Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 78

Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 78
78 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 Ájóladag 1991 var hinnrauði fáni Ráðstjórnar-ríkjanna dreginn niður ísíðasta sinn í Kremlkast- ala. Mannfrekasta tilraun mann- kynssögunnar hafði mistekist, en saga hennar er rækilega rakin í Svartbók kommúnismans, sem kom út á íslensku 2009 og ætti að vera skyldulesning í öllum skólum. Heimskomm- únisminn teygði sig snemma norður til Ís- lands, þar sem sannfærðir kommúnistar störfuðu fyrst í vinstri armi Al- þýðuflokksins, stofnuðu síðan eigin flokk 1930, lögðu hann niður 1938 og sameinuðust vinstri jafnaðarmönnum í Sósíalistaflokkn- um, lögðu hann niður 1968 og sam- einuðust vinstri þjóðernissinnum í Alþýðubandalaginu, sem breyttist þá úr kosningabandalagi í stjórn- málaflokk. Alþýðubandalagið var loks lagt niður 1998, og gengu flestir liðsmenn þess ýmist í Samfylk- inguna eða Vinstri græna. Nú hefur Kjartan Ólafsson háaldraður gefið út þætti úr sögu þessarar hreyf- ingar. Hann þekkir hana flestum öðrum betur, en hann var fram- kvæmdastjóri Sósíalistaflokksins 1962-1968, starfsmaður Alþýðu- bandalagsins 1968-1972 og ritstjóri Þjóðviljans um árabil. Sannir trúmenn: Einar, Brynjólfur og Kristinn Bók Kjartans er mikil að vöxtum, í stóru broti og prýdd fjölda mynda, sem sumar hafa ekki birst áður. Hún er lipurlega skrifuð að hætti þjálfaðs blaðamanns, þótt talsvert sé um endurtekningar og lýsingar séu ósjaldan langdregnar. Það lífgar upp á verkið, að Kjartan beinir einkum sjónum að þremur helstu forystu- mönnum hreyfingar kommúnista og vinstri sósíalista á Íslandi, þeim Ein- ari Olgeirssyni, Brynjólfi Bjarnasyni og Kristni E. Andréssyni, en þeim kynntist hann öllum og þó misvel. Gátan, sem hann reynir að ráða, er, hvers vegna þessir þrír hæfileikamenn urðu grjótharðir stal- ínistar, sem þrættu fram á grafarbakkann fyrir aug- ljósar staðreyndir. Meg- inskýring Kjartans er hin sama og Halldór Laxness varpaði fram í Skáldatíma árið 1963: Kommúnismi er trú frekar en stjórnmálaskoðun, draumur um paradís á jörðu, og trú- menn loka augunum fyrir því, sem fellur ekki að sannfæringu þeirra. Þeir vilja ekki vakna til veruleikans. Eflaust er margt til í þessari skýr- ingu, en ég myndi bæta við tveimur öðrum. Líf sumra manna er öðrum þræði veðmál í valdabaráttu, og þessir þrír menn og aðrir í þeirra liði voru sannfærðir um, að þeir hefðu veðjað rétt á framtíðina. Þeir myndu von bráðar breytast úr utan- garðsfólki í innanbúðarmenn. Per- sónulegar fórnir þeirra væru tíma- bundnar. Í öðru lagi skildu kommúnistar ekki, að kenning þeirra er óframkvæmanleg. Þekk- ingin dreifist á mennina, og þess vegna verður líka að dreifa valdinu á þá, ef ekki á illa að fara. Sameign á framleiðslutækjunum er hugmynd, sem ekki gengur upp, en einmitt þess vegna urðu þeir kommúnistar, sem náðu völdum, að velja um það að sleppa þeim eða herða tökin, og þeir brugðu oftast á seinna ráðið. Löðrungar og Rússagull Kjartan þakkar þessum þremur öfl- ugu forystumönnum meira brautar- gengi sósíalista á Íslandi en víðast annars staðar. Hann hefur bersýni- lega sterkari taugar til Einars en þeirra Brynjólfs og Kristins, og var þó Einar blendinn maður samkvæmt lýsingu hans, elskulegur og hlýr á yfirborði, en langrækinn og undir- förull. Margt gerðist skrýtið í tíð Kjartans. Til dæmis varð Einar ofsareiður á landsfundi Sósíal- istaflokksins 1962, þegar Lúðvík Jósepsson stjórnaði samblæstri um að fella marga kommúnista úr mið- stjórn. Eftir atkvæðagreiðsluna æddi Einar að næsta Lúðvíksmanni, sem hann sá, Ásmundi Sigurðssyni, og gaf honum kinnhest (bls. 423). Þegar Hannibal Valdimarsson mætti eitt sinn með tvo fylgdarmenn óboðna á samningafund með Einari og fleiri sósíalistum, snöggreiddist Einar, stökk á fætur, þreif í Hanni- bal og rak meðreiðarsveina hans út, og gekk þá Hannibal með þeim á dyr (bls. 452). Sjálfur slapp Kjartan ekki undan höggum. Brynjólfur vatt sér að honum og rak honum löðrung eft- ir fund í Sósíalistaflokknum 1966, þar sem Brynjólfur varð undir í átökum um, hvort leggja ætti flokk- inn niður og breyta Alþýðu- bandalaginu í stjórnmálaflokk (bls. 455). Kjartan fer fremur lauslega yfir fjárstuðning Kremlverja við komm- únistahreyfinguna íslensku (fram til 1938), enda eru heimildir um hann gloppóttar. Hann hefur þó verið talsverður, og nýlega kom út í Dan- mörku bók, Rauða neðanjarðar- hreyfingin (Den røde underverden) eftir Niels Erik Rosenfeldt prófess- or og fleiri, þar sem staðfestar eru upplýsingar Þórs Whiteheads pró- fessors um, að sænski kommúnistinn Vaknað af draumi Morgunblaðið/Sverrir Brynjólfur Bjarnason Sagnfræði Draumar og veruleiki bbbmn Eftir Kjartan Ólafsson Mál og menning, 2020. innb., 568 bls. HANNES H. GISSURARSON BÆKUR Kristinn E. Andrésson Kjartan Ólafsson Einar Olgeirsson SÖLUAÐILAR Reykjavík: Gullbúðin, Bankastræti 6 s: 551-8588 Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 s: 551-4100 Meba Kringlunni s: 553-1199 Michelsen Úrsmiðir, Kringlunni s: 511-1900 Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320 Meba Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah úrsmiður, Hafnargötu 49 s: 421-5757 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah úrsmiður, Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s: 471-1886 Selfoss: Karl R. Guðmundsson úrsmiður, Austurvegi 11 s: 482-1433 Vestmannaeyjar: Geisli, Hilmisgötu 4 s: 481-3333
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.