Vinnan


Vinnan - 01.11.1949, Side 6

Vinnan - 01.11.1949, Side 6
SÆMUNDUR ÓLAFSSON: Verðlagning landbúnaðarafurða Verðlagningin á landbúnaðarvörum hefur löng- um verið viðkvæmt og vandasamt mál. Því eins og kunnugt er, verkar verðlagið á þeim mjög mikið á afkomu alls almennings í landinu, bæði bænd- anna sjálfra og alls þurrabúðarfólks. Með gengis- skráningarlögum 1939 var verð á landbúnaðarafurð- um bundið við kaupgjald verkalýðsins, og skyldi hvort tveggja hækka og lækka í sama hlutfalli. Þetta varð þess valdandi, að verðlag steig mjög lít- ið og dýrtíðin þá einnig. En Adam var ekki lengi í Paradís, því 1940 fékk Hermann Jónasson, þáverandi landbúnaðarráðherra, því framgengt, að landbúnaðarafuðraverðið var tek- ið út úr gengisskráningalögunum. Hermann lýsti því yfir á alþingi við það tækifæri, að verðlaginu skyldi haldið áfram í samræmi við kaup verkalýðs- ins. Við þessa yfirlýsingu var þó ekki staðið af hálfu ráðherrans eða bænda, því verð á landbún- aðarafurðum rauk brátt upp úr öllum skörðum, og myndaði þá og jafnan síðan hina óbærilegu dýrtíð í landinu. Þegar núveraxidi ríkisstjórn tók við, var dýrtíðin allt í kaf að keyra, en ein af aðalgrundvelli henn- ar var og er hið háa verð á landbúnaðarafurðum. Þá varð það að samkomulagi milli stjórnarflokkanna, að fulltrúar frá bændum og neytendum skyldu semja um verðið á sarna hátt og verkalýðurinn og atvinnurekendur semja um kaup og kjör alls hins vinnandi fólks. Þessi hugmynd er skynsamleg, en sá galli er á framkvæmdinni, að ef aðilar ná ekki samkoulagi, skulu þeir vísa ágreiningnum til yfirnefndar, sem er skyldug til að fella úrskurð um deiluatriðin. I yfirnefndinni er oddamáður hagstpfustjórinn, ræð- ur hann því raunverulega verði landbúnaðaraf- urðanna á meðan núverandi skipan helzt. Það hefur komið í Ijós við framkvæmd þessarar skipunar, að fulltrúar bænda vilja ekki hlíta nein- um skynsamlegum rökum í samningaumleitunum, heldur velta þeir ábyrgðinni yfir á hagstofustjór- ann, og leggja jafnan fram til yfirnefndarinnar hin- ar ósvífnustu kröfur. Hinn 24. maí 1947 fékk ríkisstjórnin samþykkt á alþingi „lög um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðar- vörum o. fl.“ Verðskráning á landbúnaðarafurðum er nú samkvæmt þessum lögum. 5. gr. laganna er þann- ig; „Við útreikning framleiðslukostnaðar og verðlagn- ingu á söluvörum landbúnaðarins á innlendum mark- aði í heildsölu og smásölu skal samkvæmt ákvæð- um 4. gr. byggt á verðgrundvelli, sem fenginn er með samkomulagi milli þriggja fulltrúa, sem til- nefndir eru af stjórn Stéttarsambands bænda, og þriggja fulltrúa frá þessum félagssamtökum neyt- enda: Alþýðusambandi íslands, Landssambandi iðnaðarmanna og Sjómannafélagi Reykjavíkur. Nefndinni til aðstoðar eru hagstofustjóri og for- maður búreikningaskrifstofu landbúnaðarins. Verði samkomulag með öllum nefndarmönnum, er það bindandi. Nú næst ekki samkomulag um einhver atriði snertandi útreikning framleiðslukostnaðar eða verð- lagningu landbúnaðar, og skal þá vísa þeim atrið- um, er ágreiningi valda, til sérstakrar yfirnefndar. Yfirnefnd þessi skal skipuð 3 mönnum, einum til- nefndum af fulltrúa Stéttarsambands bænda, öðrum af fulltrúum neytenda og hagstofustjóra sem odda- manni. Fellir hún fullnaðarúrskurð um ágreiningsmálin“. í nefnd þá, er um getur í 5. gr., voru skipaðir í fyrsta-sinn í júlí 1947 af Stéttarsambandi bænda, Sverrir Gíslason, bóndi í Hvammi í Norðurárdal, og var hann kosinn formaður nefndarhluta fram- leiðenda. Sigurjón Sigurðsson, bóndi í Rafholti í Holtum og Steingrímur Steinþórsson, búnaðarmála- stjóri. Frá Sjómannafélagi Reykjavíkur Sæmudnur Ólafsson, síðar gjaldkeri félagsins. Hann var kosinn formaður nefndarhluta neytenda. Frá Landssam- bandi iðnaðarmanna Einar Gíslason málarameistari. Frá A.S.Í. Ingólfur Gunnlaugsson, verkamaður í Dagsbrún. Allir eftirtaldir menn hafa setið í nefndinni síð- an hún var skipuð, að undanteknum Ingólfi Gunn- 164 VINNAN

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.