Skólavarðan - 2017, Qupperneq 6
6 HAUST 2017
FRAMTÍÐIN ER Í HÚFI
Útgjöld hins opinbera til menntamála á hvern
landsmann hafa lækkað um 13,5 prósent frá
því þau náðu hámarki árið 2008. Þetta kemur
fram í úttekt hagfræðings KÍ sem unnin
var upp úr Hagtíðindum Hagstofu Íslands.
Þar kemur einnig fram að á sama tíma hafi
framlög heimila til menntamála hækkað
um fimm prósent og heimilin greiði nú 9,5
prósent af heildarútgjöldum til málaflokksins.
Í yfirlýsingu sem stjórn KÍ sendi frá
sér í tengslum við samantektina segir að
stjórnmálamenn beri ríka skyldu til að
tryggja þeirri kynslóð sem nú vex úr grasi
sem besta framtíð. „Fyrir þennan hóp er
ekkert mikilvægara en að hafa aðgang að
öflugu menntakerfi. Samdráttur í framlögum
til menntamála er því óverjandi. Á komandi
árum mun góð menntun hafa úrslitaáhrif
á afkomu þeirra einstaklinga sem hér
munu búa sem og þjóðarinnar í heild.
Stjórnmálamenn verða að hafa framtíðarsýn
því ákvarðanir dagsins í dag munu hafa áhrif
á afkomu þjóðarinnar næstu áratugi. Þó
stjórnmálamenn staðhæfi á tyllidögum að
þeir vilji veg menntakerfisins sem mestan
sýna þær tölur sem hér er vitnað til að slíkur
vilji endurspeglast ekki í útgjöldum hins
opinbera til menntamála. Stjórn KÍ hvetur því
stjórnmálamenn til góðra verka við að styrkja
menntakerfið. Framtíðin er í húfi.“
Veistu um eign á landsbyggðinni eða
erlendis? Orlofssjóður KÍ óskar eftir
orlofseignum, góðum sumarbústöðum og/
eða íbúðum, til framleigu fyrir félagsmenn
sumarið 2018. Leigutímabil er frá 8. júní til
10. ágúst, eða níu vikur. Möguleiki er á að
skoða styttri leigutíma en þó ekki skemur en
fimm til sex vikur.
Áhugasamir eru beðnir að senda tilboð
til Orlofssjóðs, netfangið er orlof@ki.is. Í
tilboði þarf að vera lýsing eignar, ástand,
stærð, byggingarár, herbergjaskipan,
staðsetning og verðhugmyndir. Ljósmyndir
af eign og nánasta umhverfi þurfa einnig að
fylgja.
ORLOFSSJÓÐUR KÍ LEITAR AÐ HÚSUM
Orlofshús Kí á Flúðum.
EFTIRLAUN OG LÍFEYRIS-
RÉTTINDI
Fræðslufundur um
eftirlaun og lífeyr-
isréttindi fer fram
þriðjudaginn 21.
nóvember 2017 í
fundarsal LSR við
Engjateig.
Fundurinn er fyrir
félagsmenn KÍ sem eru
að nálgast töku eftirlauna, 60 ára og eldri,
og er hann haldinn í samstarfi við BRÚ –
lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga og
Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Nánari
upplýsingar á vef KÍ.
FRÆÐSLUNÁMSKEIÐ UM
STARFSLOK
Námskeið fyrir þá félagsmenn KÍ sem eru
að nálgast töku eftirlauna, um félagslega
og heilsufarslegar hliðar starfsloka vegna
aldurs verður haldið 21. nóvember.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við
fræðslufyrirtækið Auðnast, og sjá þær
Hrefna Hugósdóttir hjúkrunar- og fjöl-
skyldumeðferðarfræðingur og Ragnhildur
Bjarkadóttir B.s. í sálfræði og fjöl-
skyldumeðferðarfræðingur um fræðsluna.
Skráningargjald á námskeiðið er krónur
5.000 og greitt með kreditkorti. Þeir sem
mæta á námskeiðið fá gjaldið endurgreitt.
Nánari upplýsingar á vef KÍ.