur Önnu –
hárstofu við Eyraveg á Selfossi.
„Vegna sóttvarna þurftum við að loka í tvær og hálfa
viku, en máttum svo aftur opna 18. nóvember. Þá skall
jólaösin á okkur af fullum þunga og þá fundum við mjög
fyrir því að hafa misst út rúmlega hálfan mánuð. Þetta er
samt allt að komast aftur í jafnvægi. Með því að vinna
alla daga fram að kvöldmat og laugardaga að hluta
vinnum við biðlistana vonandi niður fyrir jól.“
Gunnhildur hefur starfað sem hársnyrtir í um tíu ár,
en stofuna sem hún starfar á keypti hún af Önnu G.
Höskuldsdóttur tengdamóður sinni fyrir um ári. Covid-
stoppið í nóvember notaði hún meðal annars til að þrífa
stofuna hátt og lágt og setja upp vefsíðu.
„Við erum fimm sem vinnum saman á stofunni. Hár-
snyrting er fyrir mér alltaf mjög spennandi og skapandi
starf og það er gaman að fylgjast með tískunni. Þar
koma hlýir litir sterkir inn um þessar mundir, hlýir tónar
eins og koparliturinn. Kaldir litir eins og hvítur og grár
hafa hins vegar látið svolítið undan sem litir hártísk-
unnar fyrir þessi jól, eins of svo oft áður yfir vetrartím-
ann en þó eru ljósir lokkar við andlitið nokkuð vinsælir.
Einnig hefur permanet verið að koma sterkt inn aftur og
þá mikið hjá ungum strákum sem og stelpum,“ segir
Gunnhildur Katrín að síðustu.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Selfoss Við vinnum biðlistana vonandi niður fyrir jólin,
segir Gunnhildur Katrín Hjaltadóttir hársnyrtir.
Eru með lubba og
þurfa nú þjónustu
„Fólk hér í Snæfellsbæ er meðvitað um smitvarnir og er
lítið á ferðinni. Gerir innkaupin hér í heimabyggð eins og
við sem hér stöndum að verslunarrekstri finnum vel.
Aukning í viðskiptum fólks á svæðinu við okkur er mikil
og þar munar tugum prósenta,“ segir Björn Haraldur
Hilmarsson, verslunarstjóri Olís í Snæfellsbæ. Við aðal-
götuna í Ólafsvík rekur Olís verslun þar sem meðal ann-
ars er höndlað með ýmsar rekstrarvörur, til dæmis fyrir
sjávarútveginn. Einnig fæst í búðinni ýmis fatnaður,
skór og útivistarvörur, og raftæki eins og sjónvörp, sím-
ar, tölvur og heimilistæki svo eitthvað sé nefnt.
Í Ólafsvík eru ýmsar verslanir, svo sem tvær gjafa-
vörubúðir og matvaran og fleira til fæst í Kassanum.
„Fjölbreytt vöruúrval og góð þjónusta eru hvor sín hliðin
á sama peningnum. Fái viðskiptavinir vöruna sem þá
vantar koma þeir aftur. Jólaverslunin hér fór snemma af
stað í ár, ég held að það sé samdóma álit allra sem þekkja
til mála,“ segir Björn og að lokum:
„En auðvitað sækir fólk alltaf í nokkrum mæli út af
svæðinu. Fer í Bónus, hvort sem það er í Stykkishólmi,
Borgarnesi eða á höfuðborgarsvæðinu. Eigi að síður
stendur fólk hér í Snæfellsbæ vel með sínum verslunum
og gerir innkaup sín hér að langmestu leyti. Sé varan
ekki til er líka fljótlegt að bregðast við. Sé pantað úr
bænum kemur varan með flutningabílnum að sunnan
síðdegis og í síðasta lagi næsta dag.“
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Ólafsvík Fjölbreytt vöruúrval og góð þjónusta eru hvor
sín hliðin á sama peningnum, segir Björn í Olís.
Færri á ferð og inn-
kaup í heimabyggð
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Gjafakort Einstökjólagjöf