Morgunblaðið - 10.12.2020, Page 48

Morgunblaðið - 10.12.2020, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30 - Fyrir jólin - Úrval af hangikjöti, hamborgarhryggjum, nautakjöti og villibráð Skoðaðu vöruúrvalið og leggðu inn pöntun á nýrri heimasíðu www.kjotsmidjan.is Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is „Ég kom fyrst til Íslands fyrir sex árum og ástæðan var frekar skrít- in – íslensk tónlist. Eiginlega allir aðrir ferðamenn komu til að skoða náttúruna en þá vissi ég ekkert um náttúrufegurð Íslands. Það eina sem mig langaði að gera var að sjá mína íslensku uppáhalds- tónlistarmenn á sviði,“ segir Christina sem kom sem sjálf- boðaliði á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Hún segir upplifunina ógleymanlega og fékk hún meðal annars að tala við tónlistarmenn á borð við Ólaf Arnalds, Axel Fló- vent og Nönnu úr Of Monsters and Men. Christina heimsótti Ísland alls fjórum sinnum áður en hún flutti til landsins. Tvisvar kom hún til þess að fara sérstaklega á Iceland Airwaves og tvisvar til þess að skoða landið. Í dag stundar hún nám í íslensku sem annað mál en fyrir er hún með gráðu í málvís- indum með áherslu á ensku, þýsku og kínversku. Langaði alltaf aftur „Eftir hverja heimsókn til Ís- lands fór ég heim með þá tilfinn- ingu að mig langaði að fara aftur. Ég féll líka fyrir tungumálinu, það hljómaði undarlega og var fallegt, eins og ekkert tungumál sem ég kunni og mig langaði að læra það. Ég man að ég var alveg heilluð í fyrsta skipti sem ég heyrði málið. Það var á tónleikum með íslensku hljómsveitinni Árstíðum. Hljóm- sveitin var tónleikaferðalagi í Rússlandi árið 2011 og ég keypti miða bara af því að hjómsveitin var frá Íslandi. Það hljómaði svo framandi. Ég vissi nákvæmlega ekkert um tónlistina þeirra né landið sjálft,“ segir Christina og bætir við að tónleikarnir heppn- uðust afar vel og tónleikagestir gátu ekki hætt að klappa í lok tónleikanna. „Að lokum ákvað ég að flytja til landsins árið 2019. Þegar ég flutti var ég ótrúlega hamingjusöm og trúði því ekki lengi vel. Ég get ekki sagt að það hafi verið auð- velt, sérstaklega ekki í byrjun. Ég þekkti varla neinn hérna og allt var svo öðruvísi auk þess sem ég talaði þrjú tungumál daglega svo það tók mig langan tíma að aðlag- ast nýju lífi. Ég var einmana að vera svona langt í burtu frá fjöl- skyldu og vinum og íslenska veðrið hjálpaði ekki,“ segir Christina. Hún er þakklát fólkinu sem hjálp- aði henni á erfiðum tímum fyrsta árið hennar. Hún segir fólkið vera einmitt eina af ástæðum þess að hún kom alltaf aftur og aftur. Christina stefndi aldrei á að taka bílpróf fyrr en hún flutti til Ís- lands. Hún á enn eftir að taka bíl- prófið en þegar hún gerir það sér hún fram á að ferðast meira um landið. „Ég áttaði mig á að það er ótrú- lega erfitt að ferðast frá Reykjavík þegar þú getur ekki ekið. Það er eins og næstum því allir eigi bíl hér og stundum líður mér eins og ég sé eina manneskja sem gengur. Ég er svo heppin að hafa ferðast um landið þökk sé vinum sem hafa sýnt mér uppáhaldsstaði sína. Það er erfitt að velja einn uppá- haldsstað á Íslandi, landið er svo fjöbreytt, en ef ég ætti að svara spurningunni þá verð ég að segja Landmannalaugar. Staðurinn er klikkaður. Þetta var eins og að vera á annarri