Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 10.12.2020, Qupperneq 62
62 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 ✝ Jón HjaltalínStefánsson fæddist í Reykjavík 5. janúar 1945. Hann lést 1. desem- ber 2020. For- eldrar: Stefán sendiherra, f. 26.11. 1900, d. 20.8. 1951, Þorvarðsson, prests að Stað í Súgandafirði, Brynjólfssonar og kona hans Guðrún, f. 30.6. 1911, d. 18.7. 1976), Jónsdóttir Hjaltal- ín, próf. dr. med. Sigurðssonar. Jón ólst upp á Flókagötunni ásamt móður, móðurömmu og tveimur eldri systrum. Stúdent MR 1964, próf í eðlisverkfræði frá NTH í Þrándheimi 1969. Verkfræðingur hjá ÍSAL (síðar Rio Tinto Alcan) frá 1970. Starf- aði hjá systurfyrirtæki ÍSAL í Essen 1979-80. Rafgreining- arstjóri hjá ÍSAL 1982 til 1998. Sérfræðingur hjá Aluchemi í Hollandi 1998 til 2010. Maki, 2. júní 1971, Birna hús- stjórnarkennari, f. 19. feb. 1949 á Ak- ureyri, Kjart- ansdóttir, læknis á Höfn í Hornafirði Árnasonar og konu hans Ragnhildar Sigbjörnsdóttur húsmæðrakennara. Börn þeirra: 1) Kjartan verkfræð- ingur, f. 1972, 2) Sölvi, félagsliði og tónlistarmaður, f. 1975, d. 2020, sonur Snorri Brynjar 2012, 3) Guðrún, lífefnafræð- ingur með meistarapróf í vís- indaskrifum, f. 1985, búsett í Vancouver, sambýlismaður Poo- ya Esfandiar, dóttir Sara Birna 2017. Jón verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 10. desem- ber 2020, og hefst athöfnin kl. 15. Vegna aðstæðna geta aðeins nánir aðstandendur og vinir verið viðstaddir. Ég man fyrst fyrst eftir föð- ur mínum í kringum 1975 þegar við bjuggum í Dvergabakka í árdaga Breiðholtsins. Síðan urðu minningarnar fleiri þegar flutt var í Bakkasel ári síðar. Á þessum tíma gengu handlagnir menn eins og pabbi bara í það að byggja sín eigin hús, auðvit- að með aðstoð vina og félaga. Sumir þeirra unnu í ÍSAL þar sem Jón vann mest af sínum starfsferli ýmis verkfræði og yfirmannastörf. Ætli hafi ekki tekið 10 ár að klára kjallarann í Bakkaselinu, barnafötin saum- uð heima, tekið slátur og svo var það ýsan á mánudögum. Meira og minna drulla og mói allt í kring í fleiri ár. Allt svo bara klárað þegar efni var á því. En svona hálfkarað um- hverfi var afar skemmtilegt fyr- ir okkur bræðurna. Mamma keypti Þjóðviljann og pabbi Moggann og alltaf ákveðin spenna hvort blaðið maður komst fyrst í að lesa við morgunverðarborðið. Alltaf fannst mér ótrúlegt hvað hann gat munað og klárað alla hluti af nákvæmni. Ef ég bað hann um að finna fyrir mig bréfaklemmur eða kaupa reglu- stiku var það alltaf komið heim sama kvöld. Tungumálin voru enn einn hæfileiki pabba: norska, enska, þýska og hol- lenska upp á tíu. Og franska að eigin áliti þótt furðu oft hafi komið rangir réttir á borðið. Og svo voru það Saab-arnir þrír. Hverjum um sig haldið við í fleiri ár, því allt gat hann gert við. „Þú finnur allt í sænskum manjúölum,“ sagði hann. Það var aldrei efi að börn og fjölskylda var það sem öllu skipti, en maður fékk hins veg- ar að labba sjálfur, þýddi ekk- ert að væla um skutl í Mjódd- ina. Áhugamálin voru göngur á hálendinu og í kringum Reykja- vík, en ekki síst við sumarbú- staðafjölskyldu mömmu í Lóni. Hann var löngu byrjaður á öllu svona príli áður en það þótti móðins. Skíði, bóklestur, hlustun á (einkum) klassíska tónlist og áhugi á þjóðmálunum var mikill. Hann var ekkert sérlega orð- margur maður, en þau voru oft fyndin og hugsun á bak við það sem sagt var. Pabbi lauk starfsferli sínum í systurfyrirtæki ÍSAL í