Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 80

Morgunblaðið - 10.12.2020, Síða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 1982-1989 Aðfaranótt 20. desember 1982 herjaði kröftugur norðaustan- stormur, svo kröftugur að þriggja og hálfs metra há tótemsúla Sigur- jóns úr tré féll um koll fyrir utan hús okkar Sigurjóns á Laugarnes- inu. Fyrir okkur sem þekktum Sigurjón og tengingu hans við hin sterku öfl náttúrunnar lá mikil tákn- ræn þýðing í falli súlunnar sömu nótt og hann lést. Fjórtán dögum fyrr hafði Sigurjón verið lagður inn á Landspítalann með kransæðatrufl- anir. Þrír synir okkar Sigurjóns voru allir búsettir erlendis – í Danmörku og á Spáni, ýmist í námi eða starfi – og dóttir okkar, Hlíf, var á Ísafirði. Það gekk kraftaverki næst að mér tókst að fá flugmiða með svo stutt- um fyrirvara fyrir öll börnin og tengdadótturina frá Danmörku þannig að við gátum verið saman um jólin og fram yfir útförina. Hún fór fram í Dómkirkjunni hinn 30. des- ember og séra Bjarni Sigurðsson frá Mosfelli jarðsöng. Hann lagði út af faðirvorinu í túlkun Hallgríms Pét- urssonar, sem Sigurjón vitnaði oft í þótt hann liti sjálfur á sig sem trú- leysingja. Börnin höfðu hljóðfærin sín með og spiluðu, ásamt Sesselju Halldórsdóttur á víólu, tvo þætti af flautukvartett í C-dúr eftir Mozart. Veturinn 1983 var óvenju harður og fylgdu honum linnulausir hríðar- byljir og gat vindáttin breyst oft yfir daginn. Ég kenndi við Mennta- skólann við Sund og komst yfirleitt til vinnu með strætisvagni, en mjög oft varð ég að fara þessa u.þ.b. fjög- urra kílómetra vegalengd gangandi þar sem strætó kornst ekki leiðar sinnar. Sumarið varð svo það kald- asta í manna minnum og þegar við Hlíf ætluðum að taka upp kartöflur í garðinum á Eyrarbakka voru þær á stærð við nögl á litlafingri. Að öðru leyti fór árið í að sjá um dánarbúið og skiptin við börnin. Sigurjón var átta barna faðir og saman áttum við fjögur. Það þýddi að ég gat ekki setið í óskiptu búi. Og við blasti risavaxið verkefni. Hvernig átti ég ásamt börnum mín- um, sem flest voru erlendis, að standa vörð um fleiri hundruð lista- verk? Mér var mikill akkur í því að Bjarni Bjarnason endurskoðandi bauð fram ráðgjöf sína, en hann hafði áður verið helsti ráðgjafi mágs míns, Guðna Ólafssonar apótekara. Ég naut einnig mikils stuðnings Sverris Sigurðssonar og Ingibjarg- ar Guðmundsdóttur, því áhugamál þessara heiðurshjóna snerust meðal annars um myndlist. Nokkrum ár- um áður höfðu þau gefið mál- verkasafn sitt til Háskóla Íslands en þar að auki var Sverrir ötull tals- maður þess að heimabær hans, Sel- tjarnarnes, eignaðist útilistaverk. Hann átti því hlutdeild í að Sel- tjarnarnesbær keypti stækkaða út- gáfu af Skyggnst bak við tunglið eftir lát Sigurjóns. Um búsetu Sigurjóns á Laugarnesi Hinn forni menningarstaður Laugarnes var eitt þeirra svæða í Reykjavík sem breska og banda- ríska setuliðið völdu fyrir bækistöð á árunum 1940-1945. Að loknu stríði fluttu um sjötíu húsnæðislausar fjölskyldur inn í hina yfirgefnu her- skála og bragga á Laugarnesi, þar á meðal Sigurjón Ólafsson. Hann hafði dvalið í Danmörku frá árinu 1928 og sneri heim til Íslands með fyrstu skipaferð 1945 ásamt konu sinni, Tove Ólafsson myndhöggvara, og dótturinni Gunnu. Á árunum 1945-63 var Sigurjón með vinnustofu í hermannabragga sem var áfastur litlu steinhúsi, einn- ig frá hernámsárunum. Þessar byggingar hafði herinn notað sem apótek því rétt hjá stóð Laugarnes- spítalinn svokallaði, sem á hernáms- árunum hafði gegnt nýju hlutverki herspítala en varð eldi að bráð árið 1943. Þetta var reisulegt hús, stærsta timburbygging landsins, sem á árum áður hafði þjónað sem spítali holdsveikra