Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 8
DÓMSMÁL Rúmenar sem störfuðu
fyrir Menn í vinnu í janúar og
febrúar 2019 bjuggu við óboðlegar
aðstæður við Dalveg 24 í Kópavogi.
Fimmtán manns deildu einu sal-
erni og einu eldhúsi í ósamþykktu
húsnæði fyrir ofan bílaþvottastöð
þar sem var stöðug málningar-
og brunalykt. Enginn viðeigandi
brunaútgangur var í húsinu og oft
voru fjórir eða fimm saman í einu
herbergi.
„Þetta var mjög slæmt. Ómann-
úðlegar aðstæður,“ segir Romario
Valentin, 25 ára karlmaður.
„Þetta var áfall. Ég þekkti engan,
var peningalaus, langt í burtu frá
heimalandi mínu í landi þar sem ég
talaði ekki tungumálið,“ segir Sorin
Marinescu, 32 ára karlmaður.
„Það var mjög skítugt og stundum
voru slagsmál bara til að komast
í eldavélina fyrst, það voru svo
margir að bíða í röð,“ segir Petruta
Roxana Musat, 31 árs kona.
„Martröð. Þetta var martröð þar
sem mér fannst ég misnotaður mjög
illa. Þetta var niðurlægjandi,“ segir
Alexandru Tudose, 20 ára karl-
maður.
Þetta kom fram í skýrslutöku við
aðalmeðferð á máli fjögurra Rúm-
ena gegn starfsmannaleigunni
Mönnum í vinnu og fyrirtækinu
Eldum rétt í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær.
Alexandru Tudose, Petruta Rox-
ana Musat, Romario Valentin og
Sorin Marinescu höfða mál vegna
vangoldinna launa, ólögmæts frá-
dráttar af launum og vanvirðandi
meðferðar á meðan á vinnu þeirra
stóð. Segjast þau öll hafa fengið tals-
vert lægri laun en þeim var upphaf-
lega lofað þegar þau voru ráðin til
starfa. Enginn hafi skrifað undir
leigusamning og þau vissu ekki fyrir
fram hvað þau myndu greiða í leigu.
Þessir grátandi Rúmenar
Í skýrslutöku yfir Höllu Rut Bjarna-
dóttur, eiganda star fsmanna-
leigunnar, sagði hún eiginmann
Petrutu Roxönu hafa verið einn
forsprakka „grátandi Rúmenanna“
sem hefðu eyðilagt líf hennar með
því að fara í fjölmiðla.
„Líf mitt er bara ónýtt, það er
bara þannig. Ég get ekki fundið
mér vinnu, það „googla“ allir mig.
Synir mínir hafa liðið mikið fyrir
þetta. Tvisvar hef ég þurft að yfir-
gefa heimili mitt þótt það sé búið
að sanna fyrir rétti að þetta sé lygi.
Það er ekki nóg fyrir þetta fólk,
heldur birtir það myndir af mér og
„Facebook“-inu mínu í fréttum í
Rúmeníu. Ég hef aldrei verið kærð
fyrir neitt eða sökuð um neitt af lög-
reglu. Þau hætta aldrei, þau halda
bara áfram og ljúga áfram.“
Halla Rut játaði fyrir dómara að
húsnæðið þar sem vinnufólkið bjó
hafi ekki verið samþykkt íbúðar-
húsnæði. „Þetta var nýinnréttað
hús í þjónustukjarna við hliðina á
bónstöð. Við fengum ekki leyfi til að
hafa íbúð en við fengum slökkvilið
til að taka út húsið og setja bruna-
kerfi.“
Ef ling steig inn í málið í byrjun
febrúar árið 2019 og var mansals-
teymi félagsmálaráðuneytis virkjað
og með aðstoð Kópavogsbæjar og
Reykjavíkurborgar var íbúum á
Dalvegi 24 komið fyrir á gistiheim-
ili við Sundlaugarveg og þeim veitt
neyðaraðstoð.
ingunnlara@frettabladid.is
Fannst hann vera misnotaður
Rúmenar lýsa aðstæðum við Dalveg 24 þar sem þeir bjuggu meðan þeir voru ráðnir til vinnu hjá Mönn-
um í vinnu ehf. sem óboðlegum. Eigandi fyrirtækisins segir líf sitt ónýtt eftir að málið birtist í fjölmiðlum.
Smánarlaun og engar kvittanir fyrir frádrætti
ROMARIO:
Fékk um 36 þúsund krónur í laun
– 126 þúsund krónur dregnar af
launum fyrir leigu, bensíni, flug-
miða og fleiru.
