Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 80
ÁHORFAND- ANUM SÝNIST VERKIN VERA Á ÁKVEÐINN HÁTT EN ÞEGAR HANN KEMUR NÆR ERU ÞAU KANNSKI AÐEINS ÖÐRUVÍSI. Sýningin Troika, Tройка, verður opnuð í dag í Lista­safni Árnesinga í Hvera­gerði. Þar sýna þrír lista­menn verk sín: Kristján Steingrímur, Pétur Magn­ ússon og Tumi Magnússon. Jonatan Habib Engqvist er sýningarstjóri. Hann er sænskur, bjó um tíma á Íslandi og hefur síðan unnið tölu­ vert hér á landi og með íslenskum listamönnum erlendis. Spurður um yfirskrift sýningar­ innar segir Jonatan: „Troika er rúss­ neskt orð sem þýðir hópur þriggja, stundum þýtt sem þríeyki. Það getur til dæmis átt við þjóðdans með þremur þátttakendum. Við erum vön paradansi með tveimur þátt­ takendum en þegar dansararnir eru orðnir þrír þá er kominn skemmti­ legur vinkill. Orðið getur líka átt við ungverskan hestvagn sem dreginn er af þremur hestum sem hafa mis­ munandi gang til að geta haldið sama takti. Það er gaman að leika sér með þetta orð sem inngang að sýningu þriggja listamanna af kyn­ slóð sem hefur haft áhrif á nútíma­ list á Íslandi,“ segir Jonatan. Hann segir listamennina vera ólíka. „Á sýningunni verður til sam­ tal milli listaverkanna og til verður þessi dans og hreyfing sem troikan er. Verkin eru að stærstum hluta ný. Pétur Magnússon vinnur mikið með sjónarhorn og rými. Áhorfand­ anum sýnist verkin vera á ákveðinn hátt en þegar hann kemur nær eru þau kannski aðeins öðruvísi. Tumi Magnússon sýnir verk sem eru einhvers staðar á milli þess að vera teikningar og málverk og snú­ ast um tímann og rýmið. Hann er líka með stóra og spennandi vídeó­ innsetningu. Þar eru samtöl milli fólks sem er að drekka kaffi og talar ólík tungumál. Fólkið er að segja Þrír listamenn og verk sem tala saman Kristján Steingrímur, Pétur Magnússon og Tumi Magnússon sýna í Listasafni Árnes- inga. Jonatan Engqvist er sýningarstjóri og yfirskrift sýningarinnar er Troika. Jonatan Habib Engqvist er sýningarstjóri, en hann hefur unnið töluvert hér á landi. MYND/AÐSEND Málverk Kristjáns Steingríms af Surtsey. Jonatan með Kristjáni Stein- grími og Tuma Magnússyni. persónulegar sögur milli þess sem það talar ofan í hvert annað, mis­ lengi, og þegar þau drekka er eins og þau séu öll í sama rými. Þannig verður til tungumál sem hljómar mjög ruglað eins og í sögunni um Babelsturninn.“ Meðal verka Kristjáns Steingríms er málverk, Surtsey. „Þar er lands­ lagið sjálf myndin,“ segir Jonatan. „Kristján var í samskiptum við jarð­ fræðing sem aðstoðaði hann við að ná í efni frá Surtsey sem hann málar svo á striga. Þannig að Surtsey sjálf er máluð á striga. Myndin er hluti af seríu sem heitir Forboðnir staðir. Svo er önnur sería þar sem málverk­ in eru unnin úr sandi frá Normandí og loftsteini.“ Í tilefni af sýningunni hefur safn­ ið gefið út sýningarskrá sem verður fljótlega hægt að skoða á heimasíðu safnsins. Sýningin stendur yfir til 23. maí og er opið alla daga nema mánudaga í safninu. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Sýning Andreas Eriksson í i8 galleríi, Tryggvagötu, stendur nú yfir og lýkur 3. apríl. Andreas vinnur í senn málverk, vefnað, skúlptúr, ljósmyndun, hreyfimyndir og innsetningar. Andreas hefur gjarnan lýst verk­ um sínum sem „tilvistarlandslagi“, málverkin eru því innri leit lista­ mannsins, en þó er greinilegt að uppsprettan er umhverfið og stað­ hættir í kringum heimili hans, sem stendur við stöðuvatn í Svíþjóð. Verk hans eru gjarnan tengd við hefð norrænnar rómantíkur í mál­ aralist og nefnir hann gjarnan Ed­ vard Munch og Jóhannes Sveinsson Kjarval sem áhrifavalda í list sinni. Árið 2014 stýrði hann sýningunni Efsta lag á Kjarvalsstöðum þar sem hann valdi saman verk eftir sjálfan sig og Kjarval. Árið 2017 tók Andr­ eas Eriksson þátt í samsýningu í i8 galleríi. Andreas var fulltrúi Svíþjóðar í norræna skálanum á 54. Feneyja­ tvíæringnum (2011) og á að baki margar einkasýningar. Verk hans má finna í mikilvægum, alþjóðleg­ um söfnum og má þar nefna Centre Pompidou í París, FRAC Auvergne í Clermont­Ferrand í Frakklandi; MUMOK í Vín; Nasjonalmuseet í Osló; Moderna Museet í Stokkhólmi og X Museum í Peking. Andreas sýnir í i8 Mynd Andreas Eriksson, Fjället, frá árinu 2020. MYND/AÐSEND Fantasía Flamenca heldur tónleika í Hörpu á Sígildum sunnudög um, á morg un, sunnudaginn 7. febrúar, kl. 16.00. Efnisskráin inniheldur ýmsar stíltegundir flamenco­tónlistarinn­ ar og ólík form hennar, meðal ann­ ars Bulerias, Soleares, Dansa Mora og Tangos. Flutt verða verk eftir nokkra helstu meistara þessarar tónlistarhefðar Andalúsíu, þar á meðal Paco de Lucia, Paco Cepro og Estrella Morente, en þau eru meðal fremstu tónlistarmanna flamenco­ tónlistar. Einnig verða f lutt nýrri verk eftir Símon H. Ívarsson. Hljómsveitina skipa gítarleikar­ arnir Símon H. Ívarsson og Ívar Sím­ onarson, söngkonan Ástrún Frið­ björnsdóttir, Kristberg Jóhannsson, slagverksleikari og Hrafnkell Sig­ hvatsson bassaleikari. Flamenco í Hörpu Fantasía Flamenca leikur flamenco. 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.