Skólavarðan - 2017, Síða 46

Skólavarðan - 2017, Síða 46
46 HAUST 2017 kominn svo langt að þú getur ekki einu sinni haldið í við hann. Áhugi er góður en stundum getur hann verið of mikill. 10 mínútna pása. Hún hefði getað farið í að gera ekkert, fá þér kannski annan kaffibolla en þú þarft að fara yfir próf sem þú lagðir fyrir 10. bekk í þeim eina tilgangi að hafa algjöra þögn í 80 mínútur. Það er margt á sig lagt en það er þess virði. 9. bekkur er næstur. Örugglega ekki ein sála að hlusta á þig. Einhverjum heigli fannst nefnilega svo sniðugt að segja þessum krökkum að einkunnirnar sem þú færð í 9. bekk skipta þig í rauninni engu máli. Þú ert líka komin með upp í kok af bókinni sem þú kennir þeim. Sama grútleiðinlega sveppabókin sem gæti alveg eins verið merkt þér af því að þú lærðir þessa bók sjálf í grunnskóla. Þú veltir því fyrir þér í smá stund hvaða fag væri gaman að kenna og endar á því að velja íslensku. Það eru nefnilega til alls konar skemmtilegar og sniðugar kennsluaðferðir í íslensku svo að bæði kennarinn og nemend- urnir deyi ekki úr leiðindum. Eftir fjörutíu mínútur kemur hinn 9. bekkurinn sem er öllu hræðilegri en hinn og þú þarft að endurtaka fyrri tímann. Aftur hlustar enginn á það sem þú hefur að segja en þér er eiginlega orðið alveg sama, þú ert farin að hlakka til matartímans, það er hvort eð er þeim að kenna að þau vilji ekki læra. Loksins hringir bjallan og þú getur farið í mat. Þér finnst maturinn óspennandi í mötuneytinu þannig að þú tókst með þér nesti. Allir hinir kennararnir öfunda þig af fínu pítsusneiðum sem þú tókst með þér og þú finnur fyrir smá sektarkennd því þau sitja öll með þér og borða kjötfarsbollur. Eftir matartímann er tími til kominn að losa sig við alla unglingana og færa sig yfir í heimilisfræðistofuna. Þú færð klígjutilfinningu þegar þú labbar inn í svínastíuna því að allt er skítugt. Gólfið, áhöldin,vinnuborðin. Bara allt. Þú hugsar með þér af hverju í ósköpunum þú bauðst þig fram til að kenna heimilisfræði í 3. bekk. Þú sagðir nefnilega við skólastjórann þegar hann spurði hvort þú gætir kennt 3. bekk að þér þætti „ótrúlega gaman að kenna litlum krökkum“ sem er hrein lygi. Þú bara gast með engu móti neitað. Krakkarnir koma inn, öll litlu krúttlegu börnin í skólanum. Þú útskýrir vandlega fyrir þeim hvað á að gera, einfaldar kornflexkökur. Um leið og þú ert búin að útskýra allt í bak og fyrir byrja þau strax að hrópa og kalla. Spurningum rignir yfir þig um hluti sem þú varst að enda við að útskýra. Þú verður fljótt leið á þessu og endar með því að láta þau hita kakó meðan þú gengur frá. Þú ferð aftur inn í stofu þar sem bunkinn með hálf yfirförnu prófunum liggur. Þig langar að komast heim sem fyrst, þannig að þú ákveður að skrifa bara nákvæmlega sömu einkunn á hvern og einn nemanda og hann fékk í síðasta prófi. Einfalt og þægilegt. Segir svo bara að þú hafir týnt prófunum þegar þú ætlar að „sýna þeim prófin“. Eftir erfiðan vinnudag er komið að því að fara heim. Þú varst sniðug og baðst manninn að sækja krakkana í skólann svo að þú gætir átt smá næði. Tíminn líður þó hratt og allt í einu ertu búin að ganga frá eftir matinn og farin að huga að því að fara í háttinn. Þú horfir á sjónvarpsþátt sem þú ert búin að gera tilraun til að horfa á í viku en þú sofnar alltaf í miðju kafi. Nærð þó ekki heldur að klára þáttinn í þetta sinn og endar á því að skríða upp í rúm uppgefin eftir daginn. Þrátt fyrir mikla þreytu ertu samt tilbúin að endurtaka sama fyrirkomulag aftur á morgun. Því þegar öllu er á botninn hvolft myndirðu aldrei vilja skipta um starf. Börn fædd 2012 í leikskólanum Skýjaborg. Þau heita Enok Einar, Guðrún Birna, Haraldur Magnús, Markus, Olivier, Víkingur Aron og Þóra Kristín. Hvernig er traustur og góður kennari? Börnin í leikskólanum skrifa um það í verðlaunasögunni Kennarinn með blað í fanginu. Krakkarnir sýna flotta samvinnu og útkoman er skemmtileg saga. Umsögn dómnefndar Þetta er saga um öryggið sem fylgir góðum og traustum kennara. Blaðið sem hann er með í fanginu er tákn margvíslegra og nauðsynlegra upplýsinga um heiminn. Og, eins og skáldin hitta svo oft á, getur orð eins og blað þýtt svo margt, þannig ber/inniheldur titillinn með sér töfra skáldskaparlistarinnar. Kennarinn gætir þess meðal annars að nemendur hlaupi ekki fyrir bíla, rífi ekki bækur og fari ekki ofan í skurði. Og ef hann er góður kennari brosir hann og talar ekki hátt. Kennarar eiga að segja börnunum að sitja kyrr og það má ekki rífa bók og segja krökkunum að fara ekki ofan í skurð. Að það megi bara hjóla með hjálm. Það er bannað að ganga yfir þegar það eru bílar að fara af stað. Krakkar mega ekki fara sjálfir í göngutúr og ekki fara burt. Kennarar eiga að passa krakkana. Kennarinn passar krakkana þegar þau fara yfir götuna. Góður kennari er brosandi og talar ekki svona hátt. Þeir passa krakkana svo þeir hlaupi ekki burtu í skóginn. KENNARINN MEÐ BLAÐ Í FANGINU SÍNU framhald – Hringrás Va rm ás - Sk ól av ör ur M ar kh ol t 2 , M os fe lls bæ sí m i 5 66 -8 14 4 N ýt t á Ís la nd i Pe rlu r s em e kk i þ ar f a ð st ra uj a, ei nu ng is sp ra ut a va tn i y fir o g pe rlu rn ar lí m as t s am an .

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.