Morgunblaðið - 10.12.2020, Side 34

Morgunblaðið - 10.12.2020, Side 34
34 FRÉTTIRViðskipti Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 „Það er margt sem veldur töfum, þar á meðal ráðstafanir vegna veirunn- ar.“ Sesselía segir að þó að um tafir sé að ræða verði öllu komið til skila. „Við biðlum til fólks að sýna ástand- inu skilning.“ Spurð að því hvort margir hringi inn og kvarti, segir Sesselía að fólk sé skilningsríkt. Ofboðsleg fjölgun sé þó í símtölum. „Miðað við álagið það sem af er desember býst ég við að við fáum 25 þúsund símtöl í þjónustuver- ið í þessum mánuði.“ Ekki hægt að undirbúa betur En í ljósi þess að nú í ár hefur verið algjör sprenging í netverslun um all- an heim, hefði verið hægt að undir- búa hlutina betur fyrir aðalverslun- artíma ársins? Sesselía segir að Pósturinn hafi verið að undirbúa sig allt árið fyrir þennan mikla vöxt, en hann hafi ein- faldlega orðið meiri en búist var við. „Ég held að við hefðum ekki getað undirbúið okkur betur.“ Annað sem valdi vandræðum er póstur erlendis frá sem komi í gus- um. „Það koma upp stíflur og svo kemur pósturinn í gusum til okkar. Til dæmis safnast upp vörur í Kína og flæða svo til Hollands og svo hingað, mörg tonn í einu. Það setur svaka- lega mikið álag á vinnsluna.“ Annað sem veldur vandræðum er íslenskt veðurfar. Sem dæmi var ekki hægt að fara með póst í tvo sólar- hringa norður í land vegna óveðurs, að sögn Sesselíu. Sinna 100 netverslunum Nóg er að gera einnig hjá einum af samkeppnisaðilum Póstsins, Dropp, sem afhendir vörur bæði heim og í Kringluna, á N1-stöðvar á höfuð- borgarsvæðinu og á nokkrum stöðum úti á landi og í World Class, sem reyndar er lokað að mestu nú vegna faraldursins. „Við sinnum eitt hundrað netversl- unum. Fólk velur hvort það vill fá heimsent, eða sækja á okkar afhend- ingarstöðvar,“ segir Hrólfur Andri Tómasson framkvæmdastjóri Dropp í samtali við Morgunblaðið. Dropp hóf starfsemi á Svörtum fössara (e. Black Friday) fyrir um ári. Hrólfur segir að algjör sprenging hafi orðið í sendingum síðustu vikur. „Sendingamagnið núna er tíföldun á við síðasta sumar,“ segir Hrólfur. „Nóvembermánuður er stærsti mán- uðurinn sem við höfum séð til þessa.“ Hrólfur segir að Dropp hafi tekist að afhenda tiltölulega hratt, þrátt fyrir mikla aukningu í sendingum. „Vanalega afhendum við samdægurs, en yfir stærstu dagana fór þetta kannski í nokkra daga. Þá spilaði líka inn í að verslanir voru kannski ein- hverja daga að tína pakkana til.“ Margföldun í sendingum Morgunblaðið/Árni Sæberg Kaupgleði Íslendingar hafa verið duglegir að kaupa jólagjafir og annað á netinu í kórónuveirufaraldrinum. Pakkasendingar » Mikið álag er í pakka- sendingum vegna jóla- vertíðar og netversl- unardaga eins og Black Friday, Cyber Monday og Singles Day. » Dropp útvistar dreifing- unni, bæði í heimsendingum og á afhendingarstaði, en ber ábyrgð á sendingunum og sinnir öllum samskiptum við viðskiptavini. » Ísland á enn mikið inni í netverslun og er langt að baki nágrannalöndunum. » Afkastageta póst- miðstöðvar Póstsins er að hámarki sjö þúsund send- ingar á dag í venjulegu ár- ferði, en nú er unnið úr 15 – 17 þúsund sendingum á dag.  Pósturinn býst við 25 þúsund símtölum í desember  Sendingar að utan koma í gusum  Tíföldun á sendingum hjá Dropp miðað við síðasta sumar  Póstboxin fyllast oft á dag  Unnið allan sólarhringinn BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Ýmsir sem pantað hafa vörur á net- inu innanlands síðustu daga og vikur hafa þurft að bíða óvenjulengi eftir að fá þær afhentar. Dæmi er um að vara sem keypt var í netverslun 27. nóvember og skráð í fyrirtækjapóst- hús Póstsins 3. desember hafi enn ekki borist, sex dögum eftir að hún barst póstinum til dreifingar, og tólf dögum eftir að hún var keypt. Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaða hjá Póstinum, segir að bú- ast megi við því að þar sem áður mátti vonast eftir pinkli heim að dyr- um, eins og á höfuðborgarsvæðinu, daginn eftir að vara er keypt, berist hann nú nokkrum dögum síðar. Hún segir að mikið álag sé einnig á póstboxum Póstsins, en þangað geta viðskiptavinir sótt pakka. „Við vorum að innleiða þrjátíu ný póstbox um allt land og þau hafa ekki við og eru öll full. Við fyllum á boxin mörg- um sinnum á dag. Hér er unnið allan sólarhringinn og við höfum aukið gríðarlega við útkeyrsluna og flot- ann okkar sömuleiðis,“ segir Ses- selía. 120% aukning frá í fyrra Hún segir að fyrirtækið sé að klára að loka nóvember, eins og hún orðar það, og þar sé 120% aukning frá sama tíma á síðasta ári. „Í des- ember verður aukningin enn meiri. Þetta reynir mjög mikið á innvið- ina.“ Hún segir að afkastageta póstmið- stöðvar Póstsins sé að hámarki sjö þúsund sendingar á dag í venjulegu árferði, en nú sé verið að vinna þar 15 – 17 þúsund sendingar á dag. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir nú gerða enn eina atlög- unina að stofnun leigufélagsins Blæs. „Stjórn leigufélagsins Bjargs kemur að þessari vinnu en verið er að skipa í starfshópinn. Svo getur maður ekki annað en vonað það besta,“ segir Ragnar. Til stóð að Blær myndi byggja 400-500 íbúðir á ári og yrði almennara leigufélag en Bjarg. „Fyrstu hugmyndirnar í kringum Blæ eru teiknaðar upp í kjarasamn- ingunum 2015 þegar Bjarg var sett á laggirnar. Það stóð alltaf til að vera með hliðarfélag sem átti að heita Blær og myndi styðja við starfsemi Bjargs. Þ.e.a.s. vera með meiri fé- lagslega blöndun þannig að þessi tvö félög gætu saman náð til fleiri hópa sem eru jaðarsettir á markaðnum.“ Aðkoma fagfjárfesta Ragnar Þór segir hafa verið rætt um aðkomu stéttarfélaga og fag- fjárfesta að uppbyggingunni. Hvað snertir vaxtalækkanir hafi þau haft jákvæð og neikvæð áhrif á fasteignamarkaðinn. „Það er að koma nýr kaupenda- hópur á fast- eignamarkaðinn sem er jákvætt. Hins vegar erum við ekki að sjá aukið framboð á móti eins og til stóð að gera varð- andi hlutdeildar- lánin. Þau áttu að vera bundin við aukið framboð svo stækkandi kaupendahópur myndi ekki þrýsta upp húsnæðis- verðinu. En það hefur einmitt gerst með lægra vaxtastigi og með því að fleiri komast inn á markaðinn. Þá hafa þeir sem fyrir eru getað stækk- að við sig sem líka þrýstir upp verði.“ Fyrirséð niðursveifla Ragnar Þór segir niðursveiflu fyrirséða á byggingarmarkaði. „Ólíkt því sem var fyrir hrun, þeg- ar menn voru að þvælast milli sveit- arfélaga til að telja byggingarkrana, hafa þeir nú nánast rauntölur til að styðjast við og spá fyrir um þróun næstu ára. Við þessar aðstæður er gríðarlega mikilvægt að koma fé- lögum eins og Blæ af stað. Ef við not- um ekki tækifærið núna þá er okkur ekki við bjargandi.“ Ný atlaga að stofnun Blæs Ragnar Þór Ingólfsson  Horft til stéttarfélaga og fagfjárfesta Ryðfrítt vinnsluborð og bandsagarblað Vinnsluhæð: 240 mm Vinnslubreidd: 250 mm Færanlegt vinnsluborð 47 Mótor: 550 w Hæð: 1.470 mm Þyngd: 58 kg Verð aðeins87 VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, RE DYNAMIX Frábær k með hakk ARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 0x6 .9 YKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFN jö a s 00 mm 00 kr. tsög fs.i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.