og var gjöf frá dönsku Oddfellowreglunni árið 1898. Haustið 1949 kom ég til Íslands þar sem ég hafði ráðið mig í vist hjá læknafjölskyldu í Reykjavík. Ég kynntist Sigurjóni – og úr varð ástarsamband. Á árunum 1952-55 var Sigurjón með annan fótinn í Danmörku, þar sem hann meðal annars mótaði stytturnar af séra Friðriki og Héðni Valdimarssyni í húsakynnum Konunglega listahá- skólans. Ég var í millitíðinni orðin nemandi við höggmyndadeild listaháskólans. Sigurjón fann litla íbúð fyrir okkur á Norðurbrú í Kaupmannahöfn og þar eign- uðumst við tvö elstu börnin, Ólaf 1953 og Hlíf 1954. Þegar gengið hafði verið form- lega frá hjónaskilnaði Tove og Sigurjóns sneri hann aftur heim á Laugarnes vorið 1956, ásamt mér og börnum okkar, Ólafi og Hlíf. Ári síðar fæddist Freyr og í janúar 1959 yngsti sonur okkar, Dagur. Í desember 1959 veiktist Sigurjón og greindist með lungnaberkla og þurfti næstu árin að dvelja fjarri heimilinu. Yfirlæknirinn á Reykja- lundi, Oddur Ólafsson, sýndi mik- inn skilning og gaf undanþágu frá reglum um vistun smitandi sjúk- linga á Reykjalundi með því að leyfa Sigurjóni að vera þar, að vísu í einangrun fyrst í stað. Sigurjón hefði átt að leggjast inn á Vífils- staði, en hann þvertók fyrir að fara þangað. Hann gat ekki gleymt því hvað hann hafði sem unglingur kynnst mörgum sem ekki áttu afturkvæmt þaðan. Sem betur fer hafa síðan orðið miklar framfarir í læknavísindunum. Sigurjón var því vistmaður á Reykjalundi næstu þrjú árin, eða til ársloka 1962. Í millitíðinni tók Ragnar Jónsson í Smára, sveitungi Sigurjóns, bóka- útgefandi og velgjörðarmaður lista- manna, til sinna ráða og með hvatningu frá Auði Sveinsdóttur Laxness lét hann byggja níutíu fer- metra íbúðarhús norðan við stein- húsið. Húsið var timburbygging reist á steyptum sökkli svo hægt væri að flytja það burt, því ekki fékkst byggingarleyfi þar sem ekki hafði verið gengið frá deiliskipulagi Laugarness. Arkitekt hússins var Skarphéðinn Jóhannsson, góðvinur Sigurjóns. Hann teiknaði einnig vinnustofu sem reist var árið 1963 yfir braggann, sem síðan var rifinn innan úr. Það var þannig staðið að verki til að sem minnst þyrfti að hrófla við höggmyndum, verkfær- um og verkum sem voru þar í smíð- um; þar stóð til dæmis Klyfjahest- urinn, sem ekki var hægt að fullgera í gamla bragganum vegna ónógrar lofthæðar. Nýja vinnustof- an var rúmgóð og björt en gólf- kuldi mikill. Notast hafði verið við gamla gólfið úr bragganum, sem ekki var einangrað, aðeins stein- steypt hella á jörðinni, og önnur einangrun skálans var ófullnægj- andi svo oft var ógerlegt að ná hit- anum upp fyrir fimmtán gráður. Þegar Sigurjón féll frá árið 1982 höfðu veður og vindar leikið vinnu- stofuna grátt, svo listaverkin mörg hver lágu undir skemmdum vegna leka og raka. Listasafn og menningarsetur Bókarkafli | Í bókinni Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, tilurð og saga er sagt frá því hvernig listasafn og menningarsetur varð til í Laugar- nesinu fyrir tilstilli Birgittu Spur, ekkju Sigur- jóns. Birgitta ritstýrir bókinni, en í henni er sagan rakin frá 1982 og allt til 2018 með grúa mynda. Ljósmynd/Úr einkasafni Framkvæmdir Grind reist yfir braggann sem síðan var rifinn. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Listamaður Sigurjón Ólafsson í vinnustofu sinni. Stofan var reist yfir bragga og bragginn síðan rifinn innan úr. Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Komin í verslanir Hagkaupa, Nettó, Melabúðin, Fjarðarkaup, Veganbúðin, Fisk Kompaní, Frú Lauga, Iceland verslanir og Matarbúr Kaju Akranes Hátíðar hnetusteik Lífrænt - Vegan - Glúteinlaust
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.