Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 46
Þegar dottið er inn í nor-
rænu sakamálasögurnar,
ekki síst þær sænsku, þá
hjálpar ekki til að átta
sig á hlutunum allt
nafnakraðakið sem
boðið er upp á, sérlega
eftirnöfnin. Þar er
Andersson og Er-
iksson, Persson og
Pettersson, Karlsson
og Svensson og þann-
ig endalaust.
Því nefni ég þetta,
að fram yfir miðja
nítjándu öld bjuggu Svíar við álíka
nafnahefð og við. Menn kenndu sig
við föður sinn og voru ýmist son eða
dotter eftir því sem við átti.
Frá því 1901 varð skylda með
svenskum að taka upp ættarnöfn og
þá fór náttúran að
blómstra, og bættist við
Anderssynina og allt hitt:
Lundgren, Lundqvist,
Sjöberg, Lind og Berg.
Enginn endir á möguleik-
unum og menn mega
skipta eins oft um nafn og
þeir vilja.
Nú er komið fram frum-
varp á Alþingi sem fetar í
spor Svía og gerir ráð
fyrir algjöru frelsi í
nafngiftum og fríu
spili í eftirnöfnum
eftir smekk.
Þetta er súrrealísk offrelsisstefna
og endimarkalaus. Slær jafnvel
Tinnabókunum við en þar hét ein
persónan Fjalldrapagren.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Látum nafnahefðina kjurra
Prýðisnöfn Skapti og Skafti.
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is www.danco.is
Heildsöludreifing
Loksins er Greppikló og sögupersónur komar
í yndislega fallega mjúka línu af böngsum
- Tilvalið að safna öllum sem elska þessa yndislegu sögupersónur
Sagan um Greppikló hefur notið mikilla vinsælda um allan heim undanfarin
ár og er hefur bókin með vandaðri þýðingu Þórarins Eldjárns verið vinsæl
í skólum og leikskólum ásamt öllum bókaunnendum hér á landi.
Greppikló 23 c
Greppikló 41 cm
Mouse 23 cm
m
Mouse 41 cm
Greppikló
fingrabrúður
5 teg. 20 cm
Greppikló
- tuskudýr 5 teg.
Displ-12. 18 cm
-
Greppikló
- lykklakippa
12 cm
Björn Bjarnason
hefur nú í nokkrum
Morgunblaðsgreinum
iðkað ákafa þrætubók-
arlist við undirritaða
vegna afskipta föður
hans af orðstír Hall-
dórs Laxness sem frá
er sagt í bók minni
Spegill fyrir skugga-
baldur. Hefur hann
lagt nokkrar lykkjur á
leið sína og notið lið-
styrks leiðarahöfundar Morgun-
blaðsins og Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar.
Björn hengir sig í rangtúlkun á
því sem sagt hefur verið og mótmæl-
ir svo eigin ályktun, sem er sú að
faðir hans Bjarni Benediktsson „hafi
árið 1948 stöðvað útgáfu bóka Lax-
ness“ eins og Björn orðar brigslin
sjálfur. Þessu hefur þó enginn haldið
fram, svo Björn er að rífast við sjálf-
an sig um þetta atriði.
Af frumheimildum verður þó
„ekki annað ráðið en að athugun á
tekjum og skattskilum Halldórs
Laxness hafi fyrst og fremst haft
þann tilgang að laska orðspor
skáldsins vegna ætlaðra tengsla
þess við kommúnista“ eins og segir í
bók minni (s. 154). Fræðimönnum
ber þess vegna saman um að æru-
hnekkir var óumdeilanlegt markmið
þeirra Bjarna Benediktssonar og
William Trimble, sendifulltrúa
Bandaríkjanna, þegar þeir véluðu
um rannsókn á skattskilum skálds-
ins í Bandaríkjunum.
Trimble segir í skeyti, sem ég
birti með grein minni hér í blaðinu
20. nóvember, að „orðstír Laxness
myndi skaðast varanlega ef við kom-
um því til skila að hann sé að reyna
að komast undan tekjuskatti. Þar af
leiðandi er mælt með frekari rann-
sókn á þeim höfundarlaunum sem
hann hefur væntanlega fengið fyrir
Sjálfstætt fólk“ (feb. 1948).
