Skólavarðan - 2017, Side 47
„Krakkar hefur einhvert ykkar séð til
bekkjarbróður ykkar, hans Stefáns? Nú
eru foreldrar hans búnir að vera að leita að
honum undanfarna viku en ekkert hefur sést
til hans. Ef þið vitið eitthvað um ferðir Stefáns
megið þið endilega láta mig eða...“
„Ætla þau í alvörunni að segja þessa
ræðu á hverjum einasta morgni þangað til
næsti krakki hverfur?“ hvíslaði Anna Dísa að
vinkonu sinni, Elísu.
„Mér finnst það mjög líklegt. Mér finnst
líka mjög líklegt að næsta ræða komi á
morgun. Hingað til eru þau búin að hverfa
á hverjum fimmtudegi í sex vikur,“ svaraði
Elísa. Eftir smá stund sagði hún: „Ég held
að við ættum að reyna að finna þann sem
að gerði þetta. Persónulega held ég að við
ættum að sleppa því að fara heim núna seinni
partinn og athuga hvort að einhver kennari
hagar sér undarlega.“
„Ertu að meina þetta?! Hvað ef við
náumst? Hvað á ég að segja mömmu? Ég held
að ég geti þetta ekki Elísa!“ sagði Anna Dísa
hrædd.
„Vertu ekki svona mikil hæna, Anna! Ef
þú gerir þetta ekki með mér geri ég þetta ein.
Og þá er ég opið skotmark fyrir mannræn-
ingjann. Og ekki viltu missa bestu vinkonu
þína er það?“
„Ég hata þig. Ég virkilega hata þig, þú
veist það.“
Dagný Ásgeirsdóttir, nemi á öðru ári í Menntaskólanum Tröllaskaga.
Dagný bar sigur úr býtum í framhaldsskóla-
flokknum fyrir söguna Kennarinn. Verðlauna-
sagan er langt í frá fyrsta saga Dagnýjar og hún
hefur skrifað fimm „almennilegar“ sögur eins og
hún orðar það sjálf. Þá segist hún vera að vinna
að skáldsögu sem byggir á sömu persónum og
koma fram í verðlaunasmásögunni. Spænska er
skemmtilegasta námsgreinin að sögn Dagnýjar
og uppáhaldsbækurnar eru Harry Potter-serían.
Umsögn dómnefndar:
Sagan Kennarinn gerist í hættulegum heimi ungra stúlkna sem
ekki geta treyst fullorðnum karlmönnum. Þeir setja eiturlyf í
drykkinn þeirra, í þessu tilviki vatnsflöskur í prófum, og það getur
orðið þeim að fjörtjóni. En skólinn getur ekki eitrað fyrir öllum og
svipt þá meðvitund. Elísa og Anna taka ábyrgð og bjarga Rakel
vinkonu sinni frá Hauki enskukennara sem er úlfur í sauðargæru.
Ekkert getur bugað fólk sem þorir! Þræðir sögunnar eru ofnir
kunnáttulega og vel saman í vefnað sem heldur og skín af.
KENNARINN
Framhald á næstu opnu
Va
rm
ás
-
Sk
ól
av
ör
ur
M
ar
kh
ol
t 2
, M
os
fe
lls
bæ
sí
m
i 5
66
-8
14
4
N
ýt
t á
Ís
la
nd
i
Pe
rlu
r s
em
e
kk
i þ
ar
f a
ð
st
ra
uj
a,
ei
nu
ng
is
sp
ra
ut
a
va
tn
i y
fir
o
g
pe
rlu
rn
ar
lí
m
as
t s
am
an
.