Heimilispósturinn - 15.03.1950, Blaðsíða 24

Heimilispósturinn - 15.03.1950, Blaðsíða 24
mér þangað til ég lét tilleiðast að sofa hjá honum inni í her- bergi mínu um nóttina, og er hann varð þyrstur ætlaði ég að sækja honum vatn eða vín að drekka, en ég vildi ekki fara inn í salinn, svo frúin yrði mín ekki vör, og þá mundi ég eftir að hafa séð vínflöskuna inni hjá yður og hljóp þangað inn eftir henni og gaf honum að drekka, fór svo með flöskuna aftur þangað sem ég hafði tekið hana, og einmitt út af því voruð þér svo reiður. Og ég viður- kenni að ég breytti rangt, en hver er sá, sem aldrei gerir það sem hann á ekki að gera? En mér þykir þetta mjög leiðinlegt, einkum vegna þess, að nú ligg- ur við að Ruggierí verði að láta lífið fyrir þetta, og þess vegna bið ég yður innilega um fyrirgefningu, og að þér vilduð lejda mér að fara og hjálpa Ruggierí eftir því sem ég get“. Læknirinn varð mjög undr- andi, er hann heyrði þetta, en lét sér þó nægja að skopast dálítið að henni og sagði: „Þú hefur, svei mér, ætlað að detta í lukkupottinn er þú hefur beðið ungs manns, er gæfi þér gull og græna skóga, og hafa svo ekki annað en múrmeldýr upp úr krafsinu. Farðu þá og frelsaðu unnusta þinn, en gættu þess eftirleiðis að hleypa honum ekki oftar inn í þetta hús, því þá skaltu sannarlega eiga mig á fæti.“ Stúlkunni fanst þetta byrja vel, og flýtti sér nú allt hvað hún mátti til fangelsisins. Þar talaði hún svo vel fyrir sínu máli við fangavörðinn að hann leyfði henni að tala við Ruggierí. Er hún hafði sagt honum hverju hann skyldi svara dómaranum, ef hann vildi sleppa frá þessu, heppnaðist henni að fá áheyrn hjá hinum stranga dómara. En þar eð hún var ung og lag- leg stúlka, vildi sá heiðursmað- ur fyrst reyna að fá hana til að bíta á sinn öngul, áður en hann veitti henni áheyrn, og til þess að hafa hann góðan, sleppti hún öllum tepruskap í það skipti. Og þegar kvörnin var orðin tóm stóð hún upp og sagði: „Herra, Ruggierí frá Jerolí hefur verið handtekinn, sem þjófur, en það er hann alls ekki.“ Svo sagði hún honum alla söguna frá upphafi til enda, að hún væri kærastan hans og hvernig honum hefði verið laumað inn í húsið og að svo hefði hún gefið honum svefn- meðal í þeirri trú, að það hefði verið vatn, og komið honum því næst ofan í kassa af því hún hefði álitið að hann væri dáinn. Því næst sagði hún frá því, sem eigendur kassans hefðu sagt smiðnum, og var það skýring á því, hvers vegna Ruggierí var kominn inn í hús veðlánaranna. Dómarinn sá strax að það var auðvelt að komast að raun um sannleikann í þessu máli og yfir- heyrði bæði lækninn, smiðinn, eigendur kassans og okrarana, og við það fékk hann staðfest að okrarnir hefðu í byrjun næt- ur stolið kassanum og farið með hann heim til sín. Að síð- ustu sendi hann boð eftir Ruggi- erí og spurði hann, hvar hann hefði verið síðustu nótt. Hann svaraði því til, að það væri sér ekki ljóst, en hann myndi vel að hann hefði farið út til að gista hjá þjónustustúlku meist- 22 HEIMILISPÓSTURINN 5 9 9

x

Heimilispósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1514

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.