Rotter- dam fyrir 10 árum. Hann ferð- aðist gjarnan til fjarlægra landa eftir það eins og Íran, Marrokó og Georgíu auk þess sem við feðgar fórum í skíða- ferðir til systur minnar í Van- couver. Með mömmu voru ferðalögin meiri kúltúr, Ítalía, Sikiley og Wagner-hátíðir í Bayreuth. Við náðum tveir að ferðast um Kína 2004. Eftirminnileg 25 tíma lestarferðin frá Guilin til Hangzhou þegar lestarstjórinn hleypti okkur upp á fyrsta far- rými í staðinn fyrir íslenskar myntir, frímerki (og bjór); í Beijing var áhuginn allur á óendurbættu hlutum Kínamúrs- ins; við borðuðum núðlur á göt- unni; notuðum keðjureykjandi leigubílstjóra með ónýta demp- ara. Skoðuðum auðvitað hofin en báðir höfðum við mestan áhuga á götulífinu. Og hann vildi komast sem fyrst í burtu frá Shanghai, hafði engan áhuga á einhverri svona há- hýsaborg. Bara örfáar vikur síðan við feðgar fórum á kvikmyndahá- tíð, sjálfsagt með elstu mönnum í salnum. Eins þótti mér vænt um að ná að fara í Lón í sumar með eldra barnabarni foreldra minna og það að hitt barna- barnið kom í heimsókn til landsins snemma í vor. Takk fyrir mig og hvíl í friði, Kjartan. Það er viðeigandi að hinsta kveðjan til pabba birtist í Morgunblaðinu því ein af sterk- ustu æskuminningum mínum um pabba er hann, sitjandi í svarta stólnum sínum, að lesa Moggann. Pabbi var klár, sprenglærð- ur, og vissi mikið um margt. Þegar ég stóð á gati var það fyrsta sem mér datt í hug að spyrja pabba enda hjálpaði hann mér með ótal skólaverk- efni. Þegar fræðin urðu flóknari kom það bersýnilega í ljós hversu þolinmóður hann var er við stautuðum okkur fram úr flóknum þýskusetningum og eðlisfræðidæmum. Hann var líka klár í höndunum og alltaf eitthvað að gera, hvort sem það var í húsinu okkar sem hann byggði í Bakkaselinu eða sum- arbústaðnum í Lóni. Meðfram þolinmæðinni var pabbi líka þekktur fyrir þrjósk- una og sú blanda gerði það að verkum að hann kláraði allt sem hann tók sér fyrir hendur, sama hversu langan tíma það tók. Pabbi tók við gömlum tölvum og símum frá fjölskyldumeðlim- um og sá not í hlutum sem aðrir hefðu löngu hent. Honum datt ekki í hug að skipta út ryðguðu sláttuvélinni, „þetta er svo góð heilsurækt“ og ég lærði það fljótt að ég gat ekki notað tölv- una hans því hún tók óratíma að kveikja á sér, en pabbi sat bara rólegur og beið. Sömu sögu má segja af hjólinu hans sem ég fékk lánað einn sum- ardag og fór næstum með á haugana eftir átökin. Þegar ég kvartaði yfir því að engir gírar nema þriðji virkaði, svaraði pabbi: „Nú, þá skiptirðu bara ekkert um gír.“ Enn þann dag í dag er ég sannfærð um að þrjóskan hafi drifið hann áfram á hjólinu. Það helsta sem ég mun alltaf tengja við pabba eru skíði. Hann að hvetja mig áfram á keppnismóti. Árlegar skíðaferð- ir í Evrópu, fyrst með öllum í fjölskyldunni en síðar bara við tvö. Þessi eina vika var tekin al- varlega, við vorum ekki í fríi, heldur í vinnunni sögðum við. Vöknuðum snemma og tókum alltaf síðustu lyftu upp og svo eitt „gluhwein“ og heitt súkku- laði á toppnum. Ef okkur var kalt í lyftunni söng pabbi hátt og snjallt: „Hreyfa tær og hreyfa tær“ og var alveg sama þótt táningurinn við hliðina færi hjá sér. Ég þurfti aldrei að taka bakpoka með mér því pabbi stakk öllum aukabúnaði inn á sig enda í snjógalla eins og alvöruskíðafólk – þetta olli því að hann var oft ansi bústinn á skrítnum stöðum. Snjógallinn var eins og flest sem pabbi átti, í eldri kantinum, og í hverri ferð skoraði hann á