Stefnir - 01.03.1951, Blaðsíða 69
ERLENDIR STÓRNMÁLALEIÐTOGAR
67
hinúm almennu kösningum 1906,
þegar sprengingin mikla varð í
íhaldsflokknum, var hann svo
kjörinn sem frambjóðandi frjáls-
lyndra í Norð-Vestur Manches-
ter.
Þegar hann svo tveim árum
síðar varð að leita endurkosn-
ingar, vegna þess að hann tók
við viðskiptamálaráðherraem-
ar Jósep Chamberlain kastaði
hjettinu, felldu Manchesterbúar
hann. Þessi ósigur var mikið á-
fall fyrir stjórnina, en olli
íhaldsmönnum mikillar gleði.
Churchill leitaði nú hælis í Dun-
dee, sem þá var öruggt kjördæmi
Frjálslyndaflokksins, og þar hélt
hann velli í fimm kosningum á
fjórtán árum.
I KOSNINGUNUM fyrri hluta
þessa tímabils, var C'nurchill
miskunnarlaust „undir kvenna-
stjórn“ hinna stríðandi kvenrétt-
indakvenna. í öllum kosningui?
í Dundee mætti hann einnig and-
stöðu og ofsóknum af hálfu Mr
Scrymgeour, sem var ofstækis-
fullur bannmaður.
Svo komu fimmtu kosningarn-
ar í Dundee árið 1922, eftir aJ
samsteypustjórn Lloyd George
var fallin og Churchill var at-
vinnulaus, eftir að hafa haft em-
bætti, samfleytt í fimmtán ár.
Rétt áður en framboðsfundirn-
ir byrjuðu, veiktist hann af botn-
langabólgu og kom ekki til
Dundee fyrr en tveimur dögum
fyrir kosningarnar.
Tuttugu og einum degi eftir
uppskurðinn, með ógróið sár og
ófær um að standa, var hann
borinn í sjúkrastól upp á ræðu-
pallinn til að ávarpa hinn geysi-
stóra og hávaðasama mannfjölda.
Straumurinn var gegn honum
og hinn þrákelkni bannmaður
náði kosningu, en Churchill varð
fjórði. „Á einu andartaki,11 skrif-
aði hann, „var ég stöðulaus, þing-
sætislaus, flokkslaus og botn-
Iangalaus.“
FALL VEKAMANNAFLOKKS-
STJÓRNARINNAR og hinar al-
mennu kosningar 1924 gáfu
honum nýtt tækifæri, og að þessu
sinni var honum boðið þingsæti
fyrir Epping, þar sem hann var
kjörinn sem Constitutionalist,
með nærri 10.000 atkvæða meiri
hluta, og þar hefur hann ætíð
átt athvarf síðan.
Flokksleysingjunum frá auka-
kosningunum var í einu vett-
vangi sópað inn í íhaldsflokkinn
af Mr. Baldwin. Churchill til
mikillar undrunar var hann þeg-
ar gerður að fjármálaráðherra,