Inn í þessa rannsókn
blandaðist meira að
segja yfirmaður FBI,
Edgar Hoover, sem
beitti sér af hörku gegn
róttækum höfundum á
þessum árum og hikaði
ekki við að hafa afskipti
af útgáfumálum þeirra.
Frumkvæði og þátt-
taka Bjarna Benedikts-
sonar í þessu máli varp-
ar ljósi á pólitíska
arfleifð Sjálfstæðis-
flokksins, sem Birni
Bjarnasyni og félögum svíður að op-
inberuð sé. Þar er um að ræða við-
horf og vinnubrögð sem – eins og
bók mín greinir frá – valda sam-
félagslegum skaða. Nýjasta dæmið
er pólitísk misbeiting ráðherravalds
við dómaraskipan í Landsrétt – brot
sem Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur harðlega átalið í nýföllnum
dómi.
Spegill fyrir skuggabaldur fjallar
um valdbeitingu af fyrrgreindum
toga – fyrirgreiðslupólitík og aðra
misbeitingu sem grefur undan góðri
stjórnskipan, lýðréttindum og
mannhelgi. Það er arfleifðin sem
Björn Bjarnason og fylginautar
horfast nú í augu við.
Sú arfleifð er málstaður manna
sem komnir eru úr takt við tímann –
manna með þrotið erindi sem hafa
lifað sjálfa sig.
Arfleifðin sem
ekki má játa
Eftir Ólínu Kjerúlf
Þorvarðardóttur
Ólína Kjerúlf
Þorvarðardóttir
» Pólitísk misbeiting
valds – arfleifð Sjálf-
stæðisflokksins – veldur
samfélagslegum skaða,
grefur undan góðri
stjórnskipan, lýðrétt-
indum og mannhelgi.
Höfundur er þjóðfræðingur og
rithöfundur.
olinathorvardar@gmail.com
Fyrir mörgum árum,
þegar við hjónin vorum
á ferðalagi um Vest-
firði, stoppuðum við í
byggðasafni þar sem
margt fróðlegt var að
sjá. Meðal annars var
þar hluti af baðstofu
frá 17. eða 18. öld. Með-
fram veggnum voru
kojur vinnufólksins og
tók ég sérstaklega eftir
einni, sem sögð var hafa tilheyrt
gamalli kaupakonu að nafni Mar-
grét. Kojan var furðulega stutt svo
konan getur ekki hafa verið há í loft-
inu. Í botninum var þunn hálmdýna.
Varð mér sérstaklega starsýnt á út-
skorna fjöl fyrir ofan kojuna, sem á
var letrað Drottinn blessi rúmið
mitt.
Ég ímynda mér að tilvera fólksins,
sem svaf í þessari baðstofu, hafi ekki
verið allt of margbreytileg. Langir
vinnudagar og mikið puð og ekki oft
hægt að gera sér dagamun. Fá-
breytilegur matur og stundum af
skornum skammti, kaldar vist-
arverur og fátt til að gleðja augað.
Það hlýtur að hafa verið kærkomið
að ganga til náða og hverfa inn í
draumheima. Draumarnir voru svo
ólíkir grárri tilverunni, oft litskrúð-
ugir og framandi. Svo var sagt að
suma dreymdi fyrir daglátum, sem
var að dreyma ókomna nálæga at-
burði. Margar frásagnir af slíku má
lesa í fornum bókum.
Persónulega dreymir mig oftast
eitthvað á hverri nóttu. Oft er það
svo margt og mikið að ég furða mig
stundum á því, að ég skuli ekki vera
þreyttur eftir allt saman að morgni.
Í draumunum kemur fram fjöldi per-
sóna, lifandi sem liðinna, sem ég hefi
kynnst á langri ævi. Ég sef samt
ekki með gleraugun eins og sagt var
um Sæmund Jóns. Það gerði hann til
þess að hann gæti
þekkt fólkið sem hann
dreymdi. Ekki eru allir
draumar mínir
skemmtilegir og suma
þeirra má flokka undir
martraðir. Þær eru oft-
ast í svipuðu formi og
eru um það að ég hafi
lagt bílnum mínum ein-
hvers staðar en get svo
ekki fundið hann aftur.
