Vinnan


Vinnan - 01.11.1949, Síða 15

Vinnan - 01.11.1949, Síða 15
ið um 55 aura dagkaup og kr. 1,40 fyrir 100 af þorski. Og næsta ár, 1920, er aftur reynt að fá kauphækkun og komst kaupið þá upp í 97 aura í dagvinnu. Arið 1921 var hafin mikil sókn á hendur verka- lýðsfélögunum. Snemma á árinu höfðu atvinnurek- endur skrifað verkakvennafélaginu og farið fram á mikla kauplækkun, eða úr 97 aurum niður í 70 aura í dagvinnu og hlutfallslega sömu lækkun á öðrum liðum. Var samið um 80 aura í dagvinnu, en eftir- vinna hélzt óbreytt, kr. 1,10. Gilti þetta kaup árin 1922, 1923 og að mestu leyti 1924. Árið 1925 náði svo félagið samningum um 90 aura dagkaup. Aðrir liðir kauptaxtans voru óbreyttir. VERKFALL Árið 1926 er eitt hið sögulegasta í annálum fél- agsins. Þá lenti félagið í harðri deilu við atvinnurek- endur, 11-daga verkfallinu, sem svo var kallað. Frá þessari deilu er sagt í þrjátíu ára afmælisblaði Verka- kvennafélagsins Framsóknar og er sú frásögn á þessa leið: „Snemma í janúar 1926 fóru fram umræður milli atvinnurekenda og félagsstjórnarinnar í tilefni af því, að atvinnurekendur höfðu krafist mikillar kauplækk- unar. Buðust þeir til að borga 80 aura í dagvinnu, kr. 1,10 í eftirvinnu og kr. 2.00 fyrir 100 af þorski. Þessu tók stjórnin fjarri, og sama gerðu verkakonur á fé- lagsfundi 21. jan. Var nú haldið áfram samningatilraunum. í byrjun febrúar var svo komið, að félagsstjórnin hafði gengið inn á 85 aura dagkaup, og atvinnurekendur höfðu Bríet Bjarnhéðinsdóttir Jánína Jósefsdóttir hækkað ákvæðisvinnu upp í kr. 2,20 á 100 af þorski. En mikið vantaði á að saman gengi, og var málinu þá vísað til sáttasemjara í vinnudeilum. Á félagsfundi 18. febr. var tilkynnt að samninga- umleitanir sáttasemjara hefðu engan árangur borið. Það skeði þessu næst, að atvinnurekendur sendu út meðal verkakvenna prentað tilboð um kaup til und- irskriftar, og gerðu með því tilraun til að sundra sam- tökum verkakvenna með því að fá eina og eina til að undirskrifa skjalið. Var nú kominn mikill hiti í málið, og þótti sýnt, að til tíðinda mundi draga. Hélt félagið mjög fjölmenn- an fund um málið 4. marz. Voru þar mættir ýmsir úr stjórn Alþýðusambandsins. Héldu þeir ræður og hvöttu konur til að standa einhuga gegn tilboði at- vinnurekenda. Enda var samþykkt með 169 atkvæð- um gegn 3 að hafna því. Sýna þessar atkvæðatölur hve fundurinn hefur verið vel sóttur, því að gera má ráð fyrir, að einhverjar hafi ekki greitt atkvæði. Þá var á fundi 9. marz samþykktur kauptaxti, sem stjórnin auglýsti daginn eftir. Samkvæmt honum skyldi dagkaup vera 85 aurar á klst., eftirvinna 1 kr., nætur- og sunnudagavinna 1,25 á klst. Þvottur á þorski 2,20 100. Þá var krafizt karlmannskaups, ef konur væru látn- ar fara um borð í togara til vinnu við uppskipun. Enn fremur var samþykkti svohljóðandi ályktun: „Með því að fullreynt þykir, að atvinnurekendur vilji ekki sætta sig við kauptaxta þann, er verka- kvennafélagið hefur samþykkt og auglýst, lýsir fund- urinn því yfir, að hann bannar öllum verkakonum að VINNAN 173

x

Vinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.