Fréttablaðið - 06.02.2021, Síða 34
Við heimsóttum Völla heim í eldhúsið þar sem hann fræddi okkur um forsögu
þessara lífrænu vara og töfraði
jafnframt fram himneskt bleikju-
og spínatsalat sem er toppað
með Umami-saltinu frá Algarum
Organic.
Upphaflega vinnan
hófst fyrir fjórum árum
„Hann Símon Már vinur minn hjá
Íslenskri bláskel og sjávargróðri
var byrjaður að þurrka þara fyrir
fólk sem vantaði hann til ýmissa
nota. Hann færði mér tvo stóra
kassa fyrir fjórum árum til að
prufa mig áfram með. Þá byrjaði
ég að skoða hann sem hráefni í
matargerð en skipti f ljótlega um
gír eftir því sem ég las meira um
hversu of boðslega heilnæmur
þarinn er. Þannig hófst þessi vinna
og ákváðum við í upphafi að hafa
vöruna lífræna og 100 prósent
endurvinnanlega.“
Fimmta bragðið
er í raun umami
Völli segir eiginleika Umami-
saltsins umtalsverða og að mikil
vinna liggi að baki þróuninni sem
unnið hefur verið að hjá Algarum
Organic. „Umami er í raun fimmta
bragðið, en tungan skynjar sætt,
salt, súrt og beiskt, síðan er umami
fimmta bragðið sem var skilgreint
1908 og þá úr dashi-soði sem
inniheldur einmitt kelp eða þara.
Umami er undirliggjandi bragð
sem má í raun kalla bassann í
bragðinu. Þessu bragði verður ekki
náð með einhverjum samsetn-
ingum heldur liggur það í þangi
og þara. Þess vegna þróuðum við
blöndu af söltum sem inniheldur
mismunandi tegundir af þara og
gefur þetta einstaka undirliggj-
andi bragð.“
Þaraduftið og -hylkin eru 100%
lífræn unnin úr íslenskum þara.
En hvað er það sem gerir þara-
duftið og hylkin svo eftirsóknar-
verð?
„100% lífræn, vegan og í 100%
endurvinnanlegum og niður-
brjótanlegum umbúðum. Þari
er í raun eina plöntu- eða jurta-
tegundin sem inniheldur joð sem
er líkamanum lífsnauðsynlegt.
Í vörunni er eingöngu íslenskur
handtíndur 100% lífrænt vottaður
þari en eitt stærsta yfirvofandi
heilsufarsvandamál í heiminum í
dag er joðskortur og í fyrsta skipti
mælist joðskortur hér á landi. Fólk
borðar almennt minna af fiski og
joðskortur hefur áhrif á skjaldkirt-
ilinn og hormónastarfsemina sem
hefur margvísleg einkenni á borð
við þreytu, slen, þyngdaraukningu
og þunglyndi.“
Við fengum Völla til að deila
með okkur uppskrift að einu
af sínu uppáhaldssalötum með
sjávarfangi sem tilvalið er að njóta,
ljúffengu bleikju- og spínatsalati
með sítrónu-vinaigrette sem bragð
er af.
Bleikju- og spínatsalat
með sítrónu-vinaigrette
Fyrir 4
2 bleikjuflök
½ haus spergilkál, skorið í minni
bita
2 tómatar, skornir í báta
½ gúrka, skorin í sneiðar
1 poki spínat
4 radísur, þunnt skornar
1 hnúðkál, skorið í þunnar
sneiðar
1-2 gulrætur, skornar í strimla
1 appelsína, skorin í lauf
Safi úr ½ sítrónu
200 ml grænmetisolía
1 msk. ólífuolía
Ocean Umami-salt
Penslið eldfast mót með olíu og
setjið bleikjuf lökin í ofn á 180°C í
10 mínútur og látið kólna. Skafið
svo litla bita af roðinu í skál. Setjið
spergilkálið í eldfast mót með 1
matskeið af ólífuolíu í ofn á 180°C
gráður í 5 mínútur og látið kólna.
Ljúffengt bleikju- og spínatsalat
Völundur Snær Völundarson, matreiðslumaður og frumkvöðull hjá fyrirtækinu Algarum Organic,
kom með nýjar lífrænar vörur á markaðinn síðla sumars á síðasta ári sem hafa hlotið athygli.
Völundur Snær Völundsarson, eða Völli, er matreiðslumaður og frumkvöð-
ull hjá fyrirtækinu Algarum Organic. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Bleikju- og spínatsalat með sítrónu-
vinaigrette er ljúffengur réttur.
Umtalsverð
vinna liggur að
baki þróuninni
á Umami-salt-
inu.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@torg.is
Matarást
Sjafnar
Sandra Yunhong She, fram-kvæmdastjóri hjá Arctic Star, segir sæbjúgu hafa verið notuð
í Asíu um langt skeið við margs
konar kvillum. „Í Kína eru þau
stundum kölluð „ginseng hafsins“
en Kínverjar eru stærstu neytendur
sæbjúgna í heiminum. Þau eru
notuð þar til að meðhöndla háan
blóðþrýsting, draga úr liðverkjum
og auka kynorku og eru einnig
vinsæl í Indónesíu þar sem þau eru
talin búa yfir lækningamætti vegna
græðandi eiginleika og eru meðal
annars notuð á magasár.“
Kollagen og vítamín
Arctic Star hefur verið með sæbjúgu
á markaðinum í um fimm ár og
hafa vörurnar frá þeim hlotið góðar
undirtektir. Nú hefur Arctic Star
bætt við úrvalið með sérstakri
blöndu af sæbjúgum, D-vítamíni og
kollageni. Sæbjúgun (Cucumaria
Frondosa) sem Arctic Star notar
eru veidd í Norður-Atlantshafi við
strendur Íslands og innihalda mikið
magn kollagens. Þau eru veidd úr
sjónum en að sögn Söndru eru villt
sæbjúgu með umtalsvert meiri
virkni en eldisræktuð sæbjúgu.
„Sæbjúgun sem við notum eru
ekki eldisafurð. Þetta er lindýr sem
vex á botni sjávar og þessi ákveðna
tegund inniheldur mjög hátt hlutfall
prótíns eða um 70% og einungis
2% fitu. Blandan inniheldur að
Kröftug og breiðvirk blanda
Arctic Star sæbjúgnahylkin innihalda ríflega 50 tegundir næringarefna sem hafa ýmis heilsuefl-
andi áhrif, eins og að draga úr stirðleika og liðverkjum, auka blóðflæði og styrkja ónæmiskerfið.
Sandra Yunhong She segir sæbjúgu mikið notuð víða í Asíu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
auki fiskiprótín sem unnið er úr
þorskroði ásamt steinefnum og
vítamínum.“ Ávinningur af neyslu
kollagens er talinn margþættur.
„Blandan hefur sérstaklega góð og
styrkjandi áhrif á liði, húð, neglur og
hár. Við bættum svo við C-vítamíni
en það eykur virkni kollagensins og
styrkir brjósk, bein og húðina ásamt
því að efla starfsemi taugakerfisins
og ónæmiskerfisins. Þá er C-vítamín
talið verja frumur líkamans gegn
oxunarálagi og draga úr þreytu og
sleni,“ útskýrir Sandra.
„Við höfum einnig bætt við
D-vítamíni en það styrkir líka
ónæmiskerfið, stuðlar að eðlilegri
upptöku líkamans á kalsíum og
fosfóri ásamt því að styrkja bein,
tennur og vöðva.“
Ríkulegt magn amínósýra
Sæbjúgu innihalda einnig mikinn
fjölda amínósýra en þær eru undir-
staða og byggingarefni prótína.
„Meðal amínósýra sem er að finna í
sæbjúgum má nefna metíónin sem
er blóðaukandi, eykur orku líkam-
ans ásamt því að stuðla að myndun
húðpróteins og insúlíns. Þá er einn-
ig að finna amínósýruna lýsin sem
talin er efla þroska heilans, stýra
heilakönglinum, mjólkurkirtlum,
eggjastokkum og vernda frumur
líkamans gegn hrörnun. Lýsin er
líka mikilvægur þáttur í starfsemi
lifrar og gallblöðru og tryptófan er
talið aðstoða við myndun maga-
safa og insúlíns. Amínósýran valín
er líka í sæbjúgum en hún er sögð
stuðla að eðlilegri virkni í tauga-
kerfi og hefur góð áhrif á gulbú,
brjóst og eggjastokka,“ segir Sandra.
„Aðrar amínósýrur sem er að
finna í sæbjúgum er meðal annars
treónín sem stuðlar að jafnvægi
amínósýra, leucine sem getur
lækkað blóðsykur í blóðinu og
styrkt húðina auk þess sem sár og
bein gróa betur. Einnig má nefna
isoleucine sem hefur jákvæð áhrif
á kirtlastarfsemi líkamans, milta,
heila og efnaskipti og fenýlalanín
sem styrkir nýrun og þvagblöðruna
ásamt því að auka virkni ónæmis-
fruma líkamans og þannig stuðla
að myndun mótefna.“
Sandra byrjaði að taka inn
sæbjúgnahylki upp úr þrítugu
og segist raunar ekki hafa veikst
síðan hún hóf reglulega inntöku
á þeim. „Ég var alltaf með flensu á
hverju ári en það hefur ekki gerst
núna í langan tíma eða frá því að
ég byrjaði að taka þetta daglega.
Húðin á mér varð mun betri og hár
og neglur urðu sterkari. Þetta er
gríðarlega öflug blanda.“
Framleiðandi sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari upplýs-
ingar fást á arcticstar.is. Arctic Star
sæbjúgnahylki+D3 fást í flestum
apótekum og heilsubúðum ásamt
Hagkaupum og Fjarðarkaupum.Það nýjasta frá Arctic Star eru sæbjúgnahylki sem eru D3-vítamínbætt.
Íslensk
framleiðsla
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R