Fréttablaðið - 06.02.2021, Page 26
vaxtarhormón. „Ég var illa farinn, ég
var vannærður og allt of lítill miðað
við aldur. Ég var 14 ára en leit út fyrir
að vera 9 ára.“
Föstudagurinn 14. ágúst 1987
David segir að börnin hafi ekki
talað mikið saman um hlutina sín á
milli, hugsanlega hafi eldri börnin
gert það. Sjálfur var David mikill
bókaormur og átti hann það til að
lesa heilu bækurnar með vasaljós
undir sæng. Smátt og smátt komst
hann að því að heimurinn þarna úti
var aðeins öðruvísi en hann átti að
venjast.
Föstudagurinn 14. ágúst 1987
rennur David seint úr minni, en
þann dag ruddust vopnaðir lög-
reglumenn inn í höfuðstöðvar safn-
aðarins og frelsuðu börnin. „Það var
dagur frelsis,“ segir hann og rifjar
upp að hann hafi hvorki fyrr né síðar
séð jafn marga lögreglumenn á sama
stað. Hann var í jóga ásamt öðrum
meðlimum safnaðarins þegar lög-
regla ruddist inn. „Í fyrstu áttuðum
við okkur ekki á því að það væri
verið að hjálpa okkur. Um leið og
ég sá lögguna varð ég smá hræddur
enda allir vopnaðir, þetta var enginn
smá dagur í lífi mínu.“
Erfitt að borða venjulegan mat
Eftir að David var frelsaður tóku við
fjögur ár þar sem hann var í umsjá
ríkisins á unglingaheimili. „Það var
ágæt reynsla en auðvitað var þetta
upp og niður. Ég kynntist krökkum
sem áttu erfiða fortíð,“ segir hann
og bætir við að hann hafi gengið
í almenningsskóla í Melbourne
með jafnöldrum sínum. Mjög mikil
áhersla var lögð á menntun innan
sértrúarsafnaðarins og segir David
að það hafi verið eins og að fara þrjú
til fjögur ár aftur í tímann þegar
hann fór í skóla. „Ég vissi þetta allt.“
Þó að hann hafi verið frelsinu
feginn þurfti hann að aðlagast hinu
hefðbundna lífi. Hann rifjar upp að
hann átti erfitt með að borða venju-
legan mat eftir að hann var frelsaður
og átti hann það til að kasta honum
upp. „Líkaminn var ekki vanur
að melta kjöt og mjólkurvörur til
dæmis.“
David rifjar upp að mikið hafi
verið fjallað um málið í áströlskum
fjölmiðlum eftir rassíu lögreglunnar.
Fjallað var um málið dag eftir dag í
sjónvarpinu. Athyglin og umtalið fór
illa í David og þegar hann var fimm-
tán ára ákvað hann að gera samning
við sjálfan sig. „Ég gerði samning um
að ég myndi aldrei segja annarri
manneskju frá æskunni minni. Ég
stóð við það þangað til ég varð fer-
tugur og bjó til aðra fortíð. Bara til
að forðast þessa athygli, ég vildi bara
fara í gegnum lífið undir ratsjá.“
Kynntist íslenskri konu í Ísrael
Líf Davids tók svo aftur stakka-
skiptum fljótlega eftir að hann varð
tvítugur. Þá ákvað hann að fara í
ferðalag um heiminn. „Þá fór ég í
fyrsta skipti til útlanda. Ég fór til
Indlands, Nepal og Ísraels þar sem
ég kynntist íslenskri konu.“
Þeim varð vel til vina en úr varð
að hún fór aftur til Íslands og David
aftur til Ástralíu. Þau héldu sam-
bandi eftir að heim var komið og
tveimur árum síðar, árið 1998, ákvað
David að kíkja í heimsókn. Eitt
leiddi af öðru og ekki leið á löngu
þar til hún varð ólétt.
„Að eignast börn var nákvæmlega
það sem ég þurfti til að koma mér
aftur í jafnvægi. Ég reyndi að laga
allt sem hafði farið úrskeiðis í minni
barnæsku. Ég var alveg harðákveð-
inn í að þau þyrftu aldrei að þjást að
óþörfu. Ef þau grétu þá tók ég þau
upp og ég var skammaður fyrir það.
Ég gat ekki hlustað á börnin mín
gráta þegar ég vissi að ég gæti gert
eitthvað til að hjálpa.“
Fortíðin bankaði á dyrnar
David settist að á Íslandi og hefur
hann búið hér á landi nær sleitulaust
frá árinu 1998. Hann á þrjú börn
með tveimur konum; 20 ára stúlku
og tvo drengi, 19 ára og 13 ára.
