Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 53

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 53
HAUST 2017 53 þeir foreldrar sem eru annarrar trúar sem setja út á kristinfræði. Kristján: Það er eins með kynlíf og trú; það má ekki ræða þetta. Hera: Við verðum að taka þessa umræðu um þetta og hvað við ætlum að gera. Og það er líka dálítið í tísku – ég leyfi mér að segja tíska – að vera ekki trúaður; að þurfa að pukrast með þetta svolítið. Eins og þú segir kynlíf og trú – eins og það megi ekki tala um þetta. Eru litlu jólin haldin í skólunum? Hera: Það eru haldin jólaböll í Landakots- skóla og litlu jól í stofunum. Kristján: Það eru líka haldin jólaböll í Fella- skóla. Það er eitthvað skreytt hjá okkur en það fer ekki mikill tími í það. Hera: Það er hefð í Landakotsskóla að 2. bekkur setur upp helgileik í Landakots- kirkju. Kristján: Ég held það sé helgileikur í Fellaskóla. Hver er skoðun ykkar varðandi kirkjuheim- sóknir grunnskólanema fyrir jól? Kristján: Þegar við vorum með kirkjuheim- sóknir í skólanum þar sem ég vann áður þá snerist þetta um að koma saman, eiga notalega stund og syngja jólalög. Ég sá ekkert að þessu. Þetta þótti ekki viðeig- andi. Hera: Fannst þér ekki bara örfáir vera á móti kirkjuheimsóknum? Kristján: Þeir voru bara svo háværir og við hin bara þögðum. Þetta er bara skemmti- leg og notaleg stund. Ég skil þetta ekki alveg. Þess vegna er ég að koma inn á þessa pólitísku rétthugsun; það má enginn tjá sig eitt eða neitt um þessi mál. Hera: Nema þú sért á móti og þá er það kórrétt. Kristján: Ég ber virðingu fyrir þeim sem eru trúlausir. Ég ber líka virðingu fyrir öllum hinum. Við erum bara manneskjur. Punktur. Þetta snýst um að við erum að mennta næstkomandi kynslóð til að takast á við hvert annað og geta lifað í sama sam- félagi. Þess vegna er svo mikilvægt að við kynnum öll trúarbrögð. Trúarbragðafræðsla í grunnskólum er ekki nægileg. Hera: Nei, ég held ég geti verið sammála þér. Eins og þú segir – þetta er orðið fjöl- menningarsamfélag. Til þess að við getum lifað í sátt og samlyndi með öll þessi ólíku trúarbrögð þá verðum við að vita um hvað þetta snýst eins og þú sagðir. Við verðum að vita þetta til að eyða þessum fordómum af því að fordómar spretta af vanþekkingu. Engu öðru. En varðandi kirkjuheimsóknir fyrir jólin. Við í Landakotsskóla förum sumsé í kirkju fyrir jólin. Ég hef ekki heyrt annað en að foreldrar séu ánægðir með þá ráð- stöfun. En við erum í nábýli við kaþólsku kirkjuna og okkar skólastarf gengur meðal annars út á kristileg gildi; það stendur í stefnuskrá skólans og birtist í því að við för- um með bæn, erum með fræðslu í kringum kristilegar hátíðir og förum í kirkju. Við erum til dæmis með helgileik og þetta er saga sem margir trúa en ekkert allir og maður ber virðingu fyrir. Mér finnst vera hátíðlegt og gaman að hafa helgileik og ég upplifi það að börnunum finnst það líka vera gaman. Kristján: Málið er líka það að við verðum að passa okkur – þetta er mjög varasamt efni að kenna. Við megum ekki fara yfir í trúboð. Við verðum að vera vel undirbúin þegar við erum að kenna þetta efni. Þegar ég var að kenna trúarbragðafræði fyrir nokkrum árum þá fékk ég heimsóknir frá þessum stofnunum í tíma; það var frábært og krakkarnir fengu að spyrja ýmissa spurninga. Hera: Já, ég held að þetta sé góð leið að veita fræðslu um trúarbrögð að fá meðlimi í hinum mismunandi söfnuðum að segja frá sinni trú. Kristján: Mér finnst að öll trúarbrögð eigi að vera tekin fyrir. Við megum ekki mismuna. Hera: Ég er sammála þér en kannski ætti kristin trú að vera í forgangi. Kristján: Þá finnst mér að það ætti að vera heima. Mér finnst ekki að það eigi að vera okkar að taka ein trúarbrögð fram yfir önnur. Mér finnst að það eigi jafnt yfir alla að ganga og síðan undir heimilunum komið hvort þau vilji fá aukakennslu. Hver hafa viðbrögð foreldra verið út af því að sums staðar er ekki farið í kirkju fyrir jólin? Kristján: Engin viðbrögð. Einhver tautar úti í horni einhvers staðar. Hera: Já, ég tel að það sé þannig. Mín tilfinning var sú að það urðu mjög margir ósáttir en þorðu ekki að taka af skarið eða vildu það ekki. Kristján: Málið er að það er miklu þægilegra að þegja og taka ekki afstöðu og þá er ekkert rugl og þú færð að vera í friði. Hvaða máli skiptir að kenna trúarbragða- fræði í grunnskólum? Kristján: Þetta er bara partur af menn- ingunni. Sama hvort fólk vill það eða ekki. Það er bara þannig. Þetta er mikilvægur partur af því að vera það sem við erum. Það sem mótar okkur. Hera: Bæði menningarlega og siðferðislega. Kristján: Það er samnefnari í öllum trúar- brögðum. Hera: Mér finnst það skipta mjög miklu máli í okkar sívaxandi fjölmenningarsam- félagi að nemendur okkar fái fræðslu um mismunandi trúarbrögð. Kristján: Við erum manneskjur númer eitt, tvö og þrjú. Flest af þessum trúarbrögðum ganga út á náungakærleik og að sýna virðingu gagnvart öðrum. Og það er mjög jákvæður boðskapur finnst mér. Hera: Sammála því. Ég tel að við séum sam- mála um að það þurfi að auka fræðsluna. Kristján: Já, og það þarf að opna umræðuna um þetta. Ef fólk ætlar að ræða um málefni sem eru ekki pólitísk rétthugsun þá er fólk stimplað strax í staðinn fyrir að taka umræðuna. Hera: Númer eitt, tvö og þrjú er fræðsla um ólíka menningarheima. Það er hætta á að fordómarnir komi í ljós ef fólk fær ekki fræðslu. Kristján: Það þarf að opna umræðu um þetta efni. Fjölmenningin er ekkert að fara. Við þurfum að kynnast hvert öðru til þess að láta þetta ganga. Þetta er orðið alþjóðasamfélag út um allt og það er okkar fullorðna fólksins og þeirra sem sjá um fræðsluna og kennslu barna að fræða þau um þessi mál til þess að koma í veg fyrir vanþekkingu og vankunnáttu á siðum og venjum hvers annars. Og þá öðlumst við almenna mannlega virðingu. Hera: Ég er alveg sammála þér en ég held líka að við þurfum að þekkja vel kristinfræðina, sögu okkar og menningu í gegnum kristinfræði til þess að geta lært um önnur trúarbrögð. En ekki að auka trúarbragðafræðina á kostnað kristin- fræðinnar. Ef þau vita ekki hvað kristinfræði er þá geta þau ekki tekið vitræna afstöðu um hvort þau vilja vera kristin eða ekki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.