Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 55

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 55
Árlega úthlutar Erasmus+ á Íslandi 1.000 milljónum króna til fjölbreyttra mennta- og æskulýðs- verkefna, sem sýnir þann metnað sem íslenskt skólafólk hefur fyrir hönd skólanna og nemenda sinna. Um 30.000 þátttakendur hafa tekið þátt frá upphafi áætlunarinnar hér á landi. Við erum stolt af því góða samstarfi sem við höfum átt í gegnum árin og horfum áfram fram á veginn. Takk fyrir þátttökuna! starfsfélögum. Það sem gerði þetta ólíkt öðrum vinnubúðum, námskeiðum og ráðstefnum sem við höfum setið var að vinnubúðirnar voru haldnar í Útey, Noregi. Eyjan lætur engan ósnortinn og við hugsuðum öll um hvað við hefðum gert í sporum þeirra sem voru í eynni 22. júlí 2011. Voðaverkin í Manchester gerðust á meðan við vorum þarna. Okkur var sagt að sama kvöld væru skólastjórnendur að öllum líkindum að funda og skipuleggja hvernig skólar gætu best tekið á móti nemendum morguninn eftir. Hvað myndum við gera í þeirra sporum? Sumarnámskeið 2017 Í ágúst héldum við námskeið fyrir reykvíska kennara. Markmið þess var að þátttakendur: • Þekktu til þess hvaða málefni geta verið umdeild eða viðkvæm og skildu mikilvægi þess að geta rætt þau við nemendur. • Gerðu sér grein fyrir hvernig eigin skoðanir, reynsla og gildi geta haft áhrif á hvernig við tölum um umdeild og viðkvæm málefni. • Áttuðu sig á hvernig við sköpum öruggt umhverfi fyrir slíkar umræður. • Efldust að sjálfstrausti til að geta tekist á við umdeild málefni og skoðanir. Á námskeiðinu var fjallað um ýmis viðkvæm álitamál sem upp geta komið í skólastarfi og leiðir til að bregðast við þeim. Má þar nefna ólíka þætti eins og kynþáttahatur, samskipti kynja, kynvitund og hlutverk foreldra í uppeldi barna. Íslenskri þýðingu á handbókum fylgt eftir Í lok vinnubúðanna í Útey var þátttakend- um falið að móta áætlun um hvernig við hygðumst kynna það sem þar fór fram fyrir skólafólki á Íslandi. Fyrsta verkefnið þegar heim var komið var að funda með mennta- málaráðuneyti um þýðingu á handbókum fyrir kennara og skólastjórnendur. Ráðu- neytið brást vel við og er málið komið í ferli. Þegar íslensk þýðing á handbókunum liggur fyrir verða þær sendar skólum auk þess sem við undirrituð erum tilbúin að fylgja þeim eftir með námskeiði eða minni fundum. Við viljum ítreka að þetta er ekki nýtt kerfi sem innleiða á í skólum. Hand- bókin er með hagnýtum leiðbeiningum og verkefnum sem falla vel að skólastarfi, enda eiga starfshættir grunnskóla meðal annars að mótast af umburðarlyndi og kærleika, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju og virðingu fyrir manngildi. „Það sem gerði þetta ólíkt öðrum vinnubúð- um sem við höfum setið var að vinnubúðirnar voru haldnar í Útey, Noregi. Eyjan lætur engan ósnortinn.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.