Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 22

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 22
22 HAUST 2017 grunnskólanum. Þau fara þá í heimsóknir í skóla, kynnast bókstöfunum og tölustöfunum og stíga fyrsta skrefið frá leikskólanum. Kristján og Kastaniehuset Eftir að hafa rætt við þau Hafrúnu og Bjarna hitti tíðindamaður Skólavörðunnar Kristínu Kristjánsdóttur. Hún býr ásamt manni sínum, Gísla Galdri Þorgeirssyni, og syni þeirra, Kristjáni Galdri, á Norðurbrú. Kristján Galdur er fjögurra ára og byrjaði í vor í leikskólanum Kastaniehuset. Í þessum leikskóla er fyrirkomulagið þannig að börnin fara þriðju hverju viku út í sveit en eru svo hinar tvær ,,heima“. Kristín sagði að þau hefðu valið þennan leikskóla vegna þessa fyrir komulags. Þegar farið er í sveitina er lagt af stað frá leikskólanum klukkan níu og komið til baka um klukkan hálf fjögur, en aksturinn tekur hálftíma hvora leið. Í Kastaniehuset eru fjórar deildir og fer Kristján alltaf með sama hóp jafnaldra sinna í sveitina, en þeir eru ekki allir á sömu deildinni heima í skólanum. Kristín sagði þau hafa heyrt góða hluti um þetta fyrirkomulag en að þau hefðu ekki viljað fara alla leið, þannig að Kristján færi alltaf úr bænum. Hvernig tók hann þessu? Hann tók þessu mjög vel og hann hlakkar alltaf til að fara í sveitina. Það er fyrst þegar börnin eru orðin fjögurra ára sem þau fá að fara í sveitina og það er viss áfangi. Þessi ,,stóru“ fá kort, með mynd, svona eins og starfsmannakort á vinnustöðum. Börnin verða að muna eftir að hafa kortið meðferðis. Kortið fá þau sent í pósti ásamt sérstöku skjali sem staðfestingu þess að nú séu þau tilbúin fyrir þennan áfanga. Er dagurinn í sveitinni mjög skipulagður? Nei, en hins vegar er lögð áhersla á ákveðna hluti eftir árstíma. Það getur t.d. verið froska- eða mauraþema svo ég nefni eitthvað, en annars hafa börnin mjög mikið frelsi. Þarna í sveitinni er alltaf sama starfs- fólkið og sami bílstjórinn sem ekur rútunni. Er kokkur á staðnum? Nei, þau fara með nesti sem er útbúið í leikskólanum. Þau fara með aukaföt í byrjun vikunnar en svo eru pollagallar, allir eins, í sveitinni. Er Kristján Galdur þreyttari þegar hann kemur úr sveitinni en þegar hann er ,,heima“ í leikskólanum? Já, miklu þreyttari. Greinilega miklu meiri ,,vinna“ en að vera í borginni. Á síðasta ári leikskólans fara börnin ekki í sveitina, þá eru þau í skolegruppe. Það er sama fyrir- komulagið og tíðkast í öllum leikskólum. Myndirðu mæla með svona leikskóla eins og Kastaniehuset? Já. Tvímælalaust. Við þetta er engu að bæta öðru en því að tíðindamaður Skólavörðunnar heyrði ,,hljóðið“ í nokkrum dönskum foreldrum sem eiga börn á leikskólum sem starfræktir eru með sama eða svipuðu sniði og því sem hér hefur verið lýst. Þeir lýstu allir mikilli ánægju með fyrirkomulagið. Kristín Kristjánsdóttir ásamt Kristjáni Galdri. Hafrún og Úlfur við hristidolluna en það er rútan kölluð. SORPA býður fræðslu- og vettvangsferðir fyrir nem endur á öllum aldri. Fræðslan tekur mið af þörfum hópsins og er boðið upp á mismunandi leiðir. • Fyrirlestur og vettvangsferðir nemenda í móttökustöð SORPU í Gufunesi. • Vettvangsferðir nemenda á endurvinnslustöð. • Ráðgjöf og fræðsla í skólann fyrir nemendur og starfsfólk. Í fræðslunni er lögð áhersla á um hverfis ávinninginn sem felst í því að draga úr úrgangi og flokka og skila til endurnýtingar. Hinir ýmsu hlutir geta öðlast framhaldslíf, í höndum nýrra eigenda eða sem nýjar vörur, ef við flokkum rétt. Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is Nánari upplýsingar um fræðsluna og pantanir, er að finna á sorpa.is NOTAÐ FÆR NÝTT HLUTVERK FRÆÐSLA HJÁ SORPU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.