Stefnir - 01.03.1951, Side 23
MENN OG MALEFNI.
Jón á Reynistað
Á hinu forna höfuðbóli, Reyni-
stað í Skagafirði, situr Jón Sig
urðsson, alþingismaður, að óðali
sínu. Þar er hann einnig fæddur
og uppalinn.
Hann er sonur Sigurðar Jóns
sonar, bónda á Reynistað, er þar
hóf búskap árið 1887. Faðir Sig
urðar var Jón Hallsson, próf-
alstur, sem keypt hafði jörðina
árið 1872 af dánarbúi Einars
umboðsmanns Stefánssonar. Kona
Sigurðar var Sigríður Jónsdóttir,
bónda í Djúpadal í Skagafirði. Að
Jón á Reynistað standa þannig,
traustar skagfirzkar bændaættir.
Menntun og skólavist.
Aðeins fjórtán ára gamall sett-
ist Jón í Gagnfræðaskólann á
Akureyri. Tók hann þar gagn-
fræðapróf árið 1904. Næsta ár
stundaði hann búfræðinám við
bændaskólann á Hólum og út-
Iskrifaðist þaðan vorið 1905. Ár-
ið eftir sigldi hann til Danmerk-
ur og gekk árið 1906—1907 á
lýðháskólann í Askov. Að því
námi loknu stundaði hann verk-
legt búnaðarnám í eitt ár í Dan-
mörku og Noregi. Árið 1908 kom
hann svo heim og gerðist ráðs-
maður á búi föður síns. Jón á
Reynistað hlaut þannig óvenju-
lega góða menntun í æsku. Að-
eins tvítugur að aldri hafði hann
lokið gagnfræðanámi, tekið próf
við bændaskóla, sótt framhalds-
nám í erlendum lýðháskóla og
Stundað verklegt búfræðinám í
tveimur nágrannalandanna. Hinn
ungi ráðsmaður á Reynistað var
þannig ágætlega menntaður mað-
ur og sérstaklega hæfur til þess
að taka síðar við búsforráðum á
þesssu norðlenzka höfuðbóli.
Bóndi á ReynistaS.
Reynistaður hefur frá fornu
fari verið eitt helzta höfuðból
Skagafjarðar. Þar sat Gissur jarl
Þorvaldsson, þar var Etofnsett
klaustur, og þar sátu sýslumenn
Skagfirðinga löngum. Lega stað-
arins gerir hann einkar vel til