Vinnan - 01.11.1949, Page 19
Áslaug Jónsdóttir Karólína Siemsen
beri nafnið V.k.f. Framsókn, en stofnuð verði deild
starfandi þvottakvenna innan þess, er stunda hrein-
gerningavinnu og beri nafnið Freyja.“
Þessi tillaga var samþykkt með 61 atkvæði gegn 1.
Er þar skjótt frá að segja, að bréfaskipti þessi og
viðræður báru engan árangur. Arið 1944 tóku komm-
únistar einir við stjórn Alþýðusambandsins. Var þá
samþykkt í miðstjórninni að víkja V.k.f. Framsókn
úr Alþýðusambandinu.
Á fundi V.k.f. Framsóknar 6. des. 1945, var til-
kynnt um brottrekstur félagsins úr Alþýðusamband-
inu og samþykkt að láta fara fram allsherjaratkvæða-
greiðslu. Á aðalfundi félagsins 25/2 ’48 var svo sam-
þykkt einrónia eftirfarandi tillaga:
„Aðalfundur V.k.f. Framsóknar haldinn í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu 25/2 ’46 vítir harðlega fram-
komu Alþýðusambandsstjórnar gagnvart félaginu,
sem virðist þrungin pólitísku ofstæki og þverbrýtur
þá einingarstefnu, sem mörkuð var af 18. þingi Al-
þýðusambandsins. Telur fundurinn úrskurð sam-
Elka Björnsdóttir Steinunn Þórarinsdóttir
VINNAN
177