Þegar hann var orðinn fertugur
má segja að fortíðin hafi bankað á
dyrnar af miklum þunga og hefur
David glímt við andlega erfiðleika
undanfarin misseri. Hann gerði þau
stóru mistök að prófa fíkniefni fyrir
um tíu árum. Þá var hann staddur í
Ástralíu ásamt fjölskyldu sinni um
skamma hríð, þar sem markmiðið
var að vinna og safna peningum.
Þau fóru út árið 2007 en sneru alfar-
ið aftur heim til Íslands árið 2012.
Vinnufélagi hans var í neyslu og
sannfærði hann David um að hann
þyrfti að prófa það sama og hann.
„Ég var nógu heimskur til að
þiggja það. Þetta var metamfetamín
sem er örugglega eitt það hættu-
legasta sem hægt er að taka og eitt
það mest ávanabindandi. Í kjöl-
farið á því byrjaði ég að glíma við
ofsakvíða, engan venjulegan kvíða.
Ég gat ekki stjórnað líkama mínum,
ég skalf svo mikið, og gat ekki einu
sinni borgað fyrir hluti úti í búð.
Þá byrjaði þetta allt saman,“ segir
David sem hefur verið að vinna sig
út úr þessum vanda síðustu ár.
„Þetta hefur verið erfiður tími,
síðustu fimm, sex ár. Ég missti
„Að eignast
börn var ná-
kvæmlega það
sem ég þurfti,“
segir David sem
á þrjú börn. Hér
er hann með
tveimur elstu.
Þekkt ljós-
mynd. Þessi
mynd kemur
reglulega upp
þegar leitað
er að sértrúar-
söfnuðinum á
Google. David
var yngstur
drengjanna og
er hér neðst á
myndinni.
Hér sést David
í garðinum við
heimili sitt í
Melbourne
þegar hann var
tveggja ára. Á
þessum tíma-
punkti óraði
hann ekki fyrir
því hvað átti
eftir að bíða
hans.
Anne Hamilton-Byrne var 98 ára þegar hún lést árið 2019. Hún þurfti aldrei
að sæta ábyrgð fyrir það sem viðgekkst í söfnuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
boltann gjörsamlega þegar ég fór í
neyslu. Í neyslu er maður eingöngu
upptekinn af sjálfum sér. Ég er enn
þá að borga fyrir það í dag og mun
trúlega þurfa að borga fyrir það allt
mitt líf. Hægt og rólega eru hlutirnir
að komast í samt horf,“ segir hann og
bætir við að erfitt sé að koma fólki í
skilning um þá hluti sem hann upp-
lifði sem barn.
„Það eru ekki margir með reynslu
af svona hlutum og ekki margir með
skilning. Jafnvel ekki sálfræðingar.
Hér á Íslandi er ég löngu búinn að
gefast upp á því að tala við sál-
fræðinga,“ segir hann. Hann telur
sig heppinn að vera á lífi. „Ég áttaði
mig á því um daginn. Margir af þeim
sem ég ólst upp með hafa svipt sig
lífi. Þetta var mjög almennt, krakkar
fóru út í bullandi neyslu og sáu ekki
framtíð í neinu. Það voru margir
fullorðnir sem gerðu það líka. Þessi
kona er með mikið blóð á höndun-
um, það hefur ekki verið talað nógu
mikið um það.“
Vildi að sjálfsvígið liti út sem slys
Árið 2012 var David á mjög slæmum
stað andlega vegna ofsakvíða og
þunglyndis og um tíma sá hann
aðeins þá lausn að svipta sig lífi. „Ég
vildi deyja en gat ekki hugsað mér að
börnin mín myndu minnast föður
síns fyrir sjálfsvíg. Ég varð því að
gera þetta þannig að eins og um slys
væri að ræða og ætlaði mér að keyra
á fullri ferð á tré. Sem betur fer lét ég
ekki verða af þessu en þegar kvíðinn
tók völdin þá veitti þessi hugsun um
tréð mér ákveðinn innri frið.“
David dregur ekki fjöður yfir það
að hann einn ber ábyrgð á ákvörð-
unum sínum, en hann segir að barn-
æskan hafi mótað hann mikið. „Ég
fékk enga kennslu í mannlegum
samskiptum. Við vorum einangruð,
fengum aldrei að eignast vini og ég
var 14 ára þegar ég lærði að hjóla. Ég
held að þetta hafi truflað mig rosa-
lega félagslega. Mér finnst ég alltaf
vera hálftýndur innan um fólk og
mér líður alls ekki vel í hóp, þá er ég
einmana en mér líður vel þegar ég
er einn. Félagslega á ég mjög erfitt
og það er mitt stærsta vandamál,“
segir David sem segir að með neyslu
áfengis og eiturlyfja losni um þessar
hömlur.
Vont að byrgja þetta inni
David hefur ek k i áður farið
nákvæmlega í saumana á sögu
sinni og hann hefur meira að segja
haldið sínum nánustu frá henni.
„Þetta er eitthvað sem ég þarf að
koma frá mér. Það er ógeðslega vont
að byrgja þetta inni. Ég sagði ekki
barnsmæðrum mínum frá þessu,
þær heyrðu mína sögu frá öðrum.
Ég faldi þetta,“ segir hann.
Aðspurður hvort hann hafi verið
í samskiptum við aðra einstaklinga
sem ólust upp með honum segir
hann að lítið hafi verið um það. „Það
er engin tilviljun að ég er nánast eins
langt frá Melbourne og hægt er. Mér
finnst óþægilegt að tala við fólkið
sem ólst upp með mér. Það er fyrst
núna sem ég er byrjaður að hugsa
um að deila þessu,“ segir David,
sem vill leggja áherslu á lífið eftir
sértrúarsöfnuðinn. Mikið hafi verið
fjallað um gjörðir Anne Hamilton-
Byrne en of lítið um líf þeirra sem
þurftu að þola of beldi hennar og
áhrif þess.
Anne lést í hárri elli árið 2019, 98
ára að aldri, en hún glímdi við Alz-
heimer-sjúkdóminn síðustu æviár
sín. Anne þurfti aldrei að sitja í fang-
elsi vegna gjörða sinna en var dæmd
til greiðslu sektar fyrir að falsa ætt-
leiðingarskjöl.
Þakklátur fyrir Ísland
David segir að áströlsk yfirvöld
megi eiga það að vel var haldið utan
um hópinn eftir rassíu lögreglunnar
árið 1987. Lögreglumenn, félags-
starfsmenn og jafnvel fjölmiðlafólk
hafi verið í samskiptum þó að rúm
30 ár séu liðin.
„Ég get alls ekki kvartað undan
því, miðað við að þetta var árið
1987.“ Hann kveðst þó vera ein-
staklega þakklátur fyrir að hafa sest
að á Íslandi og getað kallað Ísland
heimili sitt í um tuttugu ár. „Landið
hefur hjálpað mér að setja fortíðina
í baksýnisspegilinn, þar sem hún
á heima, en þegar ég hef þurft á
aðstoð að halda hef ég aldrei komið
að lokuðum dyrum neins staðar.“
David ver frítíma sínum í að
teikna og mála en á daginn vinnur
hann í byggingarvinnu á höfuð-
borgarsvæðinu. „Ég hef mikinn
áhuga á myndlist og hún hefur í
raun bjargað minni andlegu heilsu.
Ég er líka algjört tónlistarnörd og
elska íslenska tónlist.“
Einn á aðfangadag
Aðspurður um framtíðaráform
segir David að hann ætli að halda
áfram að sinna myndlistinni og
treysta sambandið við börnin sín.
„Ef þú ert í neyslu loka allir hurð-
inni á þig sem er mjög skiljanlegt.
Síðustu tvenn jól hef ég verið einn
heima. Á aðfangadag keyrði ég
gjafir til barnanna minna og fór
svo bara einn heim. Það var sárt í
nokkra klukkutíma. Það var enginn
sem bauð mér og ég skil það. Þegar
ég var í neyslu gerði ég ekkert fyrir
börnin mín, borgaði ekkert og hugs-
aði bara um sjálfan mig,“ segir hann
en bætir við að hann hafi fengið öll
börnin sín í mat í síðustu viku. Það
hafi verið góð upplifun.
David segir að lokum að hans
saga sýni hversu mikilvæg mótun-
arárin eru í lífi barna.
„Ég er kannski ekki í neinni stöðu
til að gefa neinum ráð. En ef ég ætti
að gera það væru skilaboðin þessi:
Knúsaðu börnin þín á hverjum
degi, ekki leyfa þeim að fara að sofa
grátandi. Segðu börnunum þínum
að þau séu að standa sig vel og að
þú sért stoltur af þeim. Þetta er eitt-
hvað sem ég fékk ekki sem barn. Ég
var 26 ára þegar ég fann fyrst fyrir
ást í garð einhvers, ég þurfti að
eignast barn til að kynnast þeirri
tilfinningu.“
MINNINGIN ER BOTNLAUS
SORG, ÓTTI OG VONLEYSI.
ÞETTA VORU 12 ÁR, SEM ER
HEIL EILÍFÐ Í LÍFI BARNS.
6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð