Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 42
kennslu. Ég er með í skólanum bók um
endurvinnslu en við notum netið líka mikið.
Það er nauðsynlegt að endurvinna hlutina
af því að jörðin okkar tekur ekki endalaust
við. September var plastlaus mánuður og
þá er til dæmis gott að nota tækifærið og
ýta undir að nota margnota poka, en það er
hægt að hanna, skapa og teikna á alls konar
poka úr margs konar efnum. Einnig er hægt
að endurnýta t.d. kaffipoka. Margir hönnuð-
ir endurnýta ýmis konar fatnað og sauma
nýjan úr gömlum flíkum. Þetta verður alltaf
stærri og stærri hópur sem er bara jákvætt.“
Það er vissulega gagnlegt að fylgjast vel
með í textíltímum. „Mörg okkar eigum börn
sem koma úr skólanum með saumsprettu,
gat og annað sem þarf að laga. Foreldrar
fara ekkert endalaust út í búð til að kaupa
nýjar flíkur; það þarf að kunna hvernig á
að sauma, setja tölur, falda buxur, setja
rennilás eða laga saumsprettu. Ég legg
ríka áherslu á þetta í minni kennslu og læt
nemendur koma með föt að heiman sem
þeir þurfa að laga. Ef það kemur saum-
spretta í fatnað í skólanum þá vil ég að þeir
lagi það hjá mér í tíma til að kenna þeim
hvernig það er gert.“
Áhugamál og vinna
Hjördís segir að textíllinn sé bæði vinna og
áhugamál. „Ég hugsa mikið um vinnuna og er
oft á netinu, svo sem á Pinterest og YouTube,
til að skoða hvað ég gæti gert í textíl. Ég er
ekki bara að hugsa um sjálfa mig heldur líka
um hvað nemendur geti gert úr þessu og
hvort ég geti fundið eitthvað handa þeim. Þó
ég sé að gera eitthvað fyrir sjálfa mig þá sé ég
oft líka eitthvað sem væri flott fyrir þá að gera
og vil kannski prufa það í næsta tíma.
Þetta er bara svo gaman. Þetta er
áhugamálið mitt og þetta er vinnan mín.“