Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 56

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 56
56 HAUST 2017 Fjóla Þorvaldsdóttir segir Íslendingasögur hafa verið í mestu uppáhaldi í grunnskóla. Hún hlakkar til jólanna og væri til í að kenna þjóðinni gildin kærleika, virðingu, þakklæti og umburðarlyndi HVER: Ég er fædd og uppalin á Akranesi og á ættir að rekja þangað og á Strandir. Ég hef búið lengst um ævina í Kópavogi. Ég er leikskólasérkennari í leikskólanum Álfaheiði í Kópavogi og varaformaður Félags leikskólakennara. Ég er nú um stundir í námsleyfi og er að rembast við að klára meistaraverkefnið mitt. Hvað er efst á baugi hjá Félagi leikskólakennara þessa dagana? Þetta starfsár okkar er helgað nokkrum meginverkefnum. Við höldum áfram að leita leiða til að gera leikskólakennaranám eftirsóknarverðara með það að markmiði að fjölga leikskólakennurum. Við ætlum að fjalla um menntun án aðgreiningar í leikskólum og komast að því hvað hugtakið þýðir og hvernig við getum unnið að því að gera leikskólann fyrir öll börn. Við viljum vekja athygli sveitarstjórn- armanna á því að börn í leikskólum þurfa aukið rými og að fjölga þarf undirbúnings- tímum leikskólakennara. Samhliða þessu ætlum við að undirbúa aðalfund félagsins. Eitthvað annað sem er spennandi eða brýnt fram undan hjá FL? Við munum í vetur sjá afrakstur nokkurra verkefna sem við höfum unnið að undanfarin ár. Við ætlum að vekja meiri athygli á tilrauna- verkefninu okkar um hljóðvist í leikskól- um og það verður spennandi að fylgjast með karlkyns nemunum sem við erum að styðja sérstaklega til náms. Svo verða kosningar hjá okkur á vormánuðum þar sem við kjósum nýja forystu í félagið, en það er gert á 4 ára fresti. Hvernig leggst veturinn í þig? Veturinn leggst vel í mig, ég held að þjóðin sé farin að skilja að það þurfi að gera átak í að reisa við menntakerfið. Hlakkarðu til jólanna? Jólin eru uppá- halds, sérstaklega af því að núna bý ég við þau forréttindi að vera áhyggjulaus – þarf bara að mæta á réttum tíma í mat hjá börnunum. Jól með börnum, tengdasyni og ömmustrákunum mínum tveimur eru sérlega skemmtileg. Í hvaða klúbbum ertu? Ég er í nokkrum vinahópum þar sem fólk hefur svipuð áhugamál, t.d. saumaklúbbum sem ekkert er saumað í, og svo hitti ég reglulega tækninörda sem er sérlega gaman að leika sér með. Svo má ekki gleyma Þrastavina- félaginu sem hefur starfað í rúm þrjátíu ár. Hvaða bók er á náttborðinu? Sagan af barninu sem hvarf eftir Elenu Ferrante og Supporting Information and Comm- unications Technology in the Early Years eftir John Siraj-Blatchford og David Whitebread. Hvert var uppáhaldsfagið þitt í grunnskóla? Saga þótti mér skemmtileg en Íslendingasögurnar voru í mestu uppáhaldi alla tíð. Hundur eða köttur? Hundur þó svo að Dalía mín sé óþekkasti hundur sem sögur fara af. FÉLAGINN FJÓLA ÞORVALDSDÓTTIR (55 ÁRA ÞAR TIL Á DEGI ÍSLENSKRAR TUNGU) HEFUR GAMAN AÐ ÞVÍ AÐ LEIKA SÉR MEÐ TÆKNINÖRDUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.