Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 30

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 30
30 HAUST 2017 Borgarholtsskóli er kjarnaskóli bílgreina á Íslandi og þar eru kenndar þær þrjár iðngreinar sem tilheyra bílgreinum, þ.e. bifvélavirkjun, bifreiðasmíði og bílamál- un. Útsendari Skólavörðunnar settist á dögunum niður með þremur stjórnendum skólans, þeim Inga Boga Bogasyni aðstoðar- skólameistara, Marín Björk Jónasdóttur, sviðsstjóra iðn- og starfsnáms, og Sigurjóni Geirssyni Arnarsyni, deildarstjóra bílgreina, og ræddi stöðuna eins og hún blasir við þeim. Öll eru þau sammála um að þær hröðu breytingar sem þegar hafa orðið á bílaflota heimsins og þær breytingar sem eru fram undan kalli á nýjar aðferðir við kennslu og nám. „Gagnvirkar upplýsinga- brautir þurfa að vera greiðari og kennarar þurfa að fá tækifæri til að læra um nýjustu tækni hjá bílaumboðunum. Eins þarf að greiða götu sérfræðinga bílafyrirtækjanna til að koma í skólann og kenna þar nýjustu strauma og stefnur.“ Sigurjón segir að þó að breytingarnar hafi verið miklar síðustu ár og verði örugglega enn hraðari á næstu árum þá verði alltaf þörf fyrir bílgreinarnar. „Það verður aldrei þannig að þú getir farið með rafbílinn á tölvuverkstæði og látið gera við hann þar þó svo að hann gangi bara fyrir rafmagni. Það þarf alltaf að fagmenn til þess að laga bílinn þinn,“ segir Sigurjón. „Þeir sem sinna viðhaldinu í framtíðinni þurfa örugglega að hafa meiri tækniþekkingu en í dag, en á meðan bíll sprengir eldsneyti þá þurfum við fólk sem kann að laga slíkar vélar. En þetta á örugglega eftir að breytast Árum saman þurftu bifvélavirkjar einungis að spyrja sjálfa sig hvort ökutæki gengi fyrir bensíni eða dísil áður en þeir hófust handa við að gera við bilaða vél. En svo er ekki lengur. Tvinn-, tengitvinn-, rafmagns- og metanbílar eru meðal þeirra sem ryðjast inn á markaðinn um þessar mundir. Það hefur orðið bylting í heimi bílgreina síðustu misseri. En hvaða áhrif hefur það á kennslu í greininni? BÍLGREINAR Í HRINGIÐU BREYTINGA Í Borgarholtsskóla eru kenndar þær þrjár iðngreinar sem tilheyra bílgreinum, þ.e. bifvélavirkjun, bifreiðasmíði og bílamálun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.