mig að reyna hvort ég gæti fundið ein- hvern jafn flottan og hann: mann með grátt hár á besta aldri OG í snjógalla. Nú þegar ég er fullorðin sé ég hversu heppin ég var að eiga ferða- glaða foreldra því minningar um skíðaferðir og aðrar ferðir, sérstaklega til Brielle, eru svo dýrmætar. Pabbi var góður út í gegn og vildi allt fyrir mann gera. Hann hvorki dæmdi fólk né talaði illa um það og kenndi mér hversu mikilvægt það er að virða lof- orð. Hann var ekki sá málgla- ðasti en hafði oft húmorinn í lagi og átti ekki í vandræðum með að gretta sig og geifla til að ná fram brosi. Minning mín um pabba mun einna helst lifa í hvítum fjöll- unum, sérstaklega nú þegar ég byrja að taka dóttur mína, al- veg eins og pabbi, í plóg niður brekkurnar. Guðrún. Guðrún Í dag kveðjum við Jón Hjaltalín Stefánsson, fyrrver- andi rafgreiningarstjóra ISAL. Jón Hjaltalín hóf störf hjá ISAL stuttu eftir að álfram- leiðsla hófst í Straumsvík í apríl árið 1970. Fáeinum vikum síð- ar, hinn 3. maí, var álverið formlega vígt og má því segja að Jón hafi fylgt álverinu frá fyrstu tíð. Hann starfaði í ker- skálum frá upphafi en tók við starfi rafgreiningarstjóra árið 1982 og gegndi því starfi til árs- ins 1996. Áður en Jón tók við starfi rafgreiningarstjóra hafði hann unnið í álveri Alusuisse í Essen og öðlast þar mikilvæga reynslu sem ekki var til á Ís- landi á þeim tíma og miðlaði henni til annarra starfsmanna í Straumsvík. Jón Hjaltalín var öflugur í rafgreiningu og vel menntaður á sínu sviði og á hans starfstíma í Straumsvík jukust bæði afköst og nýtni kerskálanna. Árið 1996 tók hann tímabundið við starfi stey- puskálastjóra en sneri síðar það ár aftur í starf rafgreiningar- stjóra. Þar starfaði hann til árs- ins 1998 þegar hann var ráðinn til Aluchemi í Hollandi sem ráð- gjafi en þar eru m.a. framleidd rafskaut fyrir ISAL. Í Straumsvík minnumst við Jóns með hlýju og fyrir mikla fag- mennsku og góðan árangur á sviði rafgreiningar. Við vottum eftirlifandi eig- inkonu Jóns, börnum og fjöl- skyldunni allri samúð. Með kveðju frá Straumsvík, Rannveig Rist. Jón Hjaltalín Stefánsson Það var harma- fregn að fá fréttir af ótímabæru andláti Lilju Dóru. Vissu- lega var hún að berjast við erfiðan sjúkdóm mán- uðina fyrir andlátið, en þó ávallt bjartsýn og glöð þegar við rædd- um saman um veikindin og sam- eiginleg áhugamál. Við náðum þó aldrei kvöldverðinum sem við undirbjuggum við heimkomu hennar í mars, bæði vegna veik- inda hennar en ekki síður heims- faraldursins sem hefur sett fé- lagslegum samskiptum okkar þröngar skorður undanfarna mánuði, eins og allra lands- manna. Við kynntumst Lilju Dóru fljótlega eftir að við fluttum heim til Íslands aldamótaárið 2000. Hún hafði starfað í Angóla um árabil og kynnst þar af eigin raun lífi fólks í álfunni og sýndi því skilning og áhuga. Það tengdi okkur einnig sérstökum böndum að hún talaði, eins og við, portú- gölsku eftir dvöl í þessari fyrr- verandi nýlendu Portúgala en þeir voru einnig nýlenduherrar Gíneu-Bissá þar sem við höfðum búið og starfað í átta ár. Þegar Lilja Dóra kynntist Nelson, vini okkar sem fæddur er og uppalinn í Gíneu-Bissá, var gaman að geta hent sér í portúgalskan gírinn þegar sá gállinn var á okkur og spilað gíneanska tónlist. Við kynni sín við Lilju Dóru fékk Amina, dóttir Nelson, stjúpmóð- ur og hún dóttur sem var þeim öllum gæfa og mikils virði. Lilja Dóra var frá upphafi meðlimur í Afríku 20:20 – áhuga- mannafélagi um málefni Afríku sunnan Sahara – og tók virkan þátt í störfum félagsins þegar hún var ekki erlendis við störf á vegum Þróunarsamvinnustofn- unar Íslands, seinna utanríkis- ráðuneytisins. Hún starfaði í Úg- anda, Mósambik og nú síðast í Lilja Dóra Kolbeinsdóttir ✝ Lilja Dóra Kol-beinsdóttir fæddist 20. júní 1972. Hún lést 26. nóvember 2020. Út- för Lilju fór fram 4. desember 2020. Malaví þar sem hún var nýtekin við sem sendiráðsfulltrúi Ís- lands þar í landi. Þann stutta tíma sem Lilja Dóra sinnti því starfi – og einkennandi fyrir hana – var hún og samstarfsfólk ómet- anlegur stuðningur við þrjá læknanema sem fóru til landsins í febrúar-mars í ár til að safna efnivið í BS-ritgerðir sínar. Þær nýtast nú til að bæta þjónustu við þungaðar konur, nýbura og framkvæmd bólusetninga, allt viðfangsefni sem Lilju Dóru voru kær og hún sýndi einlægan áhuga. Frá fyrstu kynnum sýndi Lilja Dóra mannkosti sína. Hún hafði þægilega framkomu, var auð- mjúk í þeim störfum sem hún tók að sér og hláturinn var sjaldan langt undan. Með henni er góð vinkona fallin frá í blóma lífsins. Við sem eftir erum höfum misst vinkonu og góða samstarfskonu um málefni Afríku sunnan Sa- hara. Missir Nelson og Amina er þó mestur. Sendum þeim og öðr- um í fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Geir Gunnlaugsson og Jónína Einarsdóttir. Kær vinkona og samstarfs- kona, Lilja Dóra Kolbeinsdóttir, er látin. Tekin frá okkur allt of snemma. Fyrstu kynni okkar Lilju voru í gegnum Jafnréttisskólann árið 2013. Þá átti ég fund með henni og góðri samstarfskonu hennar. Þetta átti að verða stutt spjall sem tók lengri tíma en áætlað var og endaði í frábærum pæl- ingum og skemmtilegum sögum. Sú viðkynning var lýsandi fyrir seinni og frekari kynni af Lilju. Að tala við Lilju var einstaklega gaman. Henni fannst gaman að ræða lífið og tilveruna og umræð- ur voru áhugaverðar, djúpar og fyndnar. Lilja hafði skýra sýn á lífið og hvernig ætti að njóta þess, lifa í núinu og bæta tilveru sína og annarra. Auk þess var hún gestrisin manneskja með eindæmum, hlý, stríðin og mikill húmoristi. Fyrir þremur árum heimsótti ég Malaví í fyrsta skipti. Lilja hafði þá nýverið hafið störf sem verkefnastjóri þróunarsamvinnu við sendiráð Íslands í landinu. Hún tók ekki annað í mál en að ég gisti heima hjá henni og lagði sig fram um að aðstoða og auð- velda sem mest við að gera þessa heimsókn sem eftirminnilegasta. Það sem upp úr stendur voru samræður okkar þessa daga sem ég dvaldi hjá henni og dagsferð okkar til Mangochi-héraðs. Þar kynnti hún mér frábært starf sendiráðsins og ljómaði öll þegar hún ræddi verkefnin en Lilju var grunnmenntun barna hugleikin, og sérstaklega staða stúlkubarna í landinu. Hún var líka drifkraft- urinn sem þurfti til að stærsta fæðingardeild í héraðinu yrði opnuð. Þessi ferð hafði mikil áhrif á mig og varð til þess að ég sótti um starf Lilju þegar hún sagði starfi sínu lausu og tók við starfi forstöðumanns sendiráðs- ins árið 2019. Ég er og verð henni ævinlega þakklát fyrir fyrstu Malaví-kynnin. Þegar fjölskyld- an flutti til Malaví varð hún Lilja „frænka“ sem reyndist fölskyldu minni mjög vel. Við tölum enn um góðgætið sem hún kom með frá Íslandi til að gleðja krakkana og hvernig hún flutti inn þorra- mat og skipulagði frábært þorra- blót fyrir vini og félaga hér. Þrátt fyrir að hafa fengið stuttan tíma saman í Lilongwe, þá var unun að vinna með henni. Löng, merkingarbær og flott starfsreynsla í fjórum Afríku- ríkjum var endalaus uppspretta þekkingar og uppbyggilegrar umræðu. Ég veit að þekkingin og viskan sem Lilja miðlaði til mín mun halda áfram að vísa mér veginn við líf og störf. Lilja bjó yfir miklum andleg- um styrk og kraftur hennar var einstakur og nær óskiljanlegur í gegnum þá erfiðu lífsreynslu sem á hana og hennar nánustu var lögð síðustu mánuði í baráttunni við illvígt krabbamein. Takk, elsku Lilja mín, fyrir stutta en djúpa vináttu. Ég skil við þig full þakklætis fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Hvíldu í friði og ljósi og megi allar góðar vættir vaka yfir Nelson þínum, Aminu og nánustu fjölskyldu og vinum. Kristjana Þ. Sigurbjörnsdóttir. Ég man ekki öðruvísi eftir mér en að horfa upp til pabba, alveg sama í hvaða samhengi það var. Hann var mjög vel les- inn og við göntuðumst oft með að við þyrftum að fletta upp í alfræðiorðabókinni sem var þá pabbi ef einhverjar spurningar vöknuðu. Minni hans og viska var ótakmarkað fannst manni og finnst enn. Hann var jafn- framt svo mikill félagi og góður uppalandi ásamt mömmu. Hann kenndi mér svo ótalmargt varð- Hrafn Jóhannsson ✝ Hrafn Jóhanns-son fæddist 27. júlí 1938. Hann lést 16. nóvember 2020. Útför Hrafns fór fram 25. nóvember 2020. andi náttúruna og umhverfi okkar, veiði, jarðfræði, trjáræktun og að lesa í alla þessa þætti og njóta um leið. Berjaferðir, veiðiferðir, sagna- stundir, jólaundir- búningur öll saman með fallegri jóla- tónlist úr öllum áttum og fyrst og fremst fallegt og innilegt sam- band þeirra mömmu frá því ég man eftir mér er eitthvað sem er svo greypt í huga minn og hefur haft áhrif á mig sem manneskju og uppalanda. Ég stofnaði fjölskyldu seint og naut því samveru með með for- eldrum mínum í ríkum mæli í mörg ár eftir heimkomu frá Brussel þar sem ég var við nám og vinnu. Helgar, jóla- og sum- arleyfi voru einfaldlega skemmtilegust hjá mömmu og pabba eða svo fannst mér og þessum tíma er ég ævinlega þakklát að hafa átt með þeim. Á Straumi höfum við fjöl- skyldan eytt mörgum mörgum stundum saman í trjárækt og uppbyggingu landsins, talið fugla og dásamað fuglasöngin, náð í fisk úr ánni og hreinlega bara verið og andað inn þennan yndislega fjölskyldustað. Ég var svo 12 ára þegar ég fékk fyrst að fara með pabba á rjúpu og það var ævintýri fyrir litla skottu og hafði þau áhrif að mörgum árum síðar vorum við orðin yndislegir veiðifélagar sem sáum um að ná í rjúpur í jólamatinn fyrir fjölskylduna. Þessar stundir með honum eru mér svo ómetanlegar og allar þær upplifanir sem við deildum í þessum ferðum okkar er fjár- sjóður sem ég get sótt í þar sem elsku pabbi er floginn á vit ferðar sem við deilum ekki með honum fyrr en síðar á lífsleið- inni. Ég upplifði mikla sorg að sjá pabba hrörna hratt vegna ill- vígs og sjaldgæfs sjúkdóms en að sama skapi er ég svo þakk- lát að hafa getað stytt honum stundir og eytt miklum tíma með honum í veikindunum. Viskan og þakklætið hvarf hon- um aldrei meðan á þessu stutta stríði stóð og það finnst mér mjög þakkavert. Það er mjög sárt að sjá á eft- ir pabba en það er þó svo mikið af honum allt í kringum okkur sem vonandi græða þau sár sem hafa opnast við fráfall hans. Við erum stór fjölskylda, börnin og barnabörnin og ég upplifi okkur sannarlega arf- leifð hans og mömmu. Mömmu umvefjum við allri okkar ást og kærleik. Hvíl í friði minn elsku besti faðir. Marta Hrafnsdóttir. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.