Vinnan


Vinnan - 01.11.1949, Side 13

Vinnan - 01.11.1949, Side 13
V erkakvennaf élagið Framsókn 35 ára Á þessu hausti eru liðin þrjátíu og fimm ár síðan Verkakvennafélagið Framsókn var stofnað. Um leið og Vinnan vill minnast þessa merka afmælis félags- ins, verður saga þess rakin í fáum dráttum, en vegna þess hve blaðinu er þröngur stakkur skorinn, verður aðeins hægt að- stikla á stóru. Vorið 1913 kom það til umræðu á fundi í Kven- réttindafélagi Islands, hvort það félag gæti ekki gert eitthvað til að bæta kjör þeirra verkakvenna, sem einkum ynnu útivinnu, fiskverkun og því um líkt. Málshefjandi um þetta var frú Jónína Jónatans- dóttir. Þessu var vel tekið og nefnd kosin til að at- huga málið. Ekki varð þó af félagsstofnun að sinni, en seinna á árinu fóru nokkrar áhugasamar konur úr félaginu til helztu atvinnurekenda og kiöfðust Jónína Jónatansdóttir Jóhanna Egilsdóttir kauphækkunar fyrir verkakonur. Fór svo að á næsta vetri hækkaði kaup úr 17—18 aurum á klukkustund í 20 aura. Vorið 1914 héldu svo þessar konur, undir forystu Jónínu Jónatansdóttur, fund með verkakonum og var ákveðið að reynt skyldi með haustinu að stofna félag fyrir verkakonur. Þann 25. október haustið 1914 var svo kallaður saman fundur í Góðtemplarahúsinu. Var sérstaklega boðað til hans á fiskverkunarstöðvun- um. Þáttaka var mjög góð. Mættu þar 68 konur og ákváðu að stofna fyrsta verkakvennafélagið á Is- landi. Á næsta fundi félagsins var því svo, samkvæmt tillögu frú Jónínu Jónatansdóttur valið nafnið Fram- sókn. Var sá fundur haldinn 28. nóv. Lagði þá bráða- birgðarstjórn, sem kosin hafði verið á fyrri fundinum, fram lagafrumvarp, er hún hafði samið. Var það samþykkt óbreytt. Bráðabirgðastjórn var þannig skipuð: Jónína Jónatansdóttir, formaður. Karolína Siemsen, varaformaður. Bríet Bjrnhéðinsdóttir, ritari. Jónína Jósefsdóttir, fjármálaritari. María Pétursdóttir, gjaldkeri. Þessi sama stjórn var svo kosin óbreytt á fyrsta aðalfundi félagsins, sem haldinn var í janúar 1915, en þá var María Pétursdóttir varaformaður, en Kar- ólína Siemsen gjaldkeri. Tilgangur félagsins kemur skýrt fram í fyrstu lög- um þess. Onnur grein félagslaganna hljóðaði svo: Tilgangur félagsins er: 1. Að styðja og efla hagsmuni og atvinnu félagskvenna. 2. Að koma betra skipulagi á alla daglauna- vinnu þeirra. 3. Að takmarka vinnu á öllum helgidögum. VINNAN 171

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.