Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Nýtt safn ná- og fjarskyldra
smásagna eftir Ófeig Sigurðsson
sem er hér upp á sitt besta
Stórfróðlegt rit eftir feðgana Kristján Leósson
og Leó Kristjánsson um íslenska kristalinn
sem breytti heiminum
LYKILLINN AÐ RÁÐ-
GÁTUM HEIMSINS
SÖLVI SVE INSSON / MORGUNBLAÐIÐ
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Mogginn er alls ekki feigur,“ sagði Þorgeir
Jóhannsson, málari og verktaki, þegar í ljós
kom að innpakkaðir árgangar af Morgun-
blaðinu frá 1924-1928 sluppu óskemmdir úr
miklum eldsvoða á bílaverkstæði í byrjun
október. Nær allt annað eyðilagðist, meðal
annars ein glæsilegasta Cadillac-drossía
landsins. „Hann breyttist úr glæsilegum bíl í
brotajárn á skammri stundu,“ sagði Þorgeir.
Eldurinn kviknaði í verkstæðinu við
Skemmuveg í byrjun október og varð þar al-
tjón. Faðir Þorgeirs byggði verkstæðishúsið
fyrir mörgum árum og ætlaði að reka þar bíla-
verkstæði. Ekki varð af þeim áformum og
gerðist hann þess í stað fasteignasali en hefur
átt húsnæðið frá upphafi og leigt út. Þorgeir
vann við það á unglingsárunum að naglhreinsa
spýtur í grunninum. Nú er hann að hreinsa allt
út úr húsnæðinu og gera það fokhelt.
Innihald járnskáps það eina sem slapp
Sá sem leigði húsnæðið, þegar kviknaði í,
hirti það af sínum eigum sem einhver von var
að nýta. Þar á meðal voru verkfæri sem höfðu
verið niðri við gólf og var hægt að þrífa og
nota. Annað sem var í eins metra hæð eða ofar
eyðilagðist, að sögn Þorgeirs. „Í ruslinu sem lá
eftir var járnkassi eða gamall járnskápur. Þeg-
ar hann var opnaður fundust í honum innpakk-
aðir gamlir árgangar af Morgunblaðinu. Eld-
urinn náði ekki að eyðileggja þá. Umbúðirnar
voru gulnaðar en hvort það var vegna eldsins
eða aldurs skal ég ekki segja. Þetta hefur hitn-
að aðeins en sloppið furðu vel,“ sagði Þorgeir.
„Það er ekkert nýtanlegt eftir í húsnæðinu
nema bara steinveggirnir,“ sagði Þorgeir sem
nú er að laga húsnæðið eftir brunann. „Ég er á
leiðinni á byrjunarreit. Það var þarna mikið af
járnhillum og járnrekkum sem höfðu safnast
upp frá einum leigjanda til annars í gegnum
tíðina. Þetta þarf allt að saga niður og fjar-
lægja – fleiri tonn af járni. Svo voru þarna
milliveggir úr tré, skrifstofa, klósett og mót-
taka. Þetta þarf allt að rífa.“
Þegar búið verður að hreinsa allt út þarf að
sótthreinsa húsnæðið og mála. Einnig þarf að
endurnýja allt rafmagn, vatnslagnir og smíða
nýja milliveggi. Þá þarf að setja nýja framhlið
á bilið en hún gjöreyðilagðist í eldsvoðanum.
Þorgeir reiknar með að verkið taki minnst þrjá
til fjóra mánuði.
Ljóst er að hitinn hefur verið gríðarlega
mikill í eldinum. „Miðstöðvarofn sem var á
veggnum við bílinn sem brann þandist út eins
og blaðra og sprakk með látum frá veggnum.
Það var mikill hvellur. Menn héldu fyrst að
það hefði verið gaskútur sem sprakk, en það
var miðstöðvarofninn,“ sagði Þorgeir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið Innpakkaðir árgangar af Morgunblaðinu árin 1924-1928 fundust í járnskáp eða járnkassa eftir eldsvoðann. Umbúðirnar voru að-
eins gulnaðar, en ekki er vitað hvort það var vegna hitans eða aldurs. Eintakið sem blasir við er frá 1924 og þann dag var blaðið fjórar síður.
Skemmdir Eins og myndin sýnir vel var aðkoman ekki glæsileg eftir elds-
voðann. Allt fullt af sóti og skít. Mikla vinnu þarf til að endurbyggja allt.
„Mogginn er alls ekki feigur“
Innpakkaðir árgangar af Morgunblaðinu frá 3. tug síðustu aldar sluppu úr eldsvoða þar sem varð
altjón Ekkert verður eftir af bílaverkstæðinu nema útveggirnir Glæsilegur Cadillac eyðilagðist
Cadillac Þetta var ein glæsilegasta Cadillac-drossía landsins, lítið ekin og þótti vel með farin miðað við aldur. Glæsi-
bíllinn breyttist í brotajárn á skammri stundu í eldsvoðanum. Bílaáhugamenn sjá margir eftir þessum fallega bíl.