Skólavarðan - 2017, Qupperneq 38
38 HAUST 2017
Miklar breytingar hafa síðustu árin orðið á
skólastarfi, kennsluháttum og þeirri tækni
sem nýtt er við kennslu. Á sama tíma hefur
skólastofan þar sem námið fer fram lítið
breyst. En er þörf á breytingum þar? „Já,“
segir hópur kennara við Menntavísindasvið
Háskóla Íslands, sem hannaði og setti
upp skólastofu 21. aldarinnar. Vinnuna
leiddi Anna Kristín Sigurðardóttir, dósent
við Menntavísindasvið HÍ. Útsendari
Skólavörðunnar settist niður með henni á
dögunum og forvitnaðist um verkefnið. Við
byrjuðum á að ræða hvernig verkefnið kom
til.
„Fyrir nokkrum árum var hafist handa
við að hanna nýja byggingu fyrir Mennta-
vísindasviðið á háskólalóðinni vestur í bæ.
Þó ekkert hafi orðið af þeirri framkvæmd
þá vaknaði á þessum tíma spurningin um
hvernig við viljum kenna í framtíðinni og
við hvaða aðstæður? Við fórum þá í svolitla
sjálfsskoðun og komumst að því að allt
kennsluumhverfi háskólans er í raun mjög
gamaldags,“ segir Anna Kristín.
Hópurinn lagði upp með að í stofunni
þyrfti að vera hin fullkomnasta tækni til m.a.
kennslu og samstarfs nemenda. Umhverfið
þyrfti enn fremur að bjóða upp á fjölbreyttar
leiðir í námi og kennslu, til dæmis hópastarf
en einnig einstaklingsbundna vinnu og
heildstæða vinnu til jafns við hefðbundna
miðlun þekkingar. „Við gerum ráð fyrir að
nemendurnir sem við erum að mennta í
stofunni fari að námi loknu út í skólana og
nýti sér tæknina þar. Við erum fyrirmynd í
kennsluháttum á öllum skólastigum þegar
við menntum kennara og því gengur ekki að
við bjóðum aðeins upp á tuttugustu aldar
umhverfi og kennsluhætti,“ segir Anna
Kristín.
Styður við fjölbreytta kennsluhætti
„Við hönnun stofunnar, sem og í öllu
starfi hér í deildinni, þarf að taka tillit til
þess að við erum með marga nemendur í
fjarkennslu. Það þýðir að við erum reglulega
að kenna á sama tíma nemendum sem sitja
í skólastofunni fyrir framan kennarann
og nemendum sem fylgjast með í gegnum
tölvur víðsvegar á landinu. Því til viðbótar
eru nemendur sem horfa á upptökur af
kennslustundinni. Þetta er því ekki hreint
staðarnám eða fjarnám, heldur blanda
af hvoru tveggja. Kennararnir eru líka
mismunandi. Við erum auðvitað með mikið
af fyrirlestrum en margir kennarar leggja
sérstaka áherslu á hópavinnu og almennt
SKÓLASTOFA TUTTUGUSTU
OG FYRSTU ALDARINNAR
Nýjustu tækni og fislétt húsgögn má finna í nýrri skólastofu í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Anna Kristín Sigurðardóttir og Guðjón H. Hauksson framhaldsskólakennari prófa húsgögn í skólastofu 21. aldarinnar við opnum hennar á Alþjóðadegi
kennara, 5. október. Ingvar Sigurgeirsson prófessor og Áslaug Björk Eggertsdóttir fylgjast með. MYND: KRISTINN INGVARSSON