Vinnan


Vinnan - 01.11.1949, Blaðsíða 28

Vinnan - 01.11.1949, Blaðsíða 28
Beltisclráttarvél maðurinn vildi ekki rjúpurnar og kvað þær skemmd- ar. En bóndi maldaði í móinn og sagði: „Haldið þér ekki, að það séu partar í þeim?“ Kvæði Vilhjálms eru eins og skemmdar rjúpur. En það eru partar í þeim. Og kvæðið „Við tvö og blómið,“ er allt að því Það vex eitt hlóm á bak við húsið mitt í björtum reit á milli grárra veggja. Og þó að blómið sé ei blómið þitt, á blómið skylt við hjörtu okkar beggja. Sjá morgun hvern, er morgunsólin skín, er mynd vor búin litum þess og angan. Því okkar hjörtu eru eins og vín og einnig blómsins sál er vín og angan. Og morgun hvern, er morgunsólin skín er mildir geislar ungu blöðin kitla, ég minnist þess, að það var stúlkan mín og þögul tárin fálla á blómið litla. Þá er upphaf kvæðisins „Tvö veglaus börn“ hér um bil tær lyrik: Tvö lítil börn að leik í hvítum sandi, með Ijóð í svip, og tóna á vör, sem fagur frelsisandi bjó fegurst gríp. Tvö dreymin hjörtu, er drögu burt frá landi sín draumaskip. Vilhjálmur frá Skáholti kemst oft svo grunsamlega nálægt því að vera gott skáld, að maður freistast nærri til að trúa honum, þegar hann segir: ,Því ég hef kvalizt meira en margur hyggur.“ En því í dauðanum „skrifar“ hann það þá ekki „á blað?“ Hvað dvelur Orminn langa? Það er dálítið freistandi að gera ofurlítinn saman- burð á skáídunum Vilhjálmi frá Skáholti og Steini 186 VINNAN

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.