Eftir langa árangurs-
lausa leit vakna ég í
svitabaði. Og ekki
dreymir mig fyrir daglátum, svo ég
veit aldrei hvað framtíðin muni bera
í skauti sínu.
En það var ekki þannig með hann
Sigmund, sem vann nýtt reiðhjól í
happdrætti kvenfélags Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði 1959. Hann
kom á flokksskrifstofuna og var
mjög ákafur að fá að kaupa miða
númer 51. Þegar dregið var og það
númer kom einmitt upp spurði
blaðamaður Alþýðublaðsins hvernig
hann hefði vitað að miði 51 myndi
hreppa vinninginn. „Jú það var
þannig,“ svaraði Sigmundur, „að mig
dreymdi töluna 7 sjö nætur í röð. Og
af því að 7 sinnum 7 eru 51 vissi ég að
það væri vinningsnúmerið!“
Líklega er svefnherbergið og þá
sér í lagi rúmið mest áríðandi hlut-
urinn í lífi hverrar fjölskyldu. Eld-
húsið kemur næst og svo baðher-
bergið. Miðað við að
meðalmanneskja sofi sjö og hálfan
tíma á nóttu gerir það 2.738 klukku-
tíma á ári eða 114 daga, sem eru
tæpir fjórir mánuðir. Sjötug persóna
hefir þannig eytt rúmlega 28 árum í
rúminu! Það gefur því augaleið, að
allt sem viðkemur rúmum og svefni
hlýtur að skipa háan sess í viðskipta-
lífinu. Margir hafa grætt vel í þeim
geira.
Byltingin, sem orðið hefir í gerð
rúma og rúmdýna á undanförnum
áratugum, er næstum ótrúleg.
Tækninni hefir fleygt fram og nýj-
ustu tegundir eru ekki bara raf-
væddar heldur er þeim líka stýrt af
tölvum. Ekki bara hafa rúmin
stækkað heldur hafa dýnurnar tekið
stökkbreytingum. Sumar eru með
tölvuminni og muna þannig hvernig
þér líður best að liggja og laga sig
eftir því. Aðrar hreyfa sig upp og
niður eftir því hvort þú vilt sitja upp
við dogg eða liggja marflatur og
sofa.
Nýtískurúmin eru ekki bara notuð
fyrir svefn. Nei, ég ætla ekki að
minnast á framleiðslu á næstu kyn-
slóðum. Fólkið liggur í rúminu og
glápir á sjónvarp, skoðar snjallsím-
ana sína, borðar og deilir fletinu með
börnunum. Einnig skilst mér að
margir leyfi gæludýrum sínum að
sofa hjá sér. En þegar öllu er á botn-
inn hvolft skiptir ekki máli hvort þú
liggur í rándýru hátæknirúmi eða á
hálmdýnu í kojunni hennar Mar-
grétar. Svefninn er sá sami og sömu-
leiðis draumarnir óútreiknanlegu.
Í lokin kemur frásaga um draum-
inn hans Nasreddins. Hann var tyrk-
neskur kennari og skólameistari sem
uppi var á 14. öld. Þótti hann sérvit-
ur og keskinn í meira lagi og urðu til
um hann margar spaugilegar sögur.
Fyrir óralöngu var gefið út á ís-
lensku lítið kver með nokkrum sög-
um af kennaranum. Eitt sinn
dreymdi hann að til sín kæmi maður,
sem ætlaði að gefa honum níu silf-
urpeninga. „Bættu einum við svo
þeir verði tíu,“ þóttist Nasreddin
segja í svefninum og rétti fram
höndina. En í því vaknaði hann og
fann þá að lófinn var tómur. Hann
lygndi þá aftur augunum, rétti fram
höndina og mælti: „Komdu þá með
þessa níu. Lítið er betra en ekki
neitt.“
Eftir Þóri S.
Gröndal »Miðað við að með-
almanneskja sofi sjö
og hálfan tíma á nóttu
gerir það 2.738 klukku-
tíma á ári eða 114 daga,
sem eru tæpir fjórir
mánuðir.
Þórir S. Gröndal
Höfundur er fyrrverandi fisksali og
ræðismaður í Ameríku.
floice9@aol.com
Drottinn blessi rúmið mitt!
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Allt um sjávarútveg