Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
SPARAÐU
15-30%
NÚNA
Gefðu fullkomna
jólagjöf
Tilboðspakkarnir
eru jólagjöfin í ár!
Gleðjið einhvern kæranmeð
tilboðspakka fráHÚÐFEGRUN
Taka þarf framnafn viðtakanda við greiðslu
Bókin inniheldur ógnarfjölda ómót-
stæðilegra rétta sem kenndir eru við
saumaklúbba og almenna mannfögn-
uði en henta allt eins þegar verið er
að gera kósí heima.
Berglind, sem sendi í fyrra frá sér
Veislubókina, heldur áfram á svipaðri
braut enda flinkari en flestir í að
halda veislur. Hún segir að kúnstin á
bak við vel heppnaðan saumaklúbb sé
fyrst og fremst maturinn.
„Góður matur getur síðan verið alls
konar, allt frá því að vera eitthvað
sem þú hefur nostrað við í nokkra
daga að því að panta dýrindis-
veitingar. Allir eru glaðir þegar þeir
fá gott að borða og mér finnst mik-
ilvægt að hafa smá fjölbreytni svo all-
ir finni eitthvað við sitt hæfi. Síðan er
„desrétturinn“ eins og Inga vinkona
mín myndi segja eitthvað sem má
ekki gleyma, það er svo gott að fá sér
smá sætan bita eftir góða máltíð. Kósí
stemning, kertaljós og tónlist setja
síðan punktinn yfir i-ið á svona kvöld-
um, segir Berglind sem vílar ekki fyr-
ir sér að blanda saman aðkeyptum
veitingum og heimatilbúnum.
En hvað skal til bragðs taka ef fyr-
irvarinn er enginn? „Gera einfaldan
rétt, til dæmis pastarétt og gott
brauð og hafa síðan fallega namm-
iskál með alls konar gúmelaði eða ís í
eftirmat … já og eitthvað gott að
drekka. Vinkonur mínar í bókinni
setja einmitt saman nokkra sniðuga
saumaklúbba og þar eru sannarlega
hugmyndir fyrir saumaklúbb á kort-
éri,“ segir Berglind sem deilir því
jafnframt að besta trixið sé ávallt að
vinna sér í haginn. „Það er gott að
ákveða veitingar með fyrirvara og
vinna sér eins og hægt er í haginn.
Gera allt kvöldinu áður sem hægt er,
leggja á borð, gera fínt og undirbúa
allt matarkyns sem mögulegt er að
undirbúa þá. Til dæmis má útbúa
súpugrunn nokkrum dögum áður og
geyma í kæli, síðan bara hita upp og
bæta saman við því sem fer út í í lokin
og hita gott brauð með.“
Berglind segir gott að eiga einn
rétt sem klikki aldrei. Hjá henni er
það uppskriftin að kjúklingasúpu vin-
konu hennar sem hún segir að sé
afburðauppskrift. Hún smellpassi fyr-
ir flest tilefni og að sjálfsögðu sé upp-
skriftina að henni að finna í bókinni.
Hægt er að panta bókina beint frá
Berglindi á vefsíðu hennar Gotteri.is
en þar er að finna urmul uppskrifta,
góð ráð og margt bráðsniðugt í vef-
versluninni. thora@mbl.is
Veisludrottningin
klikkar ekki
Matarbloggarinn og
eldhúsgyðjan Berglind
Hreiðarsdóttir gaf á
dögunum út bókina
Saumaklúbburinn.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Gotterí Berglind er þekkt fyrir
fallegar framsetningar má mat
og fyrirmyndar eldamennsku.
Bakaður ostur
1 Dala Auður
1 lúka af Til hamingju-pek-
anhnetum
4 msk. hlynsíróp
1 lúka af granateplafræjum
Setjið ostinn í lítið eldfast mót
og bakið í 180° heitum ofni í um 15
mínútur.
Saxið pekanhneturnar gróft
niður, setjið yfir ostinn ásamt sír-
ópinu og bakið áfram í um 5 mín-
útur.
Takið úr ofninum, stráið vel af
granateplafræjum yfir og njótið
með góðu brauði eða kexi.
Annað gott meðlæti
Casale Prosciutto di parmaskinka
Ólífur
Ristað snittubrauð
Bláber
Til hamingju blandaðar rúsínur
Bakaður ostur og meðlæti
Athugið að gott er að setja pappa-
form ofan í álform til þess að kök-
urnar haldi fallegri lögun og auðveld-
ara sé að fylla formin. Í þessari
uppskrift má fylla um ¾ af forminu
þar sem kremið er mikið og gott að
hafa kökuna eins stóra og mögulegt
er.
Bollakökur
1 x Betty Crocker Devils Food Cake Mix
4 egg
125 ml matarolía
250 ml vatn
3 msk. bökunarkakó
100 g brætt suðusúkkulaði
Hitið ofninn í 160°C og takið til
bollakökuform.
Hrærið saman eggjum, olíu og
vatni.
Bætið kökudufti og bökunarkakó
saman við og hrærið í nokkrar mín-
útur.
Að lokum fer brædda súkkulaðið í
blönduna og henni síðan skipt niður í
um 20 bollakökuform.
Kælið kökurnar og útbúið síðan
kremið.
Kókosbollukrem
6 eggjahvítur
500 g sykur
100 ml vatn
1 tsk. Cream of tartar
1 msk. vanilludropar
Pískið saman eggjahvítur, sykur,
vatn og Cream of tartar í skál.
Setjið skálina yfir pott með sjóð-
andi vatni og hrærið í þar til þið finn-
ið að sykurinn er orðinn uppleystur
og blandan orðin volg, færið hana þá
yfir í hrærivélarskálina (eða þeytið
með handþeytara).
Þeytið á hæsta hraða þar til stífir
toppar myndast (um 10-12 mínútur í
hrærivél).
Bætið vanilludropunum saman við
í lokin og þeytið í um eina mínútu til
viðbótar.
Setjið kremið í stóran hringlaga
sprautustút og sprautið eins ís-
munstri ofan á hverja köku (um 3
hringir).
Stingið kökunum í frysti í 15-30
mínútur og dýfið þeim síðan í súkku-
laði.
Hjúpur
500 g suðusúkkulaði
3 msk. ljós matarolía
Bræðið súkkulaði og hrærið mat-
arolíu síðan vel saman við til að
þynna aðeins.
Setjið súkkulaðiblönduna í grannt
og djúpt ílát (þó þannig að höndin
ykkar og kakan komist að).
Sækið eina og eina köku í frystinn
og dýfið eins og þið séuð að setja
ídýfu á ís.
Haldið á hvolfi á meðan súkku-
laðið lekur af og snúið síðan upprétt
og leggið á disk.
Mikilvægt er að geyma kökurnar í
kæli þar til þær eru borðaðar.
Kókosbollubollakökur