Fréttablaðið - 02.02.2021, Síða 34
Nýjar njósnamyndir hafa náðst af
næstu kynslóð Toyota Aygo sem
er sú þriðja í röðinni. Sá bíll kemur
á götuna á næsta ári en mögulega
verður hann kynntur í lok þess árs.
Búast má við að bíllinn verði
ekki lengur á sama undirvagni og
Peugeot 108 og Citroen C1 heldur
fái TNGA-undirvagn Toyota.
Myndin sýnir ágætlega að útlitið
fær hann í ætt frá nýrri kynslóð
Yaris, með svipuðum framenda.
Búast má við að svipað verði upp á
teningnum innandyra með sama
mælaborði og í nýjum Yaris.
Líklega verður hann með sömu
eins lítra, þriggja strokka bensínvél
og áður en TNGA-undirvagninn
þýðir að meira rafmagn verður í
boði með mildum tvinnútgáfum
til að byrja með. Það er þó ekki
auðvelt að koma fyrir tvinnút-
færslu í þessum stærðarflokki,
en framkvæmdastjóri Toyota í
Evrópu, Johan van Zyl, hefur sagt
að það verði nauðsynlegt fyrir
þennan stærðarflokk í framtíðinni
ef hann eigi að lifa af.
Njósnamynd af Aygo
Subaru hefur kynnt nýja útfærslu
XV-jepplingsins sem fer á sölu í
Evrópu með vorinu.
Breytingar á ytra byrði eru
frekar litlar en þær einskorðast
aðallega við endurhannaðan
framenda með nýjum þokuljósum,
grilli og stuðara. Einnig fær hann
nýjar 18 tommu álfelgur og tvo
nýja liti. Meiri breytingar eru þó
undir niðri með endurhönnuðum
dempurum og drifkerfi.
Bíllinn verður nú aðeins í boði
með tveggja lítra boxervélinni
en hún skilar 154 hestöflum og
196 newtonmetra togi. Fjórhjóla-
drif og CVT-sjálfskipting eru nú
staðalbúnaður. Að sögn Sigurðar
Sigurðssonar, sölufulltrúa Subaru
hjá BL, verður bíllinn kynntur hér-
lendis í júní.
Subaru XV
jepplingurinn fær
andlitslyftingu
Hyundai hefur frumsýnt útlit Tuc-
son-jepplingsins í N-Line útgáfu
sinni.
Meðal breytinga frá grunn-
gerðinni má sjá 19 tommu
álfelgur, endurhönnuð loftinntök
og grill að framan ásamt nýjum
loftdreifi og tvískiptu pústkerfi
að aftan. Auk þess verður hægt að
sérpanta N-Line í skuggagráum
lit með svörtu þaki. Innandyra er
hefðbundin N-Line- útfærsla með
sportlegri sætum, sérsaumuðu
leðri, N-merkingum og álpe-
dulum.
Sami vélbúnaður verður í N-Line
og í öðrum Tucson en hann fær
einnig stillanlegt fjöðrunarkerfi.
Verð og þess háttar hefur ekki
verið kynnt enn þá en búast má
við bílnum til landsins í sumar.
Nýr Hyundai
Tucson kynntur í
N-Line útgáfu
Nýja njósna-
myndin sýnir
að nýr Aygo
verður eins og
smækkuð út-
gáfa Yaris að sjá
úr fjarlægð.
Tvílit N-Line útgáfa með 19 tommu
felgum verður meðal þess sem í
boði er sérstaklega fyrir þennan bíl.
Subaru XV verður búinn 180 gráðu
öryggisskynjara að framan sem
tengdur er árekstrarvara bílsins.
KLETTUR fremstir í okkar fagi!
340 PREMIUM ca 45 tonn
Hægt að setja upp 50 prófíla fyrir vélamenn
CPM viktarkerfi, hægt að halda yfirlit yfir afköst
E-fence, hægt að setja inn öryggissvæði svo ekki
sé farið út fyrir það sem er gott ef unnið er undir
háspennustreng eða úti í umferð
Rafstýrt vökvakerfi og joystick sem auka afköst
og minnka eldsneytiseyðslu
HDHW undirvagn extra hár og breiður sem gefur
besta stöðugleikann í ámokstri
CAT 309 ca 10 tonn
Rúmgott stýrishús með gott fótapláss
Allar stýringar fyrir útvarp, miðstöð og stillingar
á vökvakerfi gerðar í mælaborði
Joystick stýring á keyrslu með cruise control
2x tvívirkar aukalagnir með stiglausri stýringu
og hægt að stilla flæði frá skjá
Stjórnskjár fyrir CAT TRS rótotilt innbyggt
í mælaborði vélar
2 ára ábyrgð
CAT 302 ca 2.2 tonn
Rúmgott stýrishús með gott fótapláss
Allar stýringar fyrir úttvarp, miðstöð og stillingar
á vökvakerfi gerðar í mælaborði
Joystick stýring á keyrslu með cruise control
2x tvívirkar aukalagnir með stiglausri stýringu
og hægt að stilla flæði frá skjá
Vökvabreikkanlegur undirvagn
2 ára ábyrgð
2. febrúar 2021 ÞRIÐJUDAGUR12 BÍLABLAÐIÐ