SORIN:
Fékk um 41 þúsund krónur í laun
– 128 þúsund krónur dregnar af
launum fyrir leigu, bensíni, flug-
miða og fleiru.
PETRUTA:
Fékk um 29 þúsund krónur í laun
– 196 þúsund dregnar af launum
fyrir leigu, bensíni, flugmiða og
fleiru.
ALEXANDRU
Fékk um 46 þúsund krónur í laun
– 160 þúsund krónur dregnar af
launum fyrir leigu, bensíni, flug-
miða og fleiru.
Halla Rut Bjarnadóttir ásamt lögmönnum sínum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hjálmlausir í háloftunum
Vinnu við byggingu hótels Íslandshótela í Lækjargötu hefur verið haldið áfram að nokkru leyti þótt kórónaveirufaraldurinn hafi tafið verkið. Þessir
þrír menn unnu þar í vikunni við að leggja pappa á þak hótelsins sem verður með alls 140 herbergi á besta stað í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
REYKJAVÍKURBORG Tillaga Kolbrún-
ar Baldursdóttur, áheyrnarfulltrúa
Flokks fólksins í borgarráði, um að
aðkomuleið að Sorpu í Jafnaseli yrði
lýst, var felld í ráðinu.
„Aðkomuleiðin er án lýsingar.
Þar er svartamyrkur þegar dags-
birtu nýtur ekki,“ benti Kolbrún
á í tillögu sinni. „Þó aðkomuleið
að Sorpu kunni að vera óupplýst
seinustu 1-2 tíma af opnunartíma
endurvinnslustöðva yfir hávetur
er ekki víst að það sé réttasta for-
gangsröðun fjármuna að koma
fyrir sterkari lýsingu þar,“ bókuðu
fulltrúar Samfylkingarinnar, Við-
reisnar og Pírata og felldu tillöguna.
Kolbrún bókaði þá að kannski
væri lýsingin ekki rétt forgangs-
röðun fjármuna en að margt sem
skipulagsyfirvöld settu í forgang
fyndist öðrum ekki vera forgangs-
mál. – gar
Lýsa ekki upp
við Sorpustöð
Kolbrún Baldurs-
dóttir, borgar-
fulltrúi Flokks
fólksins
ORKUMÁL Bæjarráð Hveragerðis
segist undrast að Þverárdalur sé
settur í nýtingarf lokk í tillögu til
þingsályktunar um áætlun um
vernd og orkunýtingu landsvæða.
„Þverárdalur ásamt Innstada,l
sem felldur er undir biðflokk, býr
yfir einstakri fjölbreytni og fegurð,
sem nauðsynlegt er að varðveita
ekki síst fyrir komandi kynslóðir.
Hengilssvæðið er ómetanleg nátt-
úruperla í næsta nágrenni við þétt-
býlasta svæði landsins og býður það
upp á staði þar sem hægt er að njóta
öræfakyrrðar þrátt fyrir þéttbýlið
allt um kring,“ segir bæjarráðið.
Hins vegar kveðst bæjarráðið
fagna því að Grænsdalur og Bitra
á Hengilssvæði fari í verndarflokk.
„Enda er þar um að ræða einstaka
náttúru sem greinilega er orðin sátt
um að beri að vernda.“ – gar
Þverárdalur fari
í verndarflokk
Hvergerðingar nýta Hengilssvæðið
til útvistar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁRBORG Þegar ný byggingarnefnd
hóf störf við Stekkjaskóla í Árborg
kom í ljós að vinnu við sjö af átta
verkþáttum verkefnisins skorti.
Aðeins var búið að ljúka hugmynda-
vinnu en eftir var gerð kröfulýsingar
og þarfagreiningar, forsagnar, útboð
hönnunar, frumhönnun og fulln-
aðarhönnun, útboð framkvæmdar
og framkvæmdin sjálf. Þeir Eggert
Valur Guðmundsson og Tómas
Ellert Tómasson bókuðu í bæjar-
ráði að þeir furði sig á Sjálfstæðis-
flokknum og segja ábyrgðina liggja
þar að byggingu nýs skóla í Björkur-
stykki haf i haf ist að minnsta
kosti tveimur árum of seint.
Samkvæmt bókun Eggerts og Tóm-
asar þá hyllir undir að fyrsti hluti
nýbyggingar Stekkjaskóla verði
tekinn í gagnið í ágúst 2022. – bb
Hugmyndin
kom en ekkert
meira en það
6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð