Heimilispósturinn - 15.03.1950, Page 23
þekkið nú smiðinn, sem á húsið
þar sem kassinn stóð fyrir utan,
sem við létum Ruggierí ofan í.
Nú hefur smiðurinn komizt í
klandur við þann, sem þykist
vera eigandi kassans, því hann
vildi fá fyrir hann peninga, en
smiðurinn fullyrðir að hann
hafi ekki selt kassann heldur
hafi honum verið stolið nóttina
áður. Þessu svaraði hinn þannig:
„Það getur ekki verið rétt, því
þú seldir taáðum okrurunum
kassann, eða svo sögðu þeir mér
í nótt, þegar ég kom til þeirra,
þegar Ruggierí var tekinn fast-
ur.“ Þá sagði smiðurinn: „Það
er tilhæfulaust, því ég hef aldrei
selt þeim kassann, en þeir hafa
stolið honum frá mér í nótt, og
við skulum fara til þeirra.“ Svo
fóru þeir allir til veðlánaranna,
og ég er komin aftur, og eins og
þér getið skilið, veit ég hvernig
Ruggierí hefur verið fluttur
þangað, sem hann fannst, en
hvernig hann hefur lifnað við
aftur, er mér ráðgáta.
Frúin skildi nú hvernig í öllu
lá og sagði stúlkunni, hvað lækn-
irinn hefði sagt henni og bað
hana að hjálpa sér að frelsa
Ruggierí, því það væri henni
innan handar, aðeins ef hún vildi
og gæti jafnframt sloppið við
allan vanza.
„Leggið þá á ráðin og ég skal
sannarlega framkvæma þau.
Frúin, sem ekki leið betur en
þótt hún hefði verið í henging-
arólinni, var ekki sein á sér að
taka ákvörðun, sem hún út-
skýrði vandlega fyrir stúlkunni,
sem fór strax til læknisins og
sagði grátandi:
„Herra, ég verð að biðja yður
fyrirgefningar á stórri synd,
sem ég hef drýgt gegn yður.“
Vinsælustu leikarar barnanna
Roy Rogers og Trigger.
„Og hvað er það?“ spurði
læknirinn, en stúlkan svaraði
hágrátandi!
„Herra, þér vitið hvílíkur
maður Ruggierí frá Jerólí er,
og þar eð hann fór að líta til
mín hýru auga, hef ég á þessu
ári trúlofast honum, bæði vegna
þess að ég þorði ekki annað og
svo var ég líka dálítið skotin í
honum, og er hann hafði komizt
að því í gærkvöldi, að þér voruð
ekki heima talaði hann um fyrir
§ $ 9
HEIMILISPÓSTURINN
21