Vinnan - 01.11.1949, Page 20
bandsstjórnar um brottrekstur félagsins vera frek-
legt brot á öllum lýðræðisreglum og félagsvenjum
verkalýðssamtakanna og móðgun við alla verkalýðs-
sinna, sem styðja vilja stéttarlega einingu án hlið-
sjónar af stjórnmálaskoðunum félaganna. Telur fund-
urinn sjálfsagt að kæra yfir úrskurði þessum til næsta
reglulegs Alþýðusambandsþings og felur því félags-
stjórn að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir í því
sambandi."
A þingi Alþýðusambandsins 1946 var brottrekstur-
inn samþykktur, enda voru kommúnistar þar í meiri-
hluta, og var fulltrúum V.k.f. Framsóknar varnað
inngöngu á þingið. Stóðu þessi útlegðarár til hausts-
ins 1948, en þá náðu lýðræðissinnar meirihluta á
þinginu og var þá samþykkt að taka V.k.f. Framsókn
aftur í sambandið. Og þar með fékk þetta þraut-
reynda forustufélag í kjaramálum íslenzkra kvenna
réttan hlut sinn að fullu þrátt fyrir harðvítuga and-
stöðu fyrrverandi valdhafa í ASÍ — kommúnistanna.
VÖXTUR OG VIÐGANGUR FÉLAGSINS
Á ÚTLEGÐARÁRUNUM.
Árið 1946 voru um 700 konur félagsbundnar í
Verkakvennafélaginu Framsókn, en síðastliðið haust
voru félagskonur 1014 og hafði því fjölgað í félaginu
um rúma 300 félaga á útlegðarárunum, en nú má
telja, að um 1100 konur séu í félaginu.
Á útlegðarárunum hækkaði kaupið um 13% í hrein-
gerningavinnu, en almenna kaupið um 8%. Kaupið er
nú kr. 2,20 í almennri vinnu, en kr. 2,30 í hreingern-
ingu, uppskipun og saltfiski auk dýrtíðaruppbótar.
ÞÆR, SEM HAFA BORIÐ HITA OG ÞUNGA DAGSINS
Þau 35 ár, sem liðin eru frá stofnun Verkakvenna-
félagsins Framsóknar, hafa aðeins 28 konur gegnt
stjórnarstörfum og má segja, að þær hafi borið hita
og þunga dgsins. Eru það þessar:
Jóhanna Egilsdóttir ................ 27 ár
Jónína Jónatansdóttir .............. 20 —
Jónína Guðjónsdóttir................ 15 —
Karólína Siemsen ................... 12 —
Sigríður Hannesdóttir .............. 11 —
Guðbjörg Brynjólfsdóttir............. 9 —
Anna Guðmundsdóttir.................. 9 —
Sigríður Ólafsdóttir ................ 8 —
Guðrún Sigurðardóttir ............... 7 —
Hólmfríður Ingjaldsdóttir............ 6 —
Elínborg Bjarnadóttir ............... 5 —
Elka Björnsdóttir .................. 5 —
Gíslína Magnúsdóttir ................ 5 —
María Pétursdóttir................... 5 —
Áslaug Jónsdóttir ................. 4 —
Hólmfríður Ingfaldsdóttir
Herdís Símonardóttir ................. 3 —
Jóhanna Þórðardóttir.................. 3 —
Jónína Jósefsdóttir .................. 3 —
Sigrún Tómasdóttir ................... 3 —
Steinunn Þórarinsdóttir............... 3 —
Helga Ólafsdóttir .................... 2 —
Jóhanna Jónsdóttir.................... 2 —
Guðrún Þorgeirsdóttir ................ 2 —
Bríet Bjarnhéðinsdóttir............... 1 —
Margrét Jónsdóttir ................... 1 —
Úlfhildur Eiríksdóttir ............... 1 —
Þjóðbjörg Jónsdóttir.................. 1 —
Núverandi stjórn félagsins skipa: Jóhanna Egils-
dóttir, formaður; Jóna Guðjónsdóttir, varaformaður;
Anna Guðmundsdóttir, ritari; Guðrún Þorgeirsdóttir,
gjaldkeri og Guðbjörg Brynjólfsdóttir, fjármálarit-
ari. Starfsstúlka félagsins er Guðrún Sigurgeirsdóttir.
Þó að mestmegnis hafi verið fjallað um baráttu
V.kf. Framsóknar í kaup- og kjaramálum í þessu
stutta ágripi, fer því fjarri að þar með sé öll saga
félagsins sögð. V.k.f. Framsókn hefur lagt hð sitt
ýmsum menningar- og þjóðþrifamálum, stutt líknar-
mál, einkum þegar veikindi, slys eða óhöpp hafa bor-
ið að höndum og oft lagt fram styrk til hjálpar bág-
stöddum. En ef gera ætti þeim þætti í starfsemi
félagsins viðhlítandi skil, þyrfti meira rúm en Vinnan
hefur yfir að ráða. Verður þetta því að nægja að
sinni.
178
VINNAN