plánetu og ég elska staði sem láta manni líða þannig. Ég var einnig mjög hrifin þegar ég sá Dettifoss í fyrsta sinn í sum- ar og Mývatnssvæðið var einnig töfrandi með hellunum, hrauninu, eldfjöllum, gígum, jarðhitasvæð- um. Mig langar þangað aftur,“ segir Christina sem segist einnig hafa séð fallegasta sólarlag sem hún hefur séð við Jökulsárlón. Hana langar til að skoða hálendið betur og á alveg eftir að skoða Vestfirði. Íslenskir hestar vöktu athygli BBC Í Sankti Pétursborg vann Christina fyrir sér sem ljósmynd- ari og sérhæfði sig í að mynda fólk. Hún segir erfitt að komast inn á lítinn markað á Íslandi. Í Rússlandi er algengt að fólk fari í myndatöku í ljósmyndastúdíóum. Hún hefur tekið eftir því að hér og víða annars staðar í Evrópu er það hins vegar óalgengt. Kórónuveiran bætti ekki ástandið. Hún er þó með nokkur verkefni og sér fram á bjartari tíma framundan. Á næst- unni langar hana að einbeita sér í auknum mæli að kvikmyndagerð. Christina er dugleg að taka myndir og birtir meðal annars á heimasíðu sinni og á Instagram. Mynd sem hún tók af íslenskum hestum á ferð sinni um Ísland í sumar rataði á samfélagsmiðla BBC eftir að hún merkti „BBC earth“ á myndina. Í kjölfarið end- urbirtu enn fleiri síður myndina á Instagram. Myndin vakti svo góð viðbrögð að Christina fékk skila- boð frá mörgum sem sögðu henni að þetta töfrandi augnablik sem hún festi á filmu hefði hjálpað þeim að gleyma öllu því erfiða sem væri að gerast í heiminum í smá- stund. Hún segir frábært að geta deilt fegurð Íslands með fólki alls staðar að í heiminum. Forréttindi að vera á Íslandi „Kórónuveiran hefur breytt öll- um mínum ferðaplönum og öllum ferðum mínum hefur verið aflýst síðan í mars. Mér finnst ég vera í forréttindastöðu að vera á Íslandi á þessum erfiðu tímum. Á meðan sumir vina minna voru fastir inni í íbúðum sínum í stórborgum var ég að ferðast um Ísland í vor og sum- ar og leið eins og ég væri örugg og frjáls,“ segir Christina. Fyrir utan Ísland eru Portúgal og Sviss í miklu uppáhaldi hjá Christinu. Hún bendir á að Sviss sé líkt Íslandi á þann hátt að þar er hreint vatn og loft. Hún segir erfitt að lýsa fegurð fjallanna. Fanal-skógurinn er henni eft- irminnilegur og gönguleiðir í sviss- nesku Ölpunum frábærar. Ef peningar stæðu ekki í vegi fyrir því væri Christina á ferðalagi allt árið. Hana langar að koma á ýmsa staði og meðal annars að skoða sig betur um í Kirgistan og Kasakstan. Hún er sjálf fædd í Kasakstan sem var þá hluti af Sovétríkjunum. Hún flutti hins vegar tveggja ára til Rússlands og man lítið eftir landinu. „Ég myndi vilja sjá borgina sem ég er fædd í og ferðast um þessi tvö lönd og skoða náttúruna,“ segir Christina. Ljósmynd/Stefán Ari Stefánsson Ljósmyndari Christina Raytsiz flutti til Íslands. Víðförul Hestamynd Christinu hefur farið víða. Heillaðist af Íslandi og ákvað að flytja Christina Raytsiz, ljósmyndari og kvikmynda- gerðarkona, heillaðist fyrst af Íslandi á tón- leikum í heimalandi sínu Rússlandi. Íslensk tónlist er í miklum metum hjá henni en hún kom fyrst til Íslands árið 2014. Árið 2019 ákvað hún svo að flytja til landsins. Ljósmyndir/Christina Raytsiz Heillandi Náttúrufegurð Ís- lands hefur heillað Christinu. Ferðalög á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.