Vinnan


Vinnan - 01.11.1949, Side 21

Vinnan - 01.11.1949, Side 21
JURÍ SEMJONOF: Auður jarðar ■ . Hinn fiðraði búpeningur UM ÞAKKLÁTSSEMI Hinar miklu samgöngubætur og uppfinning frystihúsanna hefur gert alifuglana að mikils- verðri verzlunarvöiru. Stöðugt er verið að flytja hænsni, endur og gæsir úr einu landinu til annars, og þó við getum vafalaust komist af án alifugla til daglegra máltíða, þá eru þó vörur þær, sem þeir gefa af sér afar þýðingarmiklar fyrir okkur og nær óh j ákvæmilegar. Það er sennilega ekki til það land í heiminum, þar sem hænsnin eru óþekkt. Þau eru ættuð úr Asíu, og koma raunar fremur seint til sögunnar í Evrópu, — ekki fyrr en eftir Persastyrjaldirnar, það er að segja á fimmtu öld fyrir Krists burð. Það var ekki aðeins hið bragðgóða kjöt hnæsnanna, sem Germönum þótti mikið til koma, heldur einnig hæfileiki hanans til þess að láta menn vita, hvað tímanum liði. Enginn annar en, Wilhelm Busch hefur sungið lofgerðaróð um hænsnin, og þó hafa þau vegna kjötsins og eggjanna verið velgerðaskepn- ur mannanna, sem styrktu sjúka og gáfu börnum næringu. Það hefur farið lítið fyrir hænunni, hún hefur blómstrað eins og fjóla í skugganum, en han- inn hinn gáfaði iðjuleysingi hefur komist alla leið upp á kirkjuturnana í Þýzkalandi, og hjá Frökkum hefur hann meira að segja orðið að þjóðernislegu tákni. í Austurlöndum var haninn snemma settur í samband við dýrkun ljóss og sólar. Til Ameríku komu hænurnar til félagsskapar hönunum, — en Spán- verjar höfðu þá með sér sem klukku. Þá hafa han- arnir áunnið sér allmikla frægð fyrir herdirfsku. Jafnvel á okkar dögum eru hanarnir fleiri en hæn- urnar á Filipseyjum, því að hanaat er eftirlætis- skemmtun landsmanna eins og nautaatið á Spáni. En eggjakaupmennirnir líta nú öðru vísi á þessi mál. Iðnaðarlöndin í Vestur-Evrópu flytja inn árlega þúsundir og tugi þúsunda smálesta af eggjum. Fyrir heimsstyrjöldina var Rússland eggjaforðabúr Evrópu. Nú flytja Rússar sama sem engin egg út. Auk Hol- lendinga og Dana flytja Balkanlöndin, Finnland og Pólland út egg. Þjóðverjar og Englendingar eru mestu eggjakaupendur álfunnar. Kína, föðurland hænsnaræktarinnar, flytur einnig út allmikið af eggj- um, en langmest af eggjadufti, sem kökugerðarhús- in kaupa. Það voru Kínverjar sem fundu upp útung- unarvélina. Eins og gefur að skilja eru gæsir og endur miklu færri en hænsnin, og kemur það til af því, hve miklu fóðurfrekari þær eru og umstangsmeiri. Andir verða t. d. skilyrðislaust að hafa vatn til þess að busla í. í Þýzkalandi eru 86 milljónir hænsna, tæpar sex millj. gæsa og 3 millj. anda. Níutíu af hundraði allra ali- fugla eru hænsni, og í Bandaríkjunum eru hundraðs- hlutföllín enn hagstæðari fyrir hænsnin. Hins vegar eru endurnar mikhr eftirlætisfuglar í Kína. Þær halda sig við alla skurði og hvert fljót. Kínverjar hafa þær með sér á djúnkum sínum, og láta þar við sitja og annast þær ekki vitund. Endurnar verða sjálfar að sjá sér fyrir björg úr vatninu, og til þess eru fiskarnir, að sögn Kínverja. Gæsin er elzt og nytsömust alha alifugla. Það er haldið, að gæsarækt hafi verið fyrst tíðkuð í Babý- lon, og þaðan hafi hún borist rétta boðleið um Grikk- land til Rómaborgar. A þessari leið vann hún ýmis afrek. Meðal annars voru það gæsirnar, sem björguðu Rómaborg og Kapítolíum. Nú vissu menn ekki sitt rjúkandi ráð, hvernig þeir ættu að sýna gæsinni þakklæti sitt, svo að Forn-Rómverjar tóku það til bragðs að steikja bjargvætt sinn og eta hann, — „in memoriam“ — á árstíð afreksverksins. Þá skeði og annar viðburður í Rómaborg, sem gæsin átti sinn velviljaða þátt í. — Það var uppgötv- un, sem að rauplausri frásögn eins sagnaritarans, (sem vafalaust hefur verið einhver sælkeri) „hafði hin mestu áhrif á samtíðina, stuðlaði að útbreiðslu róm- verskrar menningar, studdi hina riðandi byggingu Rómaveldis og lifði það um þúsundir ára.“ Og við furðum okkur ekkert á þessari mælsku, þegar við heyrum, að hér er átt við uppgötvun gæsalifrar- kæfunnar. Þessi mikli atburður skeði á tímabilinu V.I N N A N 179

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.