Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2021, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 06.02.2021, Qupperneq 26
vaxtarhormón. „Ég var illa farinn, ég var vannærður og allt of lítill miðað við aldur. Ég var 14 ára en leit út fyrir að vera 9 ára.“ Föstudagurinn 14. ágúst 1987 David segir að börnin hafi ekki talað mikið saman um hlutina sín á milli, hugsanlega hafi eldri börnin gert það. Sjálfur var David mikill bókaormur og átti hann það til að lesa heilu bækurnar með vasaljós undir sæng. Smátt og smátt komst hann að því að heimurinn þarna úti var aðeins öðruvísi en hann átti að venjast. Föstudagurinn 14. ágúst 1987 rennur David seint úr minni, en þann dag ruddust vopnaðir lög- reglumenn inn í höfuðstöðvar safn- aðarins og frelsuðu börnin. „Það var dagur frelsis,“ segir hann og rifjar upp að hann hafi hvorki fyrr né síðar séð jafn marga lögreglumenn á sama stað. Hann var í jóga ásamt öðrum meðlimum safnaðarins þegar lög- regla ruddist inn. „Í fyrstu áttuðum við okkur ekki á því að það væri verið að hjálpa okkur. Um leið og ég sá lögguna varð ég smá hræddur enda allir vopnaðir, þetta var enginn smá dagur í lífi mínu.“ Erfitt að borða venjulegan mat Eftir að David var frelsaður tóku við fjögur ár þar sem hann var í umsjá ríkisins á unglingaheimili. „Það var ágæt reynsla en auðvitað var þetta upp og niður. Ég kynntist krökkum sem áttu erfiða fortíð,“ segir hann og bætir við að hann hafi gengið í almenningsskóla í Melbourne með jafnöldrum sínum. Mjög mikil áhersla var lögð á menntun innan sértrúarsafnaðarins og segir David að það hafi verið eins og að fara þrjú til fjögur ár aftur í tímann þegar hann fór í skóla. „Ég vissi þetta allt.“ Þó að hann hafi verið frelsinu feginn þurfti hann að aðlagast hinu hefðbundna lífi. Hann rifjar upp að hann átti erfitt með að borða venju- legan mat eftir að hann var frelsaður og átti hann það til að kasta honum upp. „Líkaminn var ekki vanur að melta kjöt og mjólkurvörur til dæmis.“ David rifjar upp að mikið hafi verið fjallað um málið í áströlskum fjölmiðlum eftir rassíu lögreglunnar. Fjallað var um málið dag eftir dag í sjónvarpinu. Athyglin og umtalið fór illa í David og þegar hann var fimm- tán ára ákvað hann að gera samning við sjálfan sig. „Ég gerði samning um að ég myndi aldrei segja annarri manneskju frá æskunni minni. Ég stóð við það þangað til ég varð fer- tugur og bjó til aðra fortíð. Bara til að forðast þessa athygli, ég vildi bara fara í gegnum lífið undir ratsjá.“ Kynntist íslenskri konu í Ísrael Líf Davids tók svo aftur stakka- skiptum fljótlega eftir að hann varð tvítugur. Þá ákvað hann að fara í ferðalag um heiminn. „Þá fór ég í fyrsta skipti til útlanda. Ég fór til Indlands, Nepal og Ísraels þar sem ég kynntist íslenskri konu.“ Þeim varð vel til vina en úr varð að hún fór aftur til Íslands og David aftur til Ástralíu. Þau héldu sam- bandi eftir að heim var komið og tveimur árum síðar, árið 1998, ákvað David að kíkja í heimsókn. Eitt leiddi af öðru og ekki leið á löngu þar til hún varð ólétt. „Að eignast börn var nákvæmlega það sem ég þurfti til að koma mér aftur í jafnvægi. Ég reyndi að laga allt sem hafði farið úrskeiðis í minni barnæsku. Ég var alveg harðákveð- inn í að þau þyrftu aldrei að þjást að óþörfu. Ef þau grétu þá tók ég þau upp og ég var skammaður fyrir það. Ég gat ekki hlustað á börnin mín gráta þegar ég vissi að ég gæti gert eitthvað til að hjálpa.“ Fortíðin bankaði á dyrnar David settist að á Íslandi og hefur hann búið hér á landi nær sleitulaust frá árinu 1998. Hann á þrjú börn með tveimur konum; 20 ára stúlku og tvo drengi, 19 ára og 13 ára. Þegar hann var orðinn fertugur má segja að fortíðin hafi bankað á dyrnar af miklum þunga og hefur David glímt við andlega erfiðleika undanfarin misseri. Hann gerði þau stóru mistök að prófa fíkniefni fyrir um tíu árum. Þá var hann staddur í Ástralíu ásamt fjölskyldu sinni um skamma hríð, þar sem markmiðið var að vinna og safna peningum. Þau fóru út árið 2007 en sneru alfar- ið aftur heim til Íslands árið 2012. Vinnufélagi hans var í neyslu og sannfærði hann David um að hann þyrfti að prófa það sama og hann. „Ég var nógu heimskur til að þiggja það. Þetta var metamfetamín sem er örugglega eitt það hættu- legasta sem hægt er að taka og eitt það mest ávanabindandi. Í kjöl- farið á því byrjaði ég að glíma við ofsakvíða, engan venjulegan kvíða. Ég gat ekki stjórnað líkama mínum, ég skalf svo mikið, og gat ekki einu sinni borgað fyrir hluti úti í búð. Þá byrjaði þetta allt saman,“ segir David sem hefur verið að vinna sig út úr þessum vanda síðustu ár. „Þetta hefur verið erfiður tími, síðustu fimm, sex ár. Ég missti „Að eignast börn var ná- kvæmlega það sem ég þurfti,“ segir David sem á þrjú börn. Hér er hann með tveimur elstu. Þekkt ljós- mynd. Þessi mynd kemur reglulega upp þegar leitað er að sértrúar- söfnuðinum á Google. David var yngstur drengjanna og er hér neðst á myndinni. Hér sést David í garðinum við heimili sitt í Melbourne þegar hann var tveggja ára. Á þessum tíma- punkti óraði hann ekki fyrir því hvað átti eftir að bíða hans. Anne Hamilton-Byrne var 98 ára þegar hún lést árið 2019. Hún þurfti aldrei að sæta ábyrgð fyrir það sem viðgekkst í söfnuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY boltann gjörsamlega þegar ég fór í neyslu. Í neyslu er maður eingöngu upptekinn af sjálfum sér. Ég er enn þá að borga fyrir það í dag og mun trúlega þurfa að borga fyrir það allt mitt líf. Hægt og rólega eru hlutirnir að komast í samt horf,“ segir hann og bætir við að erfitt sé að koma fólki í skilning um þá hluti sem hann upp- lifði sem barn. „Það eru ekki margir með reynslu af svona hlutum og ekki margir með skilning. Jafnvel ekki sálfræðingar. Hér á Íslandi er ég löngu búinn að gefast upp á því að tala við sál- fræðinga,“ segir hann. Hann telur sig heppinn að vera á lífi. „Ég áttaði mig á því um daginn. Margir af þeim sem ég ólst upp með hafa svipt sig lífi. Þetta var mjög almennt, krakkar fóru út í bullandi neyslu og sáu ekki framtíð í neinu. Það voru margir fullorðnir sem gerðu það líka. Þessi kona er með mikið blóð á höndun- um, það hefur ekki verið talað nógu mikið um það.“ Vildi að sjálfsvígið liti út sem slys Árið 2012 var David á mjög slæmum stað andlega vegna ofsakvíða og þunglyndis og um tíma sá hann aðeins þá lausn að svipta sig lífi. „Ég vildi deyja en gat ekki hugsað mér að börnin mín myndu minnast föður síns fyrir sjálfsvíg. Ég varð því að gera þetta þannig að eins og um slys væri að ræða og ætlaði mér að keyra á fullri ferð á tré. Sem betur fer lét ég ekki verða af þessu en þegar kvíðinn tók völdin þá veitti þessi hugsun um tréð mér ákveðinn innri frið.“ David dregur ekki fjöður yfir það að hann einn ber ábyrgð á ákvörð- unum sínum, en hann segir að barn- æskan hafi mótað hann mikið. „Ég fékk enga kennslu í mannlegum samskiptum. Við vorum einangruð, fengum aldrei að eignast vini og ég var 14 ára þegar ég lærði að hjóla. Ég held að þetta hafi truflað mig rosa- lega félagslega. Mér finnst ég alltaf vera hálftýndur innan um fólk og mér líður alls ekki vel í hóp, þá er ég einmana en mér líður vel þegar ég er einn. Félagslega á ég mjög erfitt og það er mitt stærsta vandamál,“ segir David sem segir að með neyslu áfengis og eiturlyfja losni um þessar hömlur. Vont að byrgja þetta inni David hefur ek k i áður farið nákvæmlega í saumana á sögu sinni og hann hefur meira að segja haldið sínum nánustu frá henni. „Þetta er eitthvað sem ég þarf að koma frá mér. Það er ógeðslega vont að byrgja þetta inni. Ég sagði ekki barnsmæðrum mínum frá þessu, þær heyrðu mína sögu frá öðrum. Ég faldi þetta,“ segir hann. Aðspurður hvort hann hafi verið í samskiptum við aðra einstaklinga sem ólust upp með honum segir hann að lítið hafi verið um það. „Það er engin tilviljun að ég er nánast eins langt frá Melbourne og hægt er. Mér finnst óþægilegt að tala við fólkið sem ólst upp með mér. Það er fyrst núna sem ég er byrjaður að hugsa um að deila þessu,“ segir David, sem vill leggja áherslu á lífið eftir sértrúarsöfnuðinn. Mikið hafi verið fjallað um gjörðir Anne Hamilton- Byrne en of lítið um líf þeirra sem þurftu að þola of beldi hennar og áhrif þess. Anne lést í hárri elli árið 2019, 98 ára að aldri, en hún glímdi við Alz- heimer-sjúkdóminn síðustu æviár sín. Anne þurfti aldrei að sitja í fang- elsi vegna gjörða sinna en var dæmd til greiðslu sektar fyrir að falsa ætt- leiðingarskjöl. Þakklátur fyrir Ísland David segir að áströlsk yfirvöld megi eiga það að vel var haldið utan um hópinn eftir rassíu lögreglunnar árið 1987. Lögreglumenn, félags- starfsmenn og jafnvel fjölmiðlafólk hafi verið í samskiptum þó að rúm 30 ár séu liðin. „Ég get alls ekki kvartað undan því, miðað við að þetta var árið 1987.“ Hann kveðst þó vera ein- staklega þakklátur fyrir að hafa sest að á Íslandi og getað kallað Ísland heimili sitt í um tuttugu ár. „Landið hefur hjálpað mér að setja fortíðina í baksýnisspegilinn, þar sem hún á heima, en þegar ég hef þurft á aðstoð að halda hef ég aldrei komið að lokuðum dyrum neins staðar.“ David ver frítíma sínum í að teikna og mála en á daginn vinnur hann í byggingarvinnu á höfuð- borgarsvæðinu. „Ég hef mikinn áhuga á myndlist og hún hefur í raun bjargað minni andlegu heilsu. Ég er líka algjört tónlistarnörd og elska íslenska tónlist.“ Einn á aðfangadag Aðspurður um framtíðaráform segir David að hann ætli að halda áfram að sinna myndlistinni og treysta sambandið við börnin sín. „Ef þú ert í neyslu loka allir hurð- inni á þig sem er mjög skiljanlegt. Síðustu tvenn jól hef ég verið einn heima. Á aðfangadag keyrði ég gjafir til barnanna minna og fór svo bara einn heim. Það var sárt í nokkra klukkutíma. Það var enginn sem bauð mér og ég skil það. Þegar ég var í neyslu gerði ég ekkert fyrir börnin mín, borgaði ekkert og hugs- aði bara um sjálfan mig,“ segir hann en bætir við að hann hafi fengið öll börnin sín í mat í síðustu viku. Það hafi verið góð upplifun. David segir að lokum að hans saga sýni hversu mikilvæg mótun- arárin eru í lífi barna. „Ég er kannski ekki í neinni stöðu til að gefa neinum ráð. En ef ég ætti að gera það væru skilaboðin þessi: Knúsaðu börnin þín á hverjum degi, ekki leyfa þeim að fara að sofa grátandi. Segðu börnunum þínum að þau séu að standa sig vel og að þú sért stoltur af þeim. Þetta er eitt- hvað sem ég fékk ekki sem barn. Ég var 26 ára þegar ég fann fyrst fyrir ást í garð einhvers, ég þurfti að eignast barn til að kynnast þeirri tilfinningu.“ MINNINGIN ER BOTNLAUS SORG, ÓTTI OG VONLEYSI. ÞETTA VORU 12 ÁR, SEM ER HEIL EILÍFÐ Í LÍFI BARNS. 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.