Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 69
er í dag verkefnastjóri Eldblóma og hefur yfirumsjón yfir ræktun og útfærslu flugeldagarðsins. Eldblóm – dansverk fyrir f lugelda og f lóru var svo opnað á Listahátíð 2020.“ Verkið er tvískipt. „Sömu dans­ smíðarnar fyrir blóm og flugelda – fyrst á jörðu, svo á himnum. Blóma­ innsetningin og f lugeldasýningin hafa sömu hreyfiferla og jafnmargir dansarar eru í verkunum, eða nánar tiltekið 850 flugeldar og 850 blóm.“ Sigga segir blómainnsetninguna í raun vera hægfara flugeldasýningu. Þegar f lugeldasýning sé hönnuð skipti sekúndufjöldi til sprengingar öllu máli en í blómainnsetningunni sé einblínt á tímann þegar blómin springi út, þar sé þó ekki um að ræða sekúndur heldur mánuði. „Í byrjun mars má segja að f lug­ eldasýning blómanna hafi byrjað, það er fræin voru virkjuð og hreyfi­ ferillinn hafinn.“ Allt tekur enda Meðfram blómainnsetningunni unnu Sigga Soffía og eiginmaður hennar, ljósmyndarinn Marinó Thorlacius, ljósmyndasýninguna Frá fræi til f lugelda, sem sjá má á Hörputorgi og við Sæbrautina. „Frá fræi til f lugelda er tilraun til að sætta sig við að allt tekur enda. Allt hefur byrjun og enda. Fyrir mig var þetta æfing í að sætta mig við dauðleikann, að horfa á fræ teygja sig til himins, blómstra og deyja á svo fallegan hátt. Ljósmyndirnar sýna dalíurnar kolsvartar en þær þola alls ekki frost. Það var eins og litríka blómabeðið hefði verið brennt þann 28. september þegar fyrsta frostið bar að garði. Að mínu mati var það ekki síður fallegt svart en litríkt.“ Þau Sigga og Marinó eru vön því að vinna saman en þau kynntust í París árið 2010. „Ég var þar að dansa á Paris fashion week í tískusýningu Sruli Recht en Marinó var að mynda sýninguna. Við byrjuðum á að vinna saman sem listamenn svo það var upphaflega sameiginlega ástríð­ an. Ég er oft með hugmyndir sem ég gæti aldrei útfært nema með jafn hæfileikaríkum ljósmyndara og honum, hann nær að fanga kjarna verkanna.“ Um jólin fæddist fyrirtækið Eld­ blóm og er fyrsta vara þess gjafa­ kassi með broti af verkinu, Eldblóm, 100% vistvænir f lugeldar. „Mig langaði að fanga kátínuna og gleðina sem fylgir f lugeldunum, verandi ástríðufullur sprengju­ vargur þá elska ég flugelda, en ekki mengunina. Blómin eru aldeilis full­ komin þar, menga ekkert og veita ánægju í mánuði en ekki sekúndur.“ Kóreógrafar blómabeð Um er að ræða vefverslunina eld­ blom.is þar sem boðið er upp á fræ og hnýði sem kaupandi svo ræktar sjálfur blóm upp af. „Með gjafa­ pakkanum fylgja upplýsingar um hvernig þú „kóreógrafar“ blómabeð. Okkur langaði að gefa fólki tækifæri til að rækta sína eigin flugeldasýn­ ingu heima og fá þannig brot af lista­ verkinu til sín. Sem byrjanda í ræktun fannst mér ótrúlega skemmtilegt að sjá að hægt væri að rækta svona stórfeng­ leg blóm úti í garði á Íslandi, en með fjórum lykilatriðum við ræktun frá fræi virðist allt hægt. Dalíurnar og liljurnar og sólblómin stóðu í Hallargarðinum, Árbæjarsafni og Seltjarnarnesi í öllum veðrum og sönnuðu þar með fyrir okkur hve vel þau geta dafnað í íslenska sumr­ inu. Við vildum þá deila gleðinni – leyfa fólki að prófa að rækta flug­ elda í stað þess að sprengja þá. Fyrir utan það hvað það er gaman að geta farið út í garð og klippt fersk blóm í vasa inn á borð.“ Danshöfundurinn Sigga Soffía tók við sem stjórnarformaður Íslenska dansf lokksins síðasta sumar. „Íslenski dansflokkurinn hefur á síðustu árum ekki bara unnið fram­ sækin verk hér á landi heldur verið f laggskip íslenskrar danslistar á erlendri grundu og skapað sér góðan orðstír. Flokkurinn hefur unnið til erlendra verðlauna og verið landi og þjóð ítrekað til sóma,“ segir Sigga. Sigga starfaði sem dansari í í dans­ flokki Ernu Ómarsdóttur, Shalala, árin 2009 til 2014, en hefur síðan þá verið sjálfstætt starfandi lista­ maður og dansað í uppfærslum bæði í Frakklandi og Belgíu. „Sem sjálfstætt starfandi lista­ maður flakka ég milli þess að vinna dans í formi myndlistar, texta, sem flugelda, danssýningar og videóverk. Það er svo margt að gerast á mörkum myndlistar og dans eða dans og gjörningalistar,“ segir hún að lokum. Áhugasömum má benda á Eld­ blóm á Instagram: eldblom2020. FYRIR MIG VAR ÞETTA ÆFING Í AÐ SÆTTA MIG VIÐ DAUÐLEIKANN, AÐ HORFA Á FRÆ TEYGJA SIG TIL HIMINS, BLÓMSTRA OG DEYJA Á SVO FALLEGAN HÁTT. Siggu, sem er ástríðufullur sprengju vargur, langaði að fanga gleðina sem flug- eldum fylgir án mengunarinnar. Sigga segir gam- an hafa verið að sjá að hægt væri að rækta svona stórfengleg blóm á Íslandi. Götubitinn hjá F irði Laugardaginn 6 .feb 12:00 - 14:30 Fylgstu með! 17:00 - 